Notkun Google á fótsporum

Þessi síða lýsir þeim gerðum fótspora, og svipaðri tækni, sem Google notar. Einnig er útskýrt hvernig Google og samstarfsaðilar þess nota fótspor í auglýsingastarfsemi.

Fótspor eru litlir textabútar sem eru sendir í vafrann þinn frá vefsvæði sem þú heimsækir. Vefsvæðið notar fótspor til að varðveita upplýsingar um heimsóknina þína í því skyni að gera næstu heimsókn á vefsvæðið auðveldari og gagnlegri. Svipuð tækni getur haft sömu virkni, t.d. staðbundin geymsla og einkvæm auðkenni sem eru notuð til að auðkenna forrit eða tæki, pixlamerki. Fótsporin og svipuð tækni sem er fjallað um á þessari síðu er hægt að nota í þeim tilgangi sem lýst er hér fyrir neðan.

Lestu persónuverndarstefnuna til að fá upplýsingar um hvernig við verndum persónuupplýsingar þínar við notkun fótspora og annarra upplýsinga.

Gerðir fótspora og svipuð tækni sem Google notar

Sum eða öll fótsporin eða svipuð tækni sem lýst er hér fyrir neðan kunna að vera vistuð í vafranum þínum, forritinu eða tækinu. Hægt er að stjórna notkun fótspora og hafna notkun tiltekinna fótspora á g.co/privacytools. Þú getur einnig stjórnað fótsporum í vafranum (þótt slíkur sýnileiki sé ef til vill ekki til staðar í vöfrum sumra snjalltækja). Sumri tækni er hægt að stjórna í stillingum hvers tækis eða forrits.

Virkni

Fótspor og svipuð tækni sem snýr að virkni gerir þér kleift að nota eiginleika sem eru ómissandi í þjónustunni. Atriði sem teljast ómissandi í þjónustu eru meðal annars að muna val og kjörstillingar á borð við tungumálaval, að geyma upplýsingar sem tengjast hverri lotu á borð við innihald innkaupakörfu, að virkja eiginleika eða ljúka verkefnum sem þú biður um og að fínstilla vörur sem eiga þátt í að viðhalda og bæta viðkomandi þjónustu.

Sum fótspor og svipuð tækni eru notuð til að viðhalda kjörstillingunum þínum. Flestir notendur Google-þjónusta eru t.d. með fótspor sem heitir „NID“ eða „_Secure-ENID“ í vafranum, en það fer eftir fótsporavalinu hverju sinni. Þessi fótspor eru notuð til að muna kjörstillingarnar þínar og aðrar upplýsingar, eins og val á tungumáli, hversu margar niðurstöður þú vilt að birtist á hverri leitarniðurstöðusíðu (t.d. 10 eða 20) og hvort þú vilt hafa kveikt á SafeSearch-síu Google eða ekki. Hvert „NID“-fótspor rennur út 6 mánuðum eftir síðustu notkun notanda en „_Secure-ENID“-fótsporið geymir upplýsingar í 13 mánuði. Fótsporin „VISITOR_INFO1_LIVE“ og „__Secure-YEC“ þjóna svipuðum tilgangi á YouTube og þau eru einnig notuð til að greina og leysa vandamál innan þjónustunnar. Þessi fótspor geyma upplýsingar í 6 mánuði og 13 mánuði hvort um sig.

Önnur fótspor og svipuð tækni eru notuð til að viðhalda og bæta upplifun þína innan tiltekinnar lotu. YouTube notar t.d. fótsporið „PREF“ til að geyma upplýsingar eins og valdar síðustillingar og kjörstillingar spilunar eins og skýrt val á sjálfvirkri spilun, stokkun efnis og stærð spilara. Á YouTube Music eru þessar kjörstillingar m.a. hljóðstyrkur, endurtekin spilun og sjálfvirk spilun. Þetta fótspor rennur út 8 mánuðum eftir síðustu notkun notandans. Fótsporið „pm_sess“ á einnig þátt í að viðhalda vafralotu notanda og það geymir upplýsingar í 30 mínútur.

Fótspor og svipuð tækni kunna einnig að vera notuð til að bæta afköst Google-þjónusta. Sem dæmi bætir fótsporið „CGIC“ birtingu leitarniðurstaðna með því að fylla sjálfvirkt út leitarfyrirspurnir út frá því sem notandinn slær fyrst inn. Þetta fótspor geymir upplýsingar í 6 mánuði.

Google notar fótsporið „SOCS“, sem geymir upplýsingar í 13 mánuði, til að vista stöðu notanda varðandi fótsporaval.

Öryggi

Fótspor og svipuð tækni sem snýr að öryggi hjálpa til við að auðkenna notendur, koma í veg fyrir svik og vernda notendur þegar þeir nota þjónustu.

