Þetta er eldri útgáfa af persónuverndarstefnunni okkar. Skoða núverandi útgáfu eða allar fyrri útgáfur.

Persónuverndarstefna

Upplýsingar sem við söfnum

Hvernig við notum upplýsingarnar sem við söfnum

Gegnsæi og valkostir

Upplýsingar sem þú deilir

Að fá aðgang að og uppfæra persónuupplýsingar þínar

Upplýsingar sem við deilum

Upplýsingaöryggi

Hvenær þessi persónuverndarstefna á við

Samræmi og samstarf við eftirlitsaðila

Breytingar

Verklag á tiltekinni þjónustu

Annað gagnlegt efni tengt persónuvernd og öryggi

Síðast breytt: 19. desember 2014 (skoða eldri útgáfur)

Hægt er að nýta sér þjónustu okkar á ótal mismunandi vegu – til að leita að og deila upplýsingum, til að eiga samskipti við aðra eða til að búa til nýtt efni. Við getum bætt þessa þjónustu enn frekar þegar þú deilir upplýsingum með okkur, til dæmis með því að stofna Google reikning – þá færðu leitarniðurstöður og auglýsingar sem eiga betur við og getur tengst öðrum notendum og deilt efni með þeim á mun einfaldari og hraðvirkari hátt. Þegar þú notar þjónustu okkar viljum við að þér sé fyllilega ljóst á hvaða hátt við notum upplýsingar og hvernig þú getur verndað persónuupplýsingar þínar.

Í persónuverndarstefnu okkar er útskýrt:

  • Hvaða upplýsingum við söfnum og hvers vegna við gerum það.
  • Hvernig þær upplýsingar eru notaðar.
  • Hvaða valkostir boði eru í boði, meðal annars til að fá aðgang að og uppfæra upplýsingarnar.

Við leggjum áherslu á að hafa stefnuna sem einfaldasta en ef þú þekkir ekki hugtök á borð við fótspor (e. cookies), IP-tölur, pixlamerki og vafra ættirðu að byrja á að lesa þér til um þessi lykilhugtök. Google er mjög í mun að vernda einkalíf þitt. Við biðjum þig því að gefa þér tíma til að kynna þér starfshætti okkar, hvort sem þú ert nýr notandi eða gamalkunnugur, og skoða þessa síðu ef spurningar vakna.

Upplýsingar sem við söfnum

Við söfnum upplýsingum til að geta veitt öllum notendum okkar betri þjónustu – allt frá því að finna út grundvallaratriði, eins og hvaða tungumál þú notar, til flóknari atriða, svo sem hvaða auglýsingar gætu gagnast þér, hvaða fólk skiptir þig mestu á netinu eða hvaða YouTube myndbönd gætu fallið þér í geð.

Upplýsingarnar sem við söfnum eru tvenns konar:

  • Upplýsingar sem þú veitir okkur. Til að geta notað ýmsa þjónustu okkar þarftu til dæmis að stofna Google reikning. Þegar þú gerir það biðjum við um ýmsar persónuupplýsingar, svo sem fullt nafn, netfang, símanúmer eða greiðslukortaupplýsingar. Við bjóðum margs konar möguleika á að deila efni og ef þú kýst að nýta þér þá verður þú hugsanlega beðin(n) um að búa til Google prófíl, sýnilegan öllum, þar sem nafn þitt og ljósmynd af þér kunna að birtast.

  • Upplýsingar sem berast okkur gegnum notkun þína á þjónustu okkar. Við söfnum upplýsingum um þá þjónustu sem þú notar og hvernig þú notar hana, til dæmis þegar þú horfir á myndband á YouTube, ferð inn á vefsvæði þar sem auglýsingaþjónusta okkar er notuð eða skoðar og notar auglýsingar og efni frá okkur með gagnvirkum hætti. Meðal slíkra upplýsinga má nefna:

    • Upplýsingar um tæki

      Við söfnum upplýsingum tengdum tækinu sem þú notar (svo sem um gerð vélbúnaðar, útgáfu stýrikerfis, einkvæm auðkenni tækja og farsímakerfið þitt, þar með talið farsímanúmerið). Google mun hugsanlega tengja einkvæm auðkenni tækja eða símanúmerið þitt við Google reikninginn þinn.

    • Upplýsingar úr notkunarskrá

      Þegar þú notar þjónustu okkar eða skoðar efni frá Google söfnum við sjálfkrafa og vistum tilteknar upplýsingar í notkunarskrám á netþjónum. Þetta felur í sér:

      • ítarlegar upplýsingar um það hvernig þú notaðir þjónustu okkar, svo sem um leitarfyrirspurnir.
      • upplýsingar um símnotkun, svo sem um símanúmerið þitt, númer þess sem hringt var í, númer sem símtal var sent í, dagsetningu og tímasetningu símtala, lengd símtala, leiðarupplýsingar um SMS og hvaða gerðar símtölin voru.
      • IP-tala.
      • upplýsingar um atvik við notkun tækisins, svo sem hrun, virkni kerfis, stillingar vélbúnaðar, gerð vafra, tungumál vafra, dagsetningu og tímasetningu fyrirspurnar og tilvísunarslóð.
      • fótspor sem gætu auðkennt vafrann eða Google reikninginn þinn á einkvæman hátt.
    • Staðsetningarupplýsingar

      Þegar þú notar Google þjónustu söfnum við hugsanlega og vinnum úr upplýsingum um raunstaðsetningu þína. Við notum ýmsar tæknilegar aðgerðir til að ákvarða staðsetningu, þ. á m. IP-tölu, GPS og aðra skynjara sem gætu til dæmis veitt Google upplýsingar um nálæg tæki, aðgangsstaði þráðlauss staðarnets og farsímamöstur í grennd við þig.

    • Einkvæm númer forrita

      Einkvæmt númer forrits kann að fylgja notkun tiltekinnar þjónustu. Þegar þú setur upp eða fjarlægir þá þjónustu verður það númer, sem og upplýsingar um uppsetninguna hjá þér (til dæmis stýrikerfið og útgáfunúmer forritsins), hugsanlega sent til Google, eða þegar þjónustan hefur reglubundið samskipti við netþjóna okkar, til dæmis vegna sjálfvirkra uppfærslna.

    • Staðbundin vistun

      Við munum hugsanlega safna og vista upplýsingar (þar með taldar persónuupplýsingar) staðbundið á tækinu þínu með búnaði eins og vefvistun úr vafra (þar með talið HTML 5) og skyndiminni forrita.

    • Fótspor og nafnlaus auðkenni

      Við og samstarfsaðilar okkar notum ýmsar tæknilegar aðferðir til að safna og vista upplýsingar þegar þú notar Google þjónustu, til dæmis að senda eitt eða fleiri fótspor eða nafnlaus auðkenni í tækið þitt. Við notum einnig fótspor og nafnlaus auðkenni þegar þú átt virk samskipti við þjónustu sem við veitum samstarfsaðilum okkar aðgang að, til dæmis auglýsingasíður eða Google eiginleika sem birtast hugsanlega á öðrum síðum.

Hvernig við notum upplýsingarnar sem við söfnum

Við notum upplýsingar sem við söfnum úr allri þjónustu okkar til að veita, viðhalda, vernda og bæta þjónustuna, þróa nýja þjónustu og vernda bæði Google og notendur okkar. Við notum þessar upplýsingar einnig til að bjóða þér sérsniðið efni – svo sem leitarniðurstöður og auglýsingar sem eiga betur við fyrir þig.

Við munum hugsanlega nota nafnið sem þú gafst upp á Google prófílnum þínum í hverri þeirri þjónustu á okkar vegum sem krefst innskráningar á Google reikning. Að auki er hugsanlegt að við skiptum eldri nöfnum, tengdum Google reikningnum þínum, út fyrir það nafn til að tryggja að þú birtist alltaf undir sama nafni, hvaða þjónustu sem þú ert að nota. Ef aðrir notendur hafa þegar netfang þitt eða aðrar persónugreinanlegar upplýsingar um þig kann að vera að þeir fái að sjá upplýsingar sem þú hefur gert sýnilegar almenningi á Google prófílnum þínum, svo sem nafn þitt og ljósmynd af þér.

Ef þú ert með Google reikning er hugsanlegt að við birtum prófílnafnið þitt og -mynd ásamt virkni þinni á Google eða í forritum þriðju aðila sem tengd eru Google reikningnum (t.d. +1 og umsagnir og ummæli sem þú skrifar) í þjónustu okkar, þ. á m. í auglýsingum og öðru auglýsingatengdu efni. Við virðum val þitt þegar kemur að því að takmarka stillingar deilingar eða sýnileika á Google reikningnum.

Þegar þú átt samskipti við Google geymum við afrit af samskiptunum til að auðvelda úrlausnir vandamála sem upp geta komið. Við munum hugsanlega nota netfangið þitt til að upplýsa þig um þjónustu okkar, til dæmis láta þig vita af væntanlegum breytingum eða endurbótum.

Við notum upplýsingar sem við söfnum með fótsporum og öðrum tæknilegum aðferðum, svo sem pixlamerkjum, til að gera upplifun þína ánægjulegri og bæta þjónustuna á allan hátt. Ein af þeim vörum sem við notum til þessa verks í okkar eigin þjónustu er Google Analytics. Þú getur til dæmis breytt tungumálastillingum þínum og þá getum við boðið þér þjónustu á því tungumáli sem þú kýst helst. Þegar við birtum þér sérsniðnar auglýsingar munum við ekki tengja fótspor eða nafnlaus auðkenni við efnisflokka sem teljast viðkvæmir, svo sem kynþátt, trúarbrögð, kynhneigð eða heilsufar.

Sjálfvirk kerfi okkar greina efnið þitt (þ.m.t. tölvupóst) til að veita þér vörueiginleika sem sniðnir eru sérstaklega að þér, t.d. sérsniðnar leitarniðurstöður, sérvaldar auglýsingar og vörn gegn ruslpósti og spilliforritum.

Hugsanlega notum við persónuupplýsingar úr einni þjónustu samhliða upplýsingum, þ.m.t. persónuupplýsingum, úr annarri Google þjónustu – til dæmis til að auðvelda þér að deila efni með fólkinu sem þú þekkir. Við munum ekki nota upplýsingar úr DoubleClick-fótsporum samhliða persónugreinanlegu innihaldi nema við fáum yfirlýst samþykki frá þér.

Við munum ekki nota upplýsingar frá þér í öðrum tilgangi en þeim sem lýst er í persónuverndarstefnunni, nema að fengnu samþykki frá þér.

Google tekur við og vinnur úr persónuupplýsingum á netþjónum sínum í mörgum löndum um víða veröld. Hugsanlega verður unnið úr persónuupplýsingum þínum á netþjóni í öðru landi en þínu heimalandi.

Gegnsæi og valkostir

Fólk hefur mismunandi áherslur varðandi persónuvernd. Markmið okkar er að öllum sé ljóst hvaða upplýsingum við söfnum til að notendur geti tekið upplýsta ákvörðun um hvernig þær eru notaðar. Þú getur til dæmis:

  • Skoðað og stjórnað tilteknum gerðum upplýsinga sem tengdar eru Google reikningnum þínum í gegnum stjórnborð Google.
  • Skoðað og breytt vali þínu varðandi auglýsingarnar sem birtast þér á Google og annars staðar á vefnum, til dæmis flokkum sem gætu vakið áhuga þinn, í auglýsingastillingunum. Með þeim getur þú einnig afþakkað ýmsa auglýsingaþjónustu frá Google.
  • Notað stillingatækið okkar til að skoða og stilla hvernig Google prófíllinn þinn birtist einstaka notendum.
  • Stjórnað því með hverjum þú deilir upplýsingum.
  • Sótt upplýsingar frá margs konar þjónustu á okkar vegum.
  • Valið hvort prófílnafnið þitt og prófílmyndin birtast í meðmælum sem deilt hefur verið og birtast í auglýsingum.

Þú getur einnig stillt vafrann þinn þannig að hann útiloki öll fótspor, þ. á m. fótspor tengd þjónustu okkar, eða láti vita þegar við biðjum um að fá að nota fótspor. Hins vegar er mikilvægt að muna að margar af þjónustusíðum okkar munu hugsanlega ekki virka að fullu ef fótspor eru gerð óvirk. Til dæmis er hugsanlegt að við getum ekki munað kjörstillingar tungumáls.

Upplýsingar sem þú deilir

Í mörgum tilvikum er þér heimilt að deila upplýsingum með öðrum gegnum þjónustu okkar. Hafðu í huga að þegar þú deilir upplýsingum opinberlega kunna þær að verða skráðar sem uppflettiorð fyrir leitarvélar, þar með talið Google. Við bjóðum þér ýmsa valkosti varðandi það að deila efninu þínu eða fjarlægja það.

Að fá aðgang að og uppfæra persónuupplýsingar þínar

Stefna okkar er að veita þér aðgang að öllum persónuupplýsingum um þig þegar þú notar þjónustu okkar. Reynist þær upplýsingar rangar leggjum við áherslu á að þú getir uppfært þær eða eytt þeim á fljótlegan og einfaldan hátt, svo fremi sem við þurfum ekki að halda þeim til haga af lagalegum eða viðskiptalegum ástæðum. Þegar þú uppfærir persónuupplýsingar kann að vera að við biðjum þig að auðkenna þig áður en við vinnum úr beiðninni.

Beiðnum sem innihalda óígrundaðar endurtekningar, krefjast óraunhæfra tæknilegra inngripa (svo sem að þróa nýtt stjórnkerfi eða gera grundvallarbreytingar á fyrirliggjandi verklagi), fela það í sér að persónuöryggi annarra kynni að vera stefnt í hættu eða yrðu mjög erfiðar í framkvæmd (til dæmis sem tengjast upplýsingum vistuðum í afritunarkerfum) kann að verða hafnað.

Við munum veita aðgang að upplýsingum og tækifæri til leiðréttinga án endurgjalds hvenær sem unnt er, nema slíkt feli í sér óraunhæfa fyrirhöfn. Markmið okkar er að veita þjónustu þannig að upplýsingar séu varðar fyrir skemmdum, hvort sem er af ásetningi eða í ógáti. Af þessum sökum kann að vera að afritum vistuðum á virkum netþjónum okkar verði ekki eytt tafarlaust þegar þú eyðir upplýsingum úr þjónustu okkar og að upplýsingarnar verði ekki fjarlægðar úr öryggisafritunarkerfum okkar.

Upplýsingar sem við deilum

Við deilum ekki persónuupplýsingum með fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum utan Google nema einhver eftirfarandi skilyrða eigi við:

  • Leyfi frá þér liggi fyrir

    Við deilum persónuupplýsingum með fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum utan Google ef þú hefur gefið heimild til þess. Við förum fram á valkvætt samþykki áður en viðkvæmum persónuupplýsingum er miðlað.

  • Með lénsstjórum

    Ef Google reikningnum þínum er stjórnað af lénsstjóra (til dæmis fyrir notendur Google Apps) mun lénsstjórinn þinn, sem og allir endursöluaðilar sem veita fyrirtæki þínu notendaþjónustu, hafa aðgang að upplýsingum tengdum Google reikningnum þínum (þar með töldu netfanginu þínu og ýmsum öðrum gögnum). Lénsstjórinn þinn kann að hafa heimild til að:

    • skoða tölfræðileg gögn varðandi reikninginn þinn, svo sem varðandi forritin sem þú hefur sett upp.
    • breyta aðgangsorði reikningsins.
    • loka aðgangi þínum að reikningnum, tímabundið eða varanlega.
    • nálgast eða vista upplýsingar sem eru vistaðar inni á reikningnum þínum.
    • fá sendar reikningsupplýsingar í því skyni að fullnægja viðeigandi lagaskilyrðum, reglugerðum og lagalegum ferlum eða til að framfylgja stjórnsýsluákvæðum.
    • takmarka getu þína til að eyða eða breyta upplýsingum eða persónuverndarstillingum.

    Kynntu þér persónuverndarstefnu lénsstjórans þíns til frekari upplýsinga.

  • Til ytri greiningar gagna

    Við veitum hlutdeildarfélögum okkar eða öðrum fyrirtækjum og einstaklingum sem við treystum persónuupplýsingar til úrvinnslu fyrir okkar hönd, á grundvelli leiðbeininga frá okkur og í samræmi við persónuverndarstefnu okkar og aðrar þær trúnaðar- og öryggisreglur sem við eiga.

  • Af lagalegum ástæðum

    Við deilum persónuupplýsingum með fyrirtækjum, stofnunum eða einstaklingum utan Google ef við teljum, í góðri trú, að aðgangur að þeim, notkun á þeim eða birting á þeim teljist nauðsynleg til að:

    • uppfylla viðeigandi ákvæði laga, reglugerða, lagalegra ferla eða bindandi stjórnvaldsákvarðanir.
    • framfylgja viðeigandi þjónustuskilmálum, þar með talið að rannsaka hugsanleg misnotkunartilvik.
    • greina, koma í veg fyrir eða bregðast á annan hátt við svikum, öryggis- eða tæknivandamálum.
    • verja réttindi, eignir og öryggi Google, notenda okkar eða almenning fyrir skemmdarverkum, eins og lög mæla fyrir um eða leyfa.

Við munum hugsanlega deila uppsöfnuðum, ópersónugreinanlegum upplýsingum með almennum notendum og með samstarfsaðilum okkar, svo sem útgefendum, auglýsendum og tengdum síðum. Við munum til dæmis hugsanlega deila upplýsingum á opinberum vettvangi í því skyni að sýna fram á þróun í almennri notkun á þjónustu okkar.

Ef Google tekur þátt í samruna, yfirtöku eða sölu eigna munum við eftir sem áður tryggja trúnað um allar persónuupplýsingar og senda þeim notendum sem hlut eiga að máli tilkynningu áður en persónuupplýsingar eru fluttar eða falla undir nýja persónuverndarstefnu.

Upplýsingaöryggi

Við leggjum okkur fram við að vernda Google og notendur okkar fyrir óheimilum aðgangi eða óheimilum breytingum, birtingu eða skemmdarverkum á upplýsingum í okkar vörslu. Sérstaklega má nefna að:

  • Í mörgum tilvikum er þjónusta okkar dulkóðuð með SSL.
  • Þegar þú skráir þig inn á Google reikninginn þinn stendur þér til boða staðfesting í tveimur skrefum og eiginleikar fyrir örugga vefleit í Google Chrome.
  • Við endurskoðum verkferli okkar við söfnun, geymslu og úrvinnslu upplýsinga, þar með taldar tæknilegar öryggisráðstafanir, til að verja okkur fyrir kerfisaðgangi án heimilda.
  • Við takmörkum aðgang að persónuupplýsingum við starfsfólk Google, verktaka og umboðsmenn sem þurfa að hafa slíkar upplýsingar í því skyni að geta unnið úr þeim fyrir okkur, og sem lúta ströngum samningsbundnum skilyrðum varðandi trúnað og kunna að sæta refsiaðgerðum eða samningsrofi ef þau skilyrði eru ekki uppfyllt.

Hvenær þessi persónuverndarstefna á við

Persónuverndarstefna okkar er í gildi varðandi alla þjónustu veitta af Google Inc. og hlutdeildarfélögum þess, þar með talið YouTube og þjónustu sem er í boði á öðrum vefsvæðum (svo sem auglýsingaþjónustu okkar), en ekki varðandi þjónustu með sértæka persónuverndarstefnu, sem þessi persónuverndarstefna gildir ekki um.

Persónuverndarstefna okkar tekur ekki til þjónustu sem veitt er af öðrum fyrirtækjum eða einstaklingum, þar með taldar vörur eða vefsvæði sem kunna að birtast í leitarniðurstöðum þínum, vefsvæði sem kunna að bjóða þjónustu tengda Google eða önnur vefsvæði með tengla á vefsvæðum Google. Persónuverndarstefna okkar tekur ekki til verkferla fyrir upplýsinganotkun hjá öðrum fyrirtækjum og stofnunum sem auglýsa þjónustu frá okkur og sem kunna að nota fótspor, pixlamerki og aðrar tæknilegar aðferðir til að miðla og bjóða upp á viðkomandi auglýsingar.

Samræmi og samstarf við eftirlitsaðila

Við metum reglubundið hvernig við uppfyllum ákvæði persónuverndarstefnu okkar. Við fylgjum einnig ýmsum reglurömmum sjálfseftirlits. Þegar okkur berast formlegar, skriflegar kvartanir höfum við samband við kvörtunaraðilann til að fylgja málinu eftir. Við eigum samstarf við viðeigandi eftirlitsaðila, meðal annars persónuverndaryfirvöld á hverjum stað, um úrlausn hvers kyns kvartana vegna flutnings á persónuupplýsingum sem ekki tekst að leysa með notendum án milliliða.

Breytingar

Persónuverndarstefna okkar kann að taka breytingum af og til. Við munum ekki takmarka réttindi þín samkvæmt þessari persónuverndarstefnu án yfirlýsts samþykkis frá þér. Við munum auglýsa allar áætlaðar breytingar á stefnunni á þessari síðu. Reynist breytingarnar veigamiklar munum við kynna þær enn ítarlegar (verulegar breytingar á stefnunni hvað varðar tilteknar þjónustur verða kynntar með tölvupósti). Við munum einnig hafa eldri útgáfur af þessari persónuverndarstefnu aðgengilegar í skráasafni okkar.

Verklag á tiltekinni þjónustu

Eftirfarandi yfirlýsingar gera grein fyrir sértækri persónuverndarstefnu fyrir mismunandi vöruflokka og þjónustu Google sem þú kannt að nota:

Frekari upplýsingar um persónuvernd í vinsælustu vörum okkar fást í leiðsögn um persónuvernd í vörum Google.

Fleira gagnlegt efni tengt persónuvernd og öryggi má finna á stefnu- og reglusíðu Google, þ. á m.:

„aðgangur að persónuupplýsingunum þínum“

Á stjórnborði Google geturðu til dæmis séð sum þeirra gagna sem tengjast Google reikningnum þínum á fljótlegan og einfaldan hátt. Frekari upplýsingar.

„auglýsingarnar sem koma þér mest að gagni“

Ef þú heimsækir til dæmis oft vefsvæði og blogg sem snúast um garðyrkju er mögulegt að þú sjáir garðyrkjutengdar auglýsingar á ferðalagi þínu um vefinn. Frekari upplýsingar.

„auglýsingaþjónusta“

Ef þú heimsækir til dæmis oft vefsvæði og blogg sem snúast um garðyrkju og birta auglýsingar frá okkur er mögulegt að þú farir að sjá auglýsingar sem tengjast því efni á ferðalagi þínu um vefinn. Frekari upplýsingar.

„safna upplýsingum“

Í þessu felast upplýsingar á borð við notkunarupplýsingar þínar og stillingar, tölvupóst í Gmail, G+ prófílinn þinn, myndir, myndskeið, vafraferil, kortaleit, skjöl og annað efni sem Google hýsir. Frekari upplýsingar.

„sameina persónulegar upplýsingar frá einni þjónustu með upplýsingum, þar á meðal persónuupplýsingum, annarrar Google þjónustu“

Þegar þú ert til dæmis skráð(ur) inn á Google reikninginn þinn og leitar með hjálp Google færðu að sjá leitarniðurstöður af vefnum ásamt síðum, myndum og Google+ færslum frá vinum þínum. Fólk sem þekkir þig eða fylgist með þér á Google+ kann einnig að sjá færslurnar þínar og prófíl í sínum niðurstöðum. Frekari upplýsingar.

„tengjast fólki“

Þú gætir til dæmis fengið tillögur að fólki sem þú kannast við eða vilt tengjast á Google+ byggðar á samskiptum þínum við fólk í öðrum vörum Google á borð við Gmail. Fólk sem á í samskiptum við þig kann einnig að fá prófílinn þinn upp sem tillögu. Frekari upplýsingar.

„kreditkort“

Þrátt fyrir að við förum ekki fram á að þú gefir upp greiðslukort við skráningu er staðfesting á aldri með örfærslu á greiðslukort ein leið til að tryggja að þú standist kröfur okkar um lágmarksaldur ef upp kemur sú staða að reikningurinn þinn er gerður óvirkur vegna þess að þú færðir inn fæðingardag sem gefur til kynna að þú hafir ekki náð tilskildum aldri til að vera með Google reikning. Frekari upplýsingar.

„nýsköpun“

Ritvilluleit Google var til dæmis þróuð með því að greina fyrri leit þar sem notendur leiðréttu eigin stafsetningu. Frekari upplýsingar.

„auðkenni tækja“

Tækjaauðkenni gera Google kleift að vita hvaða tæki þú notar til að fá aðgang að þjónustu okkar og laga hana að tækinu eða greina vandamál sem tengjast þjónustu okkar fyrir tiltekin tæki. Frekari upplýsingar.

„upplýsingar um tæki“

Þegar þú opnar til dæmis Google Play úr tölvunni getur Google notað þessar upplýsingar til að hjálpa þér að velja þau tæki sem innkaupin þín eiga að virka í. Frekari upplýsingar.

„bæta upplifun þína sem notanda“

Fótspor gera okkur til dæmis kleift að greina samskipti notenda við þjónustu okkar. Frekari upplýsingar.

Eins og gildir um önnur tækni- og fjarskiptafyrirtæki fær Google oft og tíðum beiðnir frá yfirvöldum og dómstólum um að opinbera gögn notenda. Frekari upplýsingar.

"takmarka stillingar deilingar eða sýnileika"

Þú getur t.d. hagað stillingum þínum þannig að nafn þitt og mynd birtist ekki í auglýsingu. Frekari upplýsingar.

„kann að safna og vinna úr upplýsingum um raunstaðsetningu þína“

Google kort geta til dæmis breytt kortayfirlitinu á þann veg að núverandi staðsetning þín sé í forgrunni. Frekari upplýsingar.

„virkar hugsanlega ekki rétt“

Við notumst til dæmis við fótspor sem kallast „lbcs“ og gerir þér kleift að opna mörg Google skjöl í einum og sama vafranum. Frekari upplýsingar.

"og samstarfsaðilar okkar"

Við leyfum traustum fyrirtækjum að nota fótspor og álíka tækni fyrir auglýsingar og rannsóknir í þjónustu okkar. Frekari upplýsingar.

„símanúmer“

Ef þú bætir til dæmis símanúmeri við sem endurheimtarleið getur Google sent þér SMS-skilaboð með kóða sem gerir þér kleift að endurstilla aðgangsorðið þitt ef þú gleymir því. Frekari upplýsingar.

„vernda Google og notendur okkar“

Ef þú hefur til dæmis áhyggjur af því að einhver óviðkomandi hafi aðgang að tölvupóstinum þínum sýnir eiginleikinn „Síðasta aðgerð“ í Gmail þér upplýsingar um nýlega virkni í pósthólfinu þínu, þ. á m. IP-tölur sem fengið hafa aðgang að póstinum, tengda staðsetningu ásamt tíma og dagsetningu. Frekari upplýsingar.

„deiling“

Með Google+ geturðu til dæmis deilt með ýmsu móti. Frekari upplýsingar.

„fljótlegra og auðveldara að deila með öðrum“

Ef einhver er til dæmis nú þegar tengiliður þinn mun Google fylla nafnið út sjálfkrafa ef þú vilt bæta viðkomandi við sem viðtakanda skeytis í Gmail. Frekari upplýsingar.

„fólkið sem skiptir þig mestu máli á netinu“

Þegar þú slærð til dæmis netfang inn í reitinn fyrir viðtakanda, afrit eða falið afrit í skeyti sem þú ert að skrifa mun Gmail stinga upp á netföngum úr tengiliðunum þínum. Frekari upplýsingar.

„til að auðvelda þér að deila hlutum með fólkinu sem þú þekkir“

Ef þú hefur til dæmis átt í samskiptum við einhvern í Gmail og vilt bæta viðkomandi við sem þátttakanda í Google skjali eða viðburði í Google dagatali auðveldar Google þér það verk með því að fylla netfangið út sjálfkrafa þegar þú byrjar að skrifa nafn hans. Frekari upplýsingar.

„skoða og grípa til aðgerða við auglýsingar okkar“

Við veitum auglýsendum til dæmis reglulega upplýsingar um það hvort við birtum auglýsingar þeirra á síðu og hvort líklegt sé að notendur hafi séð þær (sem gerist til að mynda ekki þegar auglýsing er birt á hluta síðunnar sem notendur flettu ekki að). Frekari upplýsingar.

„Við kunnum að deila opinberlega uppsöfnuðum upplýsingum sem ekki er hægt að nota til að bera kennsl á notendur“

Þegar aragrúi fólks byrjar að leita að einhverju tilteknu getur slíkt veitt mjög gagnlegar upplýsingar um hvað er efst á baugi hverju sinni. Frekari upplýsingar.

"aðgangsstaði þráðlauss staðarnets og farsímamöstur"

Google getur til dæmis ákvarðað gróflega staðsetningu tækisins út frá þekktri staðsetningu farsímamastra í grenndinni. Frekari upplýsingar.

„betri leitarniðurstöður“

Við getum til dæmis gert leitarniðurstöðurnar gagnlegri og áhugaverðari með því að láta myndir, færslur og fleira frá þér og vinum þínum fylgja með.

Frekari upplýsingar

„efnið þitt fjarlægt“

Þú getur til dæmis eytt vefferlinum þínum, blogginu, Google vefsvæði í þinni eigu, YouTube rásinni þinni, Google+ prófílnum eða Google reikningnum í heild.

Sumt af þessu geturðu séð á Google Trends og YouTube Trends.

Google forrit
Aðalvalmynd