Kynning

Markmið Google er að koma skipulagi á upplýsingar heimsins og gera þær aðgengilegar og gagnlegar. Staðsetningarupplýsingar eru mikilvægur hluti af því markmiði. Hvort sem það er til að veita þér akstursleiðsögn, ganga úr skugga um að leitarniðurstöður innihaldi hluti í nágrenni við þig eða til að sýna þér annatíma veitingahúsa geta staðsetningarupplýsingar bætt upplifun þína á Google og gert hana gagnlegri.

Staðsetningarupplýsingar auðvelda okkur einnig að veita þér ákveðna grunneiginleika, eins og vefsvæði á réttu tungumáli eða til að gæta öryggis Google-þjónusta.

Persónuverndarstefna Google lýsir því hvernig Google notar gögn, þ.m.t. staðsetningarupplýsingar, þegar þú notar vörur og þjónustur Google. Á þessari síðu finnurðu frekari upplýsingar um hvaða staðsetningarupplýsingar Google notar og hvernig þú getur stjórnað notkun þeirra. Sum gagnameðhöndlun er hugsanlega frábrugðin fyrir notendur undir 18 ára aldri. Frekari upplýsingar má finna í upplýsingum um persónuvernd Google-reikninga og persónuverndarhandbók Google fyrir unglinga.

Hvernig notar Google staðsetningarupplýsingar?

Notkun Google á staðsetningarupplýsingum er mismunandi eftir þjónustunni eða eiginleikanum sem er notaður hverju sinni og hún veltur einnig á tæki og reikningsstillingum notandans. Eftirfarandi eru nokkrar helstu ástæðurnar fyrir notkun Google á staðsetningarupplýsingum.

Til að gera upplifun notenda gagnlega

Google gæti notað eða vistað staðsetningarupplýsingar til að veita fólki gagnlega þjónustu þegar það notar Google-vörur, t.d. til að birta staðbundnar leitarniðurstöður hraðar, umferðarspár fyrir daglegar ferðir milli vinnustaðar og heimilis og tillögur sem taka tillit til aðstæðna einstaklings. Til dæmis er líklegt að einhver sem leitar að sýningatímum kvikmynda vilji sjá kvikmyndir í sýningu í sínu hverfi en ekki annarri borg. Staðsetningarupplýsingar í Google-kortum hjálpa fólki að finna staðsetningu sína á korti og komast á staði sem það vill heimsækja.

Til að hjálpa fólki að muna hvaða staði það hefur heimsótt

Tímalínan gerir fólki kleift að fara aftur í tímann og rifja upp staðina sem það hefur heimsótt með innskráðu tækin sín. Tímalína er Google-reikningsstilling sem býr til kort yfir staðina sem þú hefur heimsótt og leiðirnar sem þú hefur farið með tækin þín. Ef þú velur að nota tímalínu verður nákvæm staðsetning tækisins reglulega vistuð á persónulegu korti og í tækjunum þínum, jafnvel þótt Google-forrit séu ekki í notkun. Hægt er að skoða og eyða þessum upplýsingum hvenær sem er á tímalínunni.

Til að aðstoða fólk við að finna hluti fyrr og fá gagnlegri niðurstöður

Ferill leitarþjónusta er til dæmis Google-reikningsstilling sem gerir innskráðum notendum kleift að vista virkni og tengdar upplýsingar á borð við staðsetningu úr þjónustum á borð við Leit, Kort og Shopping. Þegar kveikt er á stillingunni „Sérsniðnar tillögur í leitarþjónustum“ kunna þessar þjónustur að veita þér niðurstöður, ritstýrða strauma og gervigreindarsvör sem eiga við um svæði sem þú hefur leitað frá áður.

Til að sýna gagnlegri auglýsingar

Staðsetningarupplýsingar geta auðveldað Google að birta þér gagnlegri auglýsingar. Þegar þú leitar að einhverju á borð við „skóbúðir nálægt mér“ er hægt að nota staðsetningarupplýsingar til að birta þér auglýsingar frá skóbúðum nálægt þér. Eða ef þú leitar til dæmis að gæludýratryggingum kunna auglýsendur að birta ólíkar tryggingar fyrir mismunandi svæði. Kynntu þér hvernig staðsetningarupplýsingar eru notaðar til að birta auglýsingar.