Fótsporin og svipuð tækni sem er notuð til að auðkenna notendur hjálpa til við að tryggja að enginn nema eigandi reiknings geti opnað viðkomandi reikning. Til dæmis innihalda fótspor sem heita „SID“ og „HSID“ stafrænt undirritaðar og dulkóðaðar skrár yfir Google-reikningskenni notanda og tímasetningu síðustu innskráningar. Með því að nota þessi fótspor getur Google lokað á margar tegundir árása, svo sem tilraunir til að stela upplýsingum af eyðublöðum sem eru send í Google-þjónustum.

Sum fótspor og svipuð tækni eru notuð til að greina ruslefni, svik og misnotkun. Fótsporin „pm_sess“ og „YSC“ ganga t.d. úr skugga um að beiðnir í vafralotu komi frá notandanum en ekki frá öðrum vefsvæðum. Þessi fótspor koma í veg fyrir að skaðleg vefsvæði framkvæmi aðgerðir fyrir hönd notanda án vitundar notandans. Fótsporið „pm_sess“ geymir upplýsingar í 30 mínútur en fótsporið „YSC“ geymir upplýsingar á meðan vafralota notanda stendur yfir. Fótsporin „__Secure-YEC“ og „AEC“ eru notuð til að greina ruslefni, svik og misnotkun til að koma í veg fyrir að auglýsendur séu rukkaðir ranglega fyrir sviksamlegar eða ógildar birtingar auglýsinga eða gagnvirkni sem tengist auglýsingum og einnig til að sjá til þess að YouTube-höfundar í þjónustu YouTube fyrir samstarfsaðila fái sanngjarna umbun. Fótsporið „AEC“ geymir upplýsingar í 6 mánuði og fótsporið „__Secure-YEC“ geymir upplýsingar í 13 mánuði.

Greining

Fótspor og svipuð tækni sem snúa að greiningum eiga þátt í gagnasöfnun í þeim tilgangi að hjálpa þjónustum að fá upplýsingar um hvernig notendur nota tiltekna þjónustu. Þessar upplýsingar gera þjónustum kleift að bæta efni og búa til betri eiginleika sem bæta upplifun þína.

Sum fótspor og svipuð tækni auðvelda vefsvæðum og forritum að skilja hvernig notendur nota þjónustu þeirra. Google Analytics notar t.d. ýmis fótspor til að safna upplýsingum fyrir hönd fyrirtækja sem nota Google Analytics-þjónustuna og sendir svo viðkomandi fyrirtækjum notkunarupplýsingar um vefsvæði án þess að auðkenna einstaka notendur. „_ga“ er helsta fótsporið sem Google Analytics notar. Það gerir þjónustunni kleift að greina á milli notenda og geymir upplýsingar í 2 ár. Öll vefsvæði sem innleiða Google Analytics, þ.m.t. Google-þjónustur, nota „_ga“-fótsporið. Hvert „_ga“-fótspor er einkvæmt fyrir tiltekinn eiginleika svo ekki er hægt að nota það til að rekja virkni tiltekins notanda eða vafra á milli ótengdra vefsvæða.

Google-þjónustur nota einnig fótsporin „NID“ og „_Secure-ENID“ í Google-leit og fótsporin „VISITOR_INFO1_LIVE“ og „__Secure-YEC“ á YouTube til að framkvæma greiningar. Google-snjallforrit kunna einnig að nota einkvæm auðkenni á borð við „notkunarauðkenni Google“ til greininga.

Auglýsingar

Google notar auglýsingafótspor, þar á meðal til að birta, búa til og sérsníða auglýsingar (allt eftir stillingunum þínum á myadcenter.google.com og adssettings.google.com/partnerads), takmarka hversu oft auglýsing birtist hverjum notanda, hætta birtingu auglýsinga sem þú vilt ekki sjá og til að mæla árangur auglýsinga.

Fótsporið „NID“ er notað til að birta útskráðum notendum Google-auglýsingar í Google-þjónustum, en fótsporin „ANID“, „IDE“ og „id“ eru notuð til að birta Google-auglýsingar á vefsvæðum utan Google. Snjallauglýsingakenni á borð við auglýsingakenni Android (AdID) eru notuð í svipuðum tilgangi í snjallforritum, en það fer eftir stillingum hvers tækis. Ef þú hefur kveikt á sérsniðnum auglýsingum eru fótsporin „ANID“ og „IDE“ notuð til að sérsníða auglýsingarnar sem þú sérð. Ef þú hefur slökkt á sérsniðnum auglýsingum eru fótsporin „ANID“ og „id“ notuð til að muna valið svo þú sjáir ekki sérsniðnar auglýsingar. Fótsporið „NID“ rennur út 6 mánuðum eftir síðustu notkun notanda. Fótsporin „ANID“, „IDE“ og „id“ geyma upplýsingar í 13 mánuði innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES), í Sviss og Bretlandi en í 24 mánuði allsstaðar annarsstaðar.

Aðrar Google þjónustur á borð við YouTube kunna einnig að nota þessi og önnur fótspor og aðra tækni, t.d. fótsporið „VISITOR_INFO1_LIVE“, í tengslum við auglýsingar, en það fer eftir auglýsingastillingunum hjá þér.

Sum fótspor og svipuð tækni sem tengjast auglýsingum eru ætluð notendum sem skrá sig inn til að nota Google-þjónustur. Fótsporið „DSID“ er t.d. notað til að bera kennsl á innskráðan notanda á vefsvæðum utan Google svo tekið sé tillit til sérsniðsstillinga auglýsinga hjá hverjum notanda. Fótsporið „DSID“ geymir upplýsingar í 2 vikur.

Fyrirtæki geta auglýst í Google þjónustum í gegnum auglýsingavettvang Google en einnig á vefsvæðum utan Google. Sum fótspor auðvelda birtingu auglýsinga frá Google á vefsvæðum þriðja aðila og eru stillt á léni vefsvæðisins sem þú heimsækir. Fótsporið „_gads“ gerir vefsvæðum t.d. kleift að birta auglýsingar frá Google. Fótspor sem hefjast á „_gac_“ eru frá Google Analytics og auglýsendur nota þau til að mæla notendavirkni og árangur auglýsingaherferða. „_gads“-fótsporin geyma upplýsingar í 13 mánuði og „_gac_“-fótsporin geyma upplýsingar í 90 daga.

Sum fótspor og svipuð tækni eru notuð til að mæla árangur auglýsinga og auglýsingaherferða og viðskiptahlutfall auglýsinga frá Google á vefsvæðum sem þú heimsækir. Sem dæmi má nefna fótspor sem hefjast á „_gcl_“. Auglýsendur nota þau til að sjá hversu oft notendur sem smella á auglýsingar frá þeim velja að lokum einhverja aðgerð á vefsvæðum þeirra, t.d. að kaupa vörur. Fótspor sem mæla viðskiptahlutfall eru ekki notuð til að sérsníða auglýsingar. Fótspor sem hefjast á „_gcl_“ geyma upplýsingar í 90 daga. Svipaða tækni á borð við auglýsingakenni í Android-tækjum má einnig nota til að mæla árangur auglýsinga og herferða. Þú getur stjórnað stillingum auglýsingakennis í Android-tækinu þínu.

Nánari upplýsingar um fótspor sem eru notuð í tengslum við auglýsingar má finna hér.

Sérstillingar

Fótspor og svipuð tækni sem tengjast sérsniði bæta upplifun þína með því að bjóða upp á sérsniðið efni og eiginleika í samræmi við stillingarnar þínar á g.co/privacytools eða stillingar forritsins eða tækisins sem þú ert að nota.

Sérsniðið efni og eiginleikar fela m.a. í sér gagnlegri niðurstöður og tillögur, sérsniðna YouTube-heimasíðu og auglýsingar sem eru sérsniðnar að þínu áhugasviði. Fótsporið „VISITOR_INFO1_LIVE“ kann t.d. að kveikja á sérsniðnum tillögum á YouTube sem byggjast á fyrra áhorfi og leitum. Fótsporið „NID“ er síðan notað til að bjóða upp á sérsniðna sjálfvirka útfyllingu í leit þegar þú slærð inn leitarfyrirspurnir. Þessi fótspor renna út 6 mánuðum eftir síðustu notkun.

Annað fótspor, „UULE“, sendir upplýsingar um nákvæma staðsetningu úr vafranum þínum til Google-þjóna svo að Google geti birt þér niðurstöður sem passa við staðsetningu þína. Notkun þessa fótspors fer eftir vafrastillingunum þínum og því hvort þú sért með kveikt á staðsetningu í vafranum. Fótsporið „UULE“ geymir upplýsingar í allt að 6 klukkustundir.

Jafnvel þótt þú hafnir fótsporum og svipaðri tækni sem er notuð við sérsnið kann ósérsniðið efni og eiginleikar sem þú sérð samt sem áður að byggjast á samhengisbundnum þáttum á borð við staðsetningu, tungumál, gerð tækis eða efnið sem þú horfir á hverju sinni.

Umsjón með fótsporum í vafranum

Í flestum vöfrum er hægt að stjórna stillingum og notkun fótspora við notkun vafrans. Einnig er hægt að hreinsa fótspor og vefskoðunargögn. Vafrinn kann einnig að bjóða upp á stillingar til að stjórna fótsporum á hverju vefsvæði fyrir sig. Í stillingum Google Chrome á chrome://settings/cookies er t.d. hægt að velja að eyða fyrirliggjandi fótsporum, leyfa eða loka á öll fótspor og stilla fótspor á vefsvæðum. Google Chrome býður einnig upp á huliðsstillingu sem eyðir vafraferlinum þínum og hreinsar fótspor úr huliðsgluggum í tækinu eftir að þú lokar öllum huliðsgluggum.

Umsjón með svipaðri tækni í forritum og tækjum

Í flestum snjalltækjum og forritum er hægt að stjórna því hvernig svipuð tækni á borð við einkvæm auðkenni, sem eru notuð til að auðkenna forrit eða tæki, er stillt og notuð. Í stillingum tækja er til dæmis hægt að stjórna auglýsingakenni Android-tækja eða Apple en auðkennum forrita er almennt hægt að stjórna í stillingum viðkomandi forrits.

Google forrit
Aðalvalmynd