Þetta er eldri útgáfa af persónuverndarstefnunni okkar. Hér geturðu skoðað núverandi útgáfu persónuverndarstefnunnar.

„sameina persónulegar upplýsingar frá einni þjónustu með upplýsingum, þar á meðal persónuupplýsingum, annarrar Google þjónustu“

Dæmi

  • Þegar þú ert til dæmis skráð(ur) inn á Google reikninginn þinn og leitar með hjálp Google færðu að sjá leitarniðurstöður af opnum vef ásamt síðum, myndum og Google+ færslum frá vinum þínum. Fólk sem þekkir þig eða fylgist með þér á Google+ kann einnig að sjá færslurnar þínar og prófíl í sínum niðurstöðum. Þú getur líka fundið viðeigandi upplýsingar úr efninu sem þú átt í öðrum vörum Google sem þú notar, svo sem Gmail og Google dagatali.
  • Ef þú hyggur á ferðalag til Ítalíu og leitar að „flórens“ á Google færðu hugsanlega upp í leitarniðurstöðum myndir eða greinar um Flórens frá vinum þínum. Þessar niðurstöður auðvelda þér að kanna meðmæli vina þinna og brydda upp á samræðum um hvaða kennileiti vert er að sjá. Frekari upplýsingar.
  • Google Now notast við gögn sem þú kannt að hafa vistað í öðrum vörum Google. Ef þú hefur til dæmis vistað leit í vefferlinum þínum getur Google Now birt upplýsingaspjöld sem innihalda íþróttaúrslit, flugupplýsingar og fleira byggt á þessari fyrri leit. Kíktu á google.com/history/ til að hafa umsjón með vefferlinum þínum. Þú getur eytt eða gert hlé á upplýsingasöfnun vefferilsins og samt notað Google Now áfram, en tilteknar upplýsingar munu þá ekki birtast. Frekari upplýsingar.
  • Ef þú ert með færslu í Google dagtali vegna viðskiptafundar getur Google Now kannað umferðaraðstæður og stungið upp á hvenær best er að leggja af stað til að mæta tímanlega á fundinn.
Google forrit
Aðalvalmynd