Til að gera upplifunina öruggari

Google notar upplýsingar um staðsetningu þína til að veita tilteknar grunnþjónustur, s.s. að gæta að öryggi reikningsins þíns með því að greina óvenjulega virkni eða innskráningu frá nýrri borg.

Til að sýna nafnlaus gögn um samfélagsþróun, mat og í rannsóknartilgangi

Google notar einnig samansafnaðar, nafnlausar staðsetningarupplýsingar fyrir rannsóknir og til að sýna samfélagsþróun.

Skoðaðu persónuverndarstefnu Google til að sjá fleiri notkunarmöguleika staðsetningarupplýsinga.

Hvernig virkar staðsetning í Android-tækjum og -forritum?

Þú getur notað staðsetningu tækisins til að fá staðbundnar leitarniðurstöður, samgönguáætlanir og til að finna nálæga veitingastaði. Android-tækjastillingar fyrir snjallsíma eða spjaldtölvur gera þér kleift að stjórna því hvort staðsetningarþjónusturnar í tækinu áætla staðsetningu og hvort og hvernig tiltekin forrit og þjónustur í tækinu geta notað staðsetningu tækisins.

Svona geturðu stjórnað því hvernig forrit nota staðsetningu tækis

Þú getur stjórnað því hvaða forrit hafa heimild til að nota staðsetningu tækisins í Android-tækjastillingunum. Stillingarnar bjóða upp á stýringar sem gera þér kleift að velja hvort forrit hafi aðgang að nákvæmri eða áætlaðri staðsetningu. Við höfum bætt við stýringum sem gera þér kleift að velja hvort forrit hafi aðgang að staðsetningu tækisins alltaf, aðeins þegar forritið er í notkun, þurfi að biðja um heimild í hvert skipti eða aldrei. Tiltækileiki þessara stillinga og stýringa fer eftir Android-útgáfunni sem tækið keyrir. Nánar.

Svona virkar staðsetning tækis

Android-tæki áætla staðsetningu með mismunandi inntaki, í samræmi við stillingar tækisins. Þar á meðal eru GPS, skynjarar (t.d. hraðamælir, snúðvísir, segulskynjari og loftvog), merki farsímakerfa og WiFi-merki. Hægt er að nota viðkomandi inntak til að meta staðsetningu með hámarksnákvæmni. Staðsetningin er síðan notuð í forritum og þjónustum í tækjum með áskildar heimildir. Nánar um staðsetningarstillingar Android-tækisins.

Merki farsímakerfa og WiFi-merki geta hjálpað Android að áætla staðsetningu tækisins, einkum þar sem GPS-merki eru ekki tiltæk eða ónákvæm, þ.m.t. á fjölmennum þéttbýlissvæðum eða innandyra. Staðsetningarnákvæmni Google (GLA, einnig þekkt sem staðsetningarþjónusta Google) er Google-þjónusta sem notar þessi merki til að bæta staðsetningaráætlun tækisins.

Þegar kveikt er á GLA veitir eiginleikinn nákvæmari staðsetningu með því að safna staðsetningarupplýsingum úr Android-tækinu þínu reglulega – þ. á m. GPS og upplýsingum um WiFi-aðgangspunkta, farsímakerfi og skynjara tækis – með tímabundnu, breytilegu auðkenni tækis sem er ekki tengt neinum ákveðnum einstaklingi. GLA notar þessar upplýsingar til að bæta staðsetningarnákvæmni og veita staðsetningarbundna þjónustu, þar á meðal með því að búa til hópvistunarkort af WiFi-aðgangspunktum og farsímakerfisturnum.

