Þetta er eldri útgáfa af persónuverndarstefnunni okkar. Skoða núverandi útgáfu eða allar fyrri útgáfur.

Persónuverndarstefna

Síðast breytt: 17. apríl 2017 (skoða eldri útgáfur)

Hægt er að nýta sér þjónustu okkar á ótal mismunandi vegu – til að leita að og deila upplýsingum, til að eiga samskipti við aðra eða til að búa til nýtt efni. Við getum bætt þessa þjónustu enn frekar þegar þú deilir upplýsingum með okkur, til dæmis með því að stofna Google reikning – þá færðu leitarniðurstöður og auglýsingar sem eiga betur við og getur tengst öðrum notendum og deilt efni með þeim á mun einfaldari og hraðvirkari hátt. Þegar þú notar þjónustu okkar viljum við að þér sé fyllilega ljóst á hvaða hátt við notum upplýsingar og hvernig þú getur verndað persónuupplýsingar þínar.

Í persónuverndarstefnu okkar er útskýrt:

  • Hvaða upplýsingum við söfnum og hvers vegna við gerum það.
  • Hvernig þær upplýsingar eru notaðar.
  • Hvaða valkostir boði eru í boði, meðal annars til að fá aðgang að og uppfæra upplýsingarnar.

Við leggjum áherslu á að hafa stefnuna sem einfaldasta en ef þú þekkir ekki hugtök á borð við fótspor (e. cookies), IP-tölur, pixlamerki og vafra ættirðu að byrja á að lesa þér til um þessi lykilhugtök. Google er mjög í mun að vernda einkalíf þitt. Við biðjum þig því að gefa þér tíma til að kynna þér starfshætti okkar, hvort sem þú ert nýr notandi eða gamalkunnugur, og hafa samband ef spurningar vakna.

Upplýsingar sem við söfnum

Við söfnum upplýsingum til að geta veitt öllum notendum okkar betri þjónustu – allt frá því að finna út grundvallaratriði, eins og hvaða tungumál þú notar, til flóknari atriða, svo sem hvaða auglýsingar gætu gagnast þér, hvaða fólk skiptir þig mestu á netinu eða hvaða YouTube myndbönd gætu fallið þér í geð.

Við söfnum upplýsingum á eftirfarandi hátt:

  • Upplýsingar sem þú veitir okkur. Til að geta notað ýmsa þjónustu okkar þarftu til dæmis að stofna Google reikning. Þegar þú gerir það biðjum við um ýmsar persónuupplýsingar, svo sem fullt nafn, netfang, símanúmer eða greiðslukortaupplýsingar til að vista á reikningnum þínum. Við bjóðum margs konar möguleika á að deila efni og ef þú kýst að nýta þér þá verður þú hugsanlega beðin(n) um að búa til Google prófíl, sýnilegan öllum, þar sem nafn þitt og ljósmynd af þér kunna að birtast.

  • Upplýsingar sem berast okkur gegnum notkun þína á þjónustu okkar. Við söfnum upplýsingum um þá þjónustu sem þú notar og hvernig þú notar hana, til dæmis þegar þú horfir á myndskeið á YouTube, ferð inn á vefsvæði þar sem auglýsingaþjónusta okkar er notuð eða skoðar og notar auglýsingar og efni frá okkur. Meðal slíkra upplýsinga má nefna:

    • Upplýsingar um tæki

      Við söfnum upplýsingum tengdum tækinu sem þú notar (svo sem um gerð vélbúnaðar, útgáfu stýrikerfis, einkvæm auðkenni tækja og farsímakerfið þitt, þar með talið farsímanúmerið). Google mun hugsanlega tengja einkvæm auðkenni tækja eða símanúmerið þitt við Google reikninginn þinn.

    • Upplýsingar úr notkunarskrá

      Þegar þú notar þjónustu okkar eða skoðar efni frá Google söfnum við sjálfkrafa og vistum tilteknar upplýsingar í notkunarskrám á netþjónum. Þetta felur í sér:

      • ítarlegar upplýsingar um það hvernig þú notaðir þjónustu okkar, svo sem um leitarfyrirspurnir.
      • upplýsingar um símnotkun, svo sem um símanúmerið þitt, númer þess sem hringt var í, númer sem símtal var sent í, dagsetningu og tímasetningu símtala, lengd símtala, leiðarupplýsingar um SMS og hvaða gerðar símtölin voru.
      • IP-tala.
      • upplýsingar um atvik við notkun tækisins, svo sem hrun, virkni kerfis, stillingar vélbúnaðar, gerð vafra, tungumál vafra, dagsetningu og tímasetningu fyrirspurnar og tilvísunarslóð.
      • fótspor sem gætu auðkennt vafrann eða Google reikninginn þinn á einkvæman hátt.
    • Staðsetningarupplýsingar

      Þegar þú notar Google þjónustu söfnum við hugsanlega og vinnum úr upplýsingum um raunstaðsetningu þína. Við notum ýmsa tækni til að ákvarða staðsetningu, þ. á m. IP-tölu, GPS og aðra skynjara sem gætu til dæmis veitt Google upplýsingar um nálæg tæki, aðgangsstaði þráðlauss staðarnets og farsímamöstur í grennd við þig.

    • Einkvæm númer forrita

      Einkvæmt númer forrits kann að fylgja notkun tiltekinnar þjónustu. Þegar þú setur upp eða fjarlægir þá þjónustu verður það númer, sem og upplýsingar um uppsetninguna hjá þér (til dæmis stýrikerfið og útgáfunúmer forritsins), hugsanlega sent til Google, eða þegar þjónustan hefur reglubundið samskipti við netþjóna okkar, til dæmis vegna sjálfvirkra uppfærslna.

    • Staðbundin vistun

      Við munum hugsanlega safna og vista upplýsingar (þar með taldar persónuupplýsingar) staðbundið á tækinu þínu með búnaði eins og vefvistun úr vafra (þar með talið HTML 5) og skyndiminni forrita.

    • Fótspor og svipuð tækni

      Við og samstarfsaðilar okkar notum ýmsar tæknilegar aðferðir til að safna og vista upplýsingar þegar þú notar Google þjónustu, til dæmis kunnum við að nota fótspor eða svipaða tækni til að bera kennsl á vafrann þinn eða tæki. Við notum þessa tækni einnig til að safna og vista upplýsingar þegar þú átt virk samskipti við þjónustu sem við veitum samstarfsaðilum okkar aðgang að, til dæmis auglýsingaþjónustu eða Google eiginleika sem birtast hugsanlega á öðrum síðum. Google Analytics varan okkar hjálpar fyrirtækjum og eigendum vefsvæða að greina umferð um vefsvæði þeirra og forrit. Þegar Google Analytics upplýsingarnar eru notaðar ásamt auglýsingaþjónustu okkar, svo sem þeirri sem notar DoubleClick fótsporið, eru þær tengdar, af viðskiptavini Google Analytics eða með því að nota tækni frá Google, við upplýsingar um heimsóknir á fleiri vefsvæði.

Upplýsingar sem við söfnum þegar þú ert skráð(ur) inn á Google, auk upplýsinga sem við fáum um þig frá samstarfsaðilum, verða hugsanlega tengdar við Google reikninginn þinn. Þegar upplýsingar eru tengdar við Google reikninginn þinn meðhöndlum við þær sem persónuupplýsingar. Frekari upplýsingar um hvernig þú getur fengið aðgang að, stjórnað eða eytt upplýsingum sem tengdar eru við Google reikninginn þinn eru í hlutanum Gegnsæi og valkostir í þessari stefnu.

Hvernig við notum upplýsingarnar sem við söfnum

Við notum upplýsingar sem við söfnum úr allri þjónustu okkar til að veita, viðhalda, vernda og bæta þjónustuna, þróa nýja þjónustu og vernda bæði Google og notendur okkar. Við notum þessar upplýsingar einnig til að bjóða þér sérsniðið efni – svo sem leitarniðurstöður og auglýsingar sem eiga betur við fyrir þig.

Við munum hugsanlega nota nafnið sem þú gafst upp á Google prófílnum þínum í hverri þeirri þjónustu á okkar vegum sem krefst innskráningar á Google reikning. Að auki er hugsanlegt að við skiptum eldri nöfnum, tengdum Google reikningnum þínum, út fyrir það nafn til að tryggja að þú birtist alltaf undir sama nafni, hvaða þjónustu sem þú ert að nota. Ef aðrir notendur hafa þegar netfang þitt eða aðrar persónugreinanlegar upplýsingar um þig kann að vera að þeir fái að sjá upplýsingar sem þú hefur gert sýnilegar almenningi á Google prófílnum þínum, svo sem nafn þitt og ljósmynd af þér.

Ef þú ert með Google reikning er hugsanlegt að við birtum prófílnafnið þitt og -mynd ásamt virkni þinni á Google eða í forritum þriðju aðila sem tengd eru Google reikningnum (t.d. +1 og umsagnir og ummæli sem þú skrifar) í þjónustu okkar, þ. á m. í auglýsingum og öðru auglýsingatengdu efni. Við virðum val þitt þegar kemur að því að takmarka stillingar deilingar eða sýnileika á Google reikningnum.

Þegar þú átt samskipti við Google geymum við afrit af samskiptunum til að auðvelda úrlausnir vandamála sem upp geta komið. Við munum hugsanlega nota netfangið þitt til að upplýsa þig um þjónustu okkar, til dæmis láta þig vita af væntanlegum breytingum eða endurbótum.

Við notum upplýsingar sem við söfnum með fótsporum og öðrum tæknilegum aðferðum, svo sem pixlamerkjum, til að gera upplifun þína ánægjulegri og bæta þjónustuna á allan hátt. Google Analytics er ein af þeim vörum sem við notum til þessa verks í okkar eigin þjónustu. Þú getur til dæmis breytt tungumálastillingum þínum og þá getum við boðið þér þjónustu á því tungumáli sem þú kýst helst. Þegar við birtum þér sérsniðnar auglýsingar munum við ekki tengja auðkenni frá fótspori eða svipaðri tækni við efnisflokka sem teljast viðkvæmir, svo sem kynþátt, trúarbrögð, kynhneigð eða heilsufar.

Sjálfvirk kerfi okkar greina efnið þitt (þ.m.t. tölvupóst) til að veita þér vörueiginleika sem sniðnir eru sérstaklega að þér, t.d. sérsniðnar leitarniðurstöður, sérvaldar auglýsingar og vörn gegn ruslpósti og spilliforritum.

Hugsanlega notum við persónuupplýsingar úr einni þjónustu samhliða upplýsingum, þ.m.t. persónuupplýsingum, úr annarri Google þjónustu – til dæmis til að auðvelda þér að deila efni með fólkinu sem þú þekkir. Eftir því hverjar reikningsstillingar þínar eru gæti virkni þín á öðrum vefsvæðum og forritum tengst persónuupplýsingunum þínum í þeim tilgangi að bæta þjónustu Google og auglýsingar sem Google birtir.

Við munum ekki nota upplýsingar frá þér í öðrum tilgangi en þeim sem lýst er í persónuverndarstefnunni, nema að fengnu samþykki frá þér.

Google tekur við og vinnur úr persónuupplýsingum á netþjónum sínum í mörgum löndum um víða veröld. Hugsanlega verður unnið úr persónuupplýsingum þínum á netþjóni í öðru landi en þínu heimalandi.

Gegnsæi og valkostir

Fólk hefur mismunandi áherslur varðandi persónuvernd. Markmið okkar er að öllum sé ljóst hvaða upplýsingum við söfnum til að notendur geti tekið upplýsta ákvörðun um hvernig þær eru notaðar. Þú getur til dæmis:

  • Kynntu þér virknistýringar Google og uppfærðu þær til að ákvarða hvers kyns gögn, t.d. vídeó sem þú hefur séð á YouTube eða fyrri leitir, þú vilt að séu vistuð á reikningnum þínum þegar þú notar þjónustu Google. Þú getur einnig notað þessistjórntæki til að stjórna því hvort tiltekin virkni er vistuð í fótsporum eða með sambærilegri tækni á tækinu þínu þegar þú notar þjónustu okkar og ert skráð(ur) út af reikningnum þínum.
  • Skoðað og stjórnað tilteknum gerðum upplýsinga sem tengdar eru Google reikningnum þínum í gegnum stjórnborð Google.
  • Þú getur skoðað og breytt vali þínu varðandi auglýsingar Google sem birtast þér á Google og annars staðar á vefnum, til dæmis flokkum sem gætu vakið áhuga þinn, í auglýsingastillingunum. Þú getur líka notast við þá síðu til að afþakka tiltekna auglýsingaþjónustu frá Google.
  • Stillt hvernig prófíllinn sem tengdur er við Google reikninginn þinn birtist öðrum.
  • Stjórnað því með hverjum þú deilir upplýsingum í gegnum Google reikninginn þinn.
  • Sótt upplýsingar sem tengjast Google reikningnum þínum frá margs konar þjónustu á okkar vegum.
  • Valið hvort prófílnafnið þitt og prófílmyndin birtast í meðmælum sem deilt hefur verið og birtast í auglýsingum.

Þú getur einnig stillt vafrann þinn þannig að hann útiloki öll fótspor, þ. á m. fótspor tengd þjónustu okkar, eða láti vita þegar við biðjum um að fá að nota fótspor. Hins vegar er mikilvægt að muna að margar af þjónustusíðum okkar munu hugsanlega ekki virka að fullu ef fótspor eru gerð óvirk. Til dæmis er hugsanlegt að við getum ekki munað kjörstillingar tungumáls.

Upplýsingar sem þú deilir

Í mörgum tilvikum er þér heimilt að deila upplýsingum með öðrum gegnum þjónustu okkar. Hafðu í huga að þegar þú deilir upplýsingum opinberlega kunna þær að verða skráðar sem uppflettiorð fyrir leitarvélar, þar með talið Google. Við bjóðum þér ýmsa valkosti varðandi það að deila efninu þínu eða fjarlægja það.

Að fá aðgang að og uppfæra persónuupplýsingar þínar

Stefna okkar er að veita þér aðgang að öllum persónuupplýsingum um þig þegar þú notar þjónustu okkar. Reynist þær upplýsingar rangar leggjum við áherslu á að þú getir uppfært þær eða eytt þeim á fljótlegan og einfaldan hátt, svo fremi sem við þurfum ekki að halda þeim til haga af lagalegum eða viðskiptalegum ástæðum. Þegar þú uppfærir persónuupplýsingar kann að vera að við biðjum þig að auðkenna þig áður en við vinnum úr beiðninni.

Beiðnum sem innihalda óígrundaðar endurtekningar, krefjast óraunhæfra tæknilegra inngripa (svo sem að þróa nýtt stjórnkerfi eða gera grundvallarbreytingar á fyrirliggjandi verklagi), fela það í sér að persónuöryggi annarra kynni að vera stefnt í hættu eða yrðu mjög erfiðar í framkvæmd (til dæmis sem tengjast upplýsingum vistuðum í afritunarkerfum) kann að verða hafnað.

Við munum veita aðgang að upplýsingum og tækifæri til leiðréttinga án endurgjalds hvenær sem unnt er, nema slíkt feli í sér óraunhæfa fyrirhöfn. Markmið okkar er að veita þjónustu þannig að upplýsingar séu varðar fyrir skemmdum, hvort sem er af ásetningi eða í ógáti. Af þessum sökum kann að vera að afritum vistuðum á virkum netþjónum okkar verði ekki eytt tafarlaust þegar þú eyðir upplýsingum úr þjónustu okkar og að upplýsingarnar verði ekki fjarlægðar úr öryggisafritunarkerfum okkar.

Upplýsingar sem við deilum

Við deilum ekki persónuupplýsingum með fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum utan Google nema einhver eftirfarandi skilyrða eigi við:

  • Leyfi frá þér liggi fyrir

    Við deilum persónuupplýsingum með fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum utan Google ef þú hefur gefið heimild til þess. Við förum fram á valkvætt samþykki áður en viðkvæmum persónuupplýsingum er miðlað.

  • Með lénsstjórum

    Ef Google reikningnum þínum er stjórnað af lénsstjóra (til dæmis fyrir notendur G Suite) mun lénsstjórinn þinn, sem og allir endursöluaðilar sem veita fyrirtæki þínu notendaþjónustu, hafa aðgang að upplýsingum tengdum Google reikningnum þínum (þar með töldu netfanginu þínu og ýmsum öðrum gögnum). Lénsstjórinn þinn kann að hafa heimild til að:

    • skoða tölfræðileg gögn varðandi reikninginn þinn, svo sem varðandi forritin sem þú hefur sett upp.
    • breyta aðgangsorði reikningsins.
    • loka aðgangi þínum að reikningnum, tímabundið eða varanlega.
    • nálgast eða vista upplýsingar sem eru vistaðar inni á reikningnum þínum.
    • fá sendar reikningsupplýsingar í því skyni að fullnægja viðeigandi lagaskilyrðum, reglugerðum og í tengslum við málsmeðferð eða til að framfylgja beiðnum yfirvalda.
    • takmarka getu þína til að eyða eða breyta upplýsingum eða persónuverndarstillingum.

    Kynntu þér persónuverndarstefnu lénsstjórans þíns til frekari upplýsinga.

  • Til ytri greiningar gagna

    Við veitum hlutdeildarfélögum okkar eða öðrum fyrirtækjum og einstaklingum sem við treystum persónuupplýsingar til úrvinnslu fyrir okkar hönd, á grundvelli leiðbeininga frá okkur og í samræmi við persónuverndarstefnu okkar og aðrar þær trúnaðar- og öryggisreglur sem við eiga.

  • Af lagalegum ástæðum

    Við deilum persónuupplýsingum með fyrirtækjum, stofnunum eða einstaklingum utan Google ef við teljum, í góðri trú, að aðgangur að þeim, notkun á þeim eða birting á þeim teljist nauðsynleg til að:

    • fylgja öllum viðeigandi lögum, reglugerðum, í tengslum við málsmeðferð og beiðnum yfirvalda.
    • framfylgja viðeigandi þjónustuskilmálum, þar með talið að rannsaka hugsanleg misnotkunartilvik.
    • greina, koma í veg fyrir eða bregðast á annan hátt við svikum, öryggis- eða tæknivandamálum.
    • verja réttindi, eignir og öryggi Google, notenda okkar eða almenning fyrir skemmdarverkum, eins og lög mæla fyrir um eða leyfa.

Við munum hugsanlega deila ópersónugreinanlegum upplýsingum opinberlega og með samstarfsaðilum okkar, svo sem útgefendum, auglýsendum og tengdum vefsvæðum. Við munum til dæmis hugsanlega deila upplýsingum á opinberum vettvangi í því skyni að sýna fram á þróun í almennri notkun á þjónustu okkar.

Ef Google tekur þátt í samruna, yfirtöku eða sölu eigna munum við eftir sem áður tryggja trúnað um allar persónuupplýsingar og senda þeim notendum sem hlut eiga að máli tilkynningu áður en persónuupplýsingar eru fluttar eða falla undir nýja persónuverndarstefnu.

Upplýsingaöryggi

Við leggjum okkur fram við að vernda Google og notendur okkar fyrir óheimilum aðgangi eða óheimilum breytingum, birtingu eða skemmdarverkum á upplýsingum í okkar vörslu. Sérstaklega má nefna að:

  • Í mörgum tilvikum er þjónusta okkar dulkóðuð með SSL.
  • Þegar þú skráir þig inn á Google reikninginn þinn stendur þér til boða staðfesting í tveimur skrefum og eiginleikar fyrir örugga vefleit í Google Chrome.
  • Við endurskoðum verkferli okkar við söfnun, geymslu og úrvinnslu upplýsinga, þar með taldar tæknilegar öryggisráðstafanir, til að verja okkur fyrir kerfisaðgangi án heimilda.
  • Við takmörkum aðgang að persónuupplýsingum við starfsfólk Google, verktaka og umboðsmenn sem þurfa að hafa slíkar upplýsingar í því skyni að geta unnið úr þeim fyrir okkur, og sem lúta ströngum samningsbundnum skilyrðum varðandi trúnað og kunna að sæta refsiaðgerðum eða samningsrofi ef þau skilyrði eru ekki uppfyllt.

Hvenær þessi persónuverndarstefna á við

Persónuverndarstefna okkar gildir um alla þjónustu veitta af Google Inc. og hlutdeildarfélögum þess, þar með talið YouTube, þjónustu sem Google býður upp á í Android tækjum og þjónustu sem er í boði á öðrum vefsvæðum (svo sem auglýsingaþjónustu okkar), en ekki um þjónustu með eigin persónuverndarstefnu sem felur ekki í sér þessa persónuverndarstefnu.

Persónuverndarstefna okkar tekur ekki til þjónustu sem veitt er af öðrum fyrirtækjum eða einstaklingum, þar með taldar vörur eða vefsvæði sem kunna að birtast í leitarniðurstöðum þínum, vefsvæði sem kunna að bjóða þjónustu tengda Google eða önnur vefsvæði með tengla á vefsvæðum Google. Persónuverndarstefna okkar tekur ekki til verkferla fyrir upplýsinganotkun hjá öðrum fyrirtækjum og stofnunum sem auglýsa þjónustu frá okkur og sem kunna að nota fótspor, pixlamerki og aðrar tæknilegar aðferðir til að miðla og bjóða upp á viðkomandi auglýsingar.

Samræmi og samstarf við eftirlitsaðila

Við metum reglulega hvernig við uppfyllum ákvæði persónuverndarstefnu okkar. Við fylgjum einnig ýmsum reglurömmum til sjálfseftirlits, þar á meðal EU-US og Swiss-US Privacy Shield Frameworks. Þegar okkur berast formlegar, skriflegar kvartanir höfum við samband við kvörtunaraðilann til að fylgja málinu eftir. Við eigum samstarf við viðeigandi eftirlitsaðila, meðal annarra opinbera eftirlitsaðila með gagnaöryggi á hverjum stað, um úrlausn þeirra kvartana vegna flutnings á persónugögnum sem ekki tekst að leysa með notendum án milliliða.

Breytingar

Persónuverndarstefna okkar kann að taka breytingum af og til. Við munum ekki takmarka réttindi þín samkvæmt þessari persónuverndarstefnu án yfirlýsts samþykkis frá þér. Við munum auglýsa allar áætlaðar breytingar á stefnunni á þessari síðu. Reynist breytingarnar veigamiklar munum við kynna þær enn ítarlegar (verulegar breytingar á stefnunni hvað varðar tilteknar þjónustur verða kynntar með tölvupósti). Við munum einnig hafa eldri útgáfur af þessari persónuverndarstefnu aðgengilegar í skráasafni okkar.

Verklag á tiltekinni þjónustu

Eftirfarandi yfirlýsingar gera grein fyrir sértækri persónuverndarstefnu fyrir mismunandi vöruflokka og þjónustu Google sem þú kannt að nota:

Frekari upplýsingar um persónuvernd í vinsælustu vörum okkar fást í leiðsögn um persónuvernd í vörum Google.

Fleira gagnlegt efni tengt persónuvernd og öryggi má finna á stefnu- og reglusíðu Google, þ. á m.:

„aðgangur að persónuupplýsingunum þínum“

Á stjórnborði Google geturðu til dæmis séð sum þeirra gagna sem tengjast Google reikningnum þínum á fljótlegan og einfaldan hátt. Frekari upplýsingar.

„auglýsingarnar sem koma þér mest að gagni“

Ef þú heimsækir til dæmis oft vefsvæði og blogg sem snúast um garðyrkju er mögulegt að þú sjáir garðyrkjutengdar auglýsingar á ferðalagi þínu um vefinn. Frekari upplýsingar.

„auglýsingaþjónusta“

Ef þú heimsækir til dæmis oft vefsvæði og blogg sem snúast um garðyrkju og birta auglýsingar frá okkur er mögulegt að þú farir að sjá auglýsingar sem tengjast því efni á ferðalagi þínu um vefinn. Frekari upplýsingar.

„og aðra skynjara“

Tækið kann að vera búið skynjurum sem veita upplýsingar sem hjálpa okkur að greina staðsetningu þína betur. Til dæmis er hægt að nota hraðamæli til að ákvarða hluti eins og hraða eða snúðvísi til að greina í hvaða átt er ferðast. Frekari upplýsingar.

„safna upplýsingum“

Í þessu felast upplýsingar á borð við notkunarupplýsingar þínar og stillingar, tölvupóst í Gmail, G+ prófílinn þinn, myndir, myndskeið, vafraferil, kortaleit, skjöl og annað efni sem Google hýsir. Frekari upplýsingar.

„sameina persónulegar upplýsingar frá einni þjónustu með upplýsingum, þar á meðal persónuupplýsingum, annarrar Google þjónustu“

Þegar þú ert til dæmis skráð(ur) inn á Google reikninginn þinn og leitar með hjálp Google færðu að sjá leitarniðurstöður af vefnum ásamt síðum, myndum og Google+ færslum frá vinum þínum. Fólk sem þekkir þig eða fylgist með þér á Google+ kann einnig að sjá færslurnar þínar og prófíl í sínum niðurstöðum. Frekari upplýsingar.

„tengjast fólki“

Þú gætir til dæmis fengið tillögur að fólki sem þú kannast við eða vilt tengjast á Google+ byggðar á samskiptum þínum við fólk í öðrum vörum Google á borð við Gmail. Fólk sem á í samskiptum við þig kann einnig að fá prófílinn þinn upp sem tillögu. Frekari upplýsingar.

„kreditkort“

Þrátt fyrir að við förum ekki fram á að þú gefir upp greiðslukort við skráningu er staðfesting á aldri með örfærslu á greiðslukort ein leið til að tryggja að þú standist kröfur okkar um lágmarksaldur ef upp kemur sú staða að reikningurinn þinn er gerður óvirkur vegna þess að þú færðir inn fæðingardag sem gefur til kynna að þú hafir ekki náð tilskildum aldri til að vera með Google reikning. Frekari upplýsingar.

„nýsköpun“

Ritvilluleit Google var til dæmis þróuð með því að greina fyrri leit þar sem notendur leiðréttu eigin stafsetningu. Frekari upplýsingar.

„auðkenni tækja“

Tækjaauðkenni gera Google kleift að vita hvaða tæki þú notar til að fá aðgang að þjónustu okkar og laga hana að tækinu eða greina vandamál sem tengjast þjónustu okkar fyrir tiltekin tæki. Frekari upplýsingar.

„upplýsingar um tæki“

Þegar þú opnar til dæmis Google Play úr tölvunni getur Google notað þessar upplýsingar til að hjálpa þér að velja þau tæki sem innkaupin þín eiga að virka í. Frekari upplýsingar.

„bæta upplifun þína sem notanda“

Fótspor gera okkur til dæmis kleift að greina samskipti notenda við þjónustu okkar. Frekari upplýsingar.

Eins og gildir um önnur tækni- og samskiptamiðlafyrirtæki fær Google reglulega beiðnir frá yfirvöldum og dómstólum víðsvegar um heiminn um að afhenda gögn notenda. Lögfræðiteymi okkar fer yfir hverja einustu beiðni, burtséð frá eðli hennar, og við streitumst iðulega á móti þegar beiðnirnar virðast óeðlilega víðtækar eða samræmast ekki réttum ferlum. Frekari upplýsingar.

"takmarka stillingar deilingar eða sýnileika"

Þú getur t.d. hagað stillingum þínum þannig að nafn þitt og mynd birtist ekki í auglýsingu. Frekari upplýsingar.

„tengdar við upplýsingar um heimsóknir á fleiri vefsvæði“

Google Analytics notast við eigin fótspor. Gögn sem fengin eru í gegnum Google Analytics er hægt að tengja, af viðskiptavini Google Analytics eða Google með því að nota tækni frá Google, við fótspor frá þriðja aðila, í tengslum við heimsóknir á önnur vefsvæði, til dæmis þegar auglýsandi vill nota gögn sín af Google Analytics til að gera auglýsingar sínar markvissari eða til frekari greiningar á vefumferð. Frekari upplýsingar.

„viðhalda“

Til dæmis höfum við stöðugt eftirlit með kerfum okkar til að tryggja að þau virki sem skyldi og til að finna og lagfæra villur. Frekari upplýsingar.

„kann að safna og vinna úr upplýsingum um raunstaðsetningu þína“

Google kort geta til dæmis breytt kortayfirlitinu á þann veg að núverandi staðsetning þín sé í forgrunni. Frekari upplýsingar.

„virkar hugsanlega ekki rétt“

Við notumst til dæmis við fótspor sem kallast „lbcs“ og gerir þér kleift að opna mörg Google skjöl í einum og sama vafranum. Frekari upplýsingar.

"og samstarfsaðilar okkar"

Við leyfum traustum fyrirtækjum að nota fótspor og álíka tækni fyrir auglýsingar og rannsóknir í þjónustu okkar. Frekari upplýsingar.

„símanúmer“

Ef þú bætir til dæmis símanúmeri við sem endurheimtarleið getur Google sent þér SMS-skilaboð með kóða sem gerir þér kleift að endurstilla aðgangsorðið þitt ef þú gleymir því. Frekari upplýsingar.

„vernda Google og notendur okkar“

Ef þú hefur til dæmis áhyggjur af því að einhver óviðkomandi hafi aðgang að tölvupóstinum þínum sýnir eiginleikinn „Síðasta aðgerð“ í Gmail þér upplýsingar um nýlega virkni í pósthólfinu þínu, þ. á m. IP-tölur sem fengið hafa aðgang að póstinum, tengda staðsetningu ásamt tíma og dagsetningu. Frekari upplýsingar.

„vernda“

Ein ástæða þess að við söfnum IP-tölum og fótsporum til greiningar er til dæmis sú að við viljum vernda þjónustu okkar gegn misnotkun sem gerð er með sjálfvirkum hætti. Frekari upplýsingar.

„veita“

IP-talan sem tengd er tækinu þínu er til dæmis notuð til að senda umbeðin gögn aftur í tækið þitt. Frekari upplýsingar.

„deiling“

Með Google+ geturðu til dæmis deilt með ýmsu móti. Frekari upplýsingar.

„fljótlegra og auðveldara að deila með öðrum“

Ef einhver er til dæmis nú þegar tengiliður þinn mun Google fylla nafnið út sjálfkrafa ef þú vilt bæta viðkomandi við sem viðtakanda skeytis í Gmail. Frekari upplýsingar.

„fólkið sem skiptir þig mestu máli á netinu“

Þegar þú slærð til dæmis netfang inn í reitinn fyrir viðtakanda, afrit eða falið afrit í skeyti sem þú ert að skrifa mun Gmail stinga upp á netföngum úr tengiliðunum þínum. Frekari upplýsingar.

„til að auðvelda þér að deila hlutum með fólkinu sem þú þekkir“

Ef þú hefur til dæmis átt í samskiptum við einhvern í Gmail og vilt bæta viðkomandi við sem þátttakanda í Google skjali eða viðburði í Google dagatali auðveldar Google þér það verk með því að fylla netfangið út sjálfkrafa þegar þú byrjar að skrifa nafn hans. Frekari upplýsingar.

„skoða og grípa til aðgerða við auglýsingar okkar“

Við veitum auglýsendum til dæmis reglulega upplýsingar um það hvort við birtum auglýsingar þeirra á síðu og hvort líklegt sé að notendur hafi séð þær (sem gerist til að mynda ekki þegar auglýsing er birt á hluta síðunnar sem notendur flettu ekki að). Frekari upplýsingar.

„Við kunnum að deila opinberlega uppsöfnuðum upplýsingum sem ekki er hægt að nota til að bera kennsl á notendur“

Þegar aragrúi fólks byrjar að leita að einhverju tilteknu getur slíkt veitt mjög gagnlegar upplýsingar um hvað er efst á baugi hverju sinni. Frekari upplýsingar.

"aðgangsstaði þráðlauss staðarnets og farsímamöstur"

Google getur til dæmis ákvarðað gróflega staðsetningu tækisins út frá þekktri staðsetningu farsímamastra í grenndinni. Frekari upplýsingar.

„betri leitarniðurstöður“

Við getum til dæmis gert leitarniðurstöðurnar gagnlegri og áhugaverðari með því að láta myndir, færslur og fleira frá þér og vinum þínum fylgja með. Frekari upplýsingar.

„efnið þitt fjarlægt“

Þú getur til dæmis eytt vef- og forritavirkni þinni, blogginu þínu, Google vefsvæði í þinni eigu, YouTube rásinni þinni, Google+ prófílnum eða Google reikningnum þínum í heild. Frekari upplýsingar.

Hluta af þessu getur þú séð á Google Trends og YouTube Trending Videos. Frekari upplýsingar.

„virkni þín á öðrum vefsvæðum og forritum“

Þessi virkni gæti átt rætur að rekja til notkunar þinnar á Google vörum eins og Chrome Sync eða heimsókna á vefsvæði og forrit sem eru í samstarfi við Google. Mörg vefsvæði og forrit eru í samstarfi við Google til að bæta efni sitt og þjónustu. Til dæmis kann vefsvæði að nota auglýsingaþjónustu okkar (eins og AdSense) eða greiningartól (eins og Google Analytics). Þessar vörur deila upplýsingum um virkni þína á Google og, allt eftir reikningsstillingum þínum og vörunum sem verið er að nota (t.d. þegar samstarfsaðili notar Google Analytics með auglýsingaþjónustu okkar), þessi gögn gætu verið tengd persónuupplýsingunum þínum. Frekari upplýsingar.

Google forrit
Aðalvalmynd