Þú getur slökkt á GLA hvenær sem er í staðsetningarstillingum Android-tækisins. Staðsetning Android-tækisins heldur áfram að virka jafnvel þótt slökkt sé á GLA og tækið reiðir sig þá aðeins á GPS og skynjara tækis til að áætla staðsetningu tækisins.

Hvernig veit Google staðsetningu mína?

Í samræmi við þær vörur sem þú notar og þær stillingar sem þú velur getur Google notað ólíkar tegundir staðsetningarupplýsinga til að gera tilteknar vörur og þjónustur sem þú notar gagnlegri.

Staðsetningarupplýsingar kunna að fást með merkjum í rauntíma, eins og IP-tölu eða frá tækinu, en einnig með vistaðri virkni á vefsvæðum og í þjónustum Google. Eftirfarandi eru helstu leiðirnar sem Google notar til að fá upplýsingar um staðsetningu þína.

Frá IP-tölunni þinni

IP-tala, einnig kölluð vistfang tölvu, er tala sem netþjónustan þín úthlutar tölvunni eða tækinu. IP-tölur eru notaðar til að tengja tækin þín við vefsvæðin og þjónusturnar sem þú notar.

Líkt og önnur netþjónusta getur Google notað upplýsingar um svæðið sem þú ert á til að veita þér ákveðna grunnþjónustu, gagnlegar niðurstöður – t.d. þegar einhver leitar og spyr hvað klukkan er – eða til að gæta að öryggi reikningsins þíns með því að greina óvenjulega virkni á borð við innskráningu í nýrri borg.

Hafðu í huga: Tæki þurfa IP-tölu til að geta sent og móttekið netumferð. IP-tölur eru gróflega byggðar á staðsetningu. Það þýðir að öll forrit, þjónustur eða vefsvæði sem þú notar, þar á meðal google.com, geta hugsanlega áætlað og notað tilteknar upplýsingar um svæðið sem þú ert á út frá IP-tölunni þinni.

Úr vistaðri virkni

Ef þú ert skráð(ur) inn á Google-reikninginn þinn og kveikt er á tilteknum ferilstýringum, s.s. leitarþjónustuferli og vef- og forritavirkni, verða virknigögn þín á vefsvæðum og í forritum og þjónustum Google hugsanlega vistuð sem ferill á Google-reikningnum þínum. Sum virkni inniheldur hugsanlega upplýsingar um svæðið sem þú varst á þegar þú notaðir Google-þjónustuna. Þegar þú leitar að einhverju innan svæðis nær leitin yfir a.m.k. 3 ferkílómetra eða stækkar þar til a.m.k. 1000 manns eru innan svæðisins. Þetta hjálpar til við að gæta persónuverndar þinnar.

Í sumum tilfellum eru svæði sem þú hefur leitað á áður notuð til að meta hvaða staðsetning hentar leitinni þinni. Ef þú leitar til dæmis að kaffihúsum þegar þú ert í Laugardalnum, gæti Google birt leitarniðurstöður í Laugardalnum í framtíðinni.

Þú getur skoðað og stjórnað því hvernig virknigögn eru vistuð á Google-reikningnum þínum í Mín virkni.

Ef þú ert ekki innskráð(ur) á Google-reikninginn þinn kann Google að vista tilteknar staðsetningarupplýsingar úr fyrri leitum úr tækinu sem þú notar til að skila gagnlegri niðurstöðum og tillögum. Ef þú slekkur á sérsniði Leitar mun Google ekki nota fyrri leitarvirkni til að áætla staðsetningu þína. Nánar um að fara huldu höfði þegar þú leitar og vafrar.

Út frá heimilisfangi eða heimilisfangi vinnu sem þú hefur vistað

Þú velur hugsanlega að vista mikilvæga staði á Google-reikningnum þínum, t.d. heimilið eða vinnustaðinn. Ef þú skráir heimilisfang eða heimilisfang vinnu er hægt að nota þau til að auðvelda þér lífið, t.d. sýna þér leiðarlýsingu eða niðurstöður nær heimilinu eða vinnunni og í auglýsingaskyni.

Þú getur breytt eða eytt heimilisfangi eða heimilisfangi vinnu hvenær sem er á Google-reikningnum þínum.

Úr tækinu

Svona nota Google-forrit staðsetningu úr tækinu

Tæki bjóða upp á stillingar og heimildir sem þú getur notað til að stjórna því hvort forrit hafi aðgang að nákvæmri staðsetningu þinni, þ.m.t. Google-forrit á borð við Leit og Kort. Nákvæm staðsetning getur komið sér vel í forritum á borð við Google-kort til að veita leiðarlýsingar eða gagnlegar leitarniðurstöður í nágrenninu. Þú færð til dæmis gagnlegri leitarniðurstöður fyrir atriði á borð við nálæga staði og veðurupplýsingar þegar kveikt er á stillingum og heimildum fyrir nákvæma staðsetningu.

Bæði iOS og Android eru með stillingar fyrir staðsetningarheimildir forrita sem hægt er að kveikja eða slökkva á. Þú getur leyft forritum að nota staðsetningu þína til að bjóða upp á eiginleika og þjónustur sem byggjast á staðsetningu. Hafðu í huga að stundum er nauðsynlegt fyrir forrit að vista nákvæma staðsetningu þína tímabundið svo þau geti birt þér gagnlegar niðurstöður með hraði eða sparað rafhlöðu með því að þurfa ekki stöðugt að uppfæra staðsetninguna.

Sum forrit þarfnast aðgangs að staðsetningu tækisins í bakgrunni, t.d. „Finna tækið mitt“, eða ef þú vilt nota tiltekna eiginleika, t.d. staðsetningardeilingu.

Frekari upplýsingar um hvernig staðsetning virkar í Android-tækinu þínu má finna hér.

Hvernig eru tímalína, leitarþjónustuferill og vef- og forritavirkni vistuð á Google-reikningnum mínum?

Tímalína og vef- og forritavirkni

Tímalína, vef- og forritavirkni og ferill leitarþjónusta eru Google-reikningsstillingar sem gera notendum kleift að vista virkni og tengdar upplýsingar á borð við staðsetningu. Hér er yfirlit yfir hverja þeirra. Hafðu í huga að aðrir eiginleikar og vörur kunna einnig að safna staðsetningarupplýsingum og vista þær.

Tímalína

Ef þú kveikir á tímalínu býr hún til persónulegt kort í öllum innskráðu tækjunum þínum, sem hjálpar þér að muna hvaða staði þú hefur heimsótt, hvaða leiðir þú hefur farið og hvaða ferðir þú hefur farið í.

Sjálfgefið er að slökkt sé á tímalínu. Ef þú kveikir á tímalínu er nákvæm staðsetning þín vistuð reglulega í öllum gjaldgengum snjalltækjum þar sem þú ert innskráð(ur). Þessar tækjastaðsetningar eru notaðar til að byggja upp tímalínu, líka þegar Google-forrit eru ekki í notkun.

Til þess að Google gagnist öllum betur er hægt að nota tímalínu til að

  • sýna samfélagsþróun, eins og vinsæla tíma og hve margir eru að nota almenningssamgöngur, byggt á samansöfnuðum staðsetningargögnum
  • greina og koma í veg fyrir svik og misnotkun
  • bæta og veita Google-þjónustur, þ.m.t. auglýsingavörur

Það fer eftir stillingunum þínum en virkni sem þú vistar sem feril á reikningnum þínum, þ.m.t. virkni tengd auglýsingum, kann einnig að vera tengd við tímalínugögn til að hjálpa nálægum fyrirtækjum að meta líkurnar á því að fólk heimsæki verslanir þeirra. Engum persónuupplýsingum er deilt með fyrirtækjum.

Tímalínan þín getur einnig hjálpað við að sérsníða þínar Google-upplifanir, eins og með því að senda þér tilkynningar um ferðir milli vinnustaðar og heimilis í Google-kortum.

Þú getur yfirfarið, breytt og eytt því sem hefur verið vistað á tímalínunni hvenær sem er. Skoðaðu Mín virkni til að sjá hvort kveikt sé á tímalínu. Þar geturðu stjórnað stillingum tímalínu.

Það er breytilegt hversu oft nákvæm staðsetning þín er vistuð í tímalínu. Ef þú ert til dæmis að nota leiðarlýsingu í Google-kortum gæti hún verið vistuð nokkrum sinnum á mínútu. Ef þú ert hins vegar ekki að nota símann gæti það verið á nokkurra klukkustunda fresti.

Það veltur á stillingunum þínum hversu lengi gögn tímalínu eru vistuð — þú getur valið að eyða gögnunum sjálfkrafa eftir 3, 18 eða 36 mánuði eða haldið þeim þar til þú eyðir þeim handvirkt. Þú getur breytt þessu í Mín virkni hvenær sem er.

Hafðu í huga

Ef þú slekkur á tímalínu

  • Google geymir öll gögn tímalínu sem þú hefur vistað þar til þú eyðir þeim eða þeim verður eytt eftir tímabilið sem þú velur í stillingum fyrir sjálfvirkra eyðingu.
  • Þótt þú slökkvir á tímalínu hefur það ekki áhrif á það hvernig staðsetningarupplýsingar eru vistaðar eða notaðar af öðrum virknistýringum, t.d. ferli leitarþjónusta og vef- og forritavirkni, eða öðrum Google-vörum, t.d. byggt á IP-tölunni þinni. Þú gætir enn verið með kveikt á öðrum stillingum sem vista staðsetningarupplýsingar.

Skoðaðu Mín virkni til að sjá hvort kveikt sé á tímalínu. Nánar.

Ferill leitarþjónusta

Ferill leitarþjónusta vistar virkni í þjónustum á borð við Leit, Kort, Shopping, Hótel, Flug, Translate og Fréttir á Google-reikningnum þínum þegar þú ert skráð(ur) inn. Ferillinn nær yfir atriði á borð við leitarfyrirspurnirnar þínar, staði sem þú skoðar í Google-kortum, ferðir sem þú bókar með Flugum og Hótelum, hluti eða vörur sem þú leitar að, auglýsingar sem þú smellir á og upplýsingar af vefsvæðum sem þú heimsækir með leitarþjónustum. Hann nær einnig yfir margmiðlunarefni (eins og myndir, skrár og hljóð) sem tengist notkun þinni.

Ferillinn þinn getur einnig innihaldið upplýsingar um staðsetningu þína byggt á svæði og IP-tölu tækisins þíns. Ef þú leitar til dæmis að veðurupplýsingum og færð niðurstöður í samræmi við staðsetninguna sem tækið þitt sendi er virknin vistuð í ferli leitarþjónusta, þ.m.t. svæðið sem tækið var á þegar þú leitaðir. Nákvæma staðsetningin sem tækið sendir er ekki vistuð, eingöngu svæðið í kring. Vistaða staðsetningin getur komið út frá IP-tölunni þinni eða úr tækinu þínu og verður hugsanlega notuð í framtíðinni til að hjálpa Google að ákvarða staðsetningu sem á betur við leitarfyrirspurn frá þér. Þessum vistuðu lýsigögnum staðsetningar er sjálfkrafa eytt úr ferli leitarþjónusta eftir 30 daga.

Leitarþjónustuferill er notaður til að sérsníða upplifun þína í Google-þjónustum. Að vista ferilinn þinn hjálpar þér til dæmis að rifja upp fyrri leitarfyrirspurnir, halda áfram með samtal við gervigreindarstillinguna eða „Spyrðu Kort“ eða fá tillögur að sjálfvirkri útfyllingu sem byggjast á fyrri leitarfyrirspurnum þínum. Það fer eftir sérsniðsstillingunum þínum en gögn úr ferli leitarþjónusta kunna að vera notuð til að veita þér sérsniðnar tillögur og upplifanir í leitarþjónustum eða öðrum Google-þjónustum. Ef þú ert til dæmis með kveikt á sérsniðnum tillögum geta leitarþjónustur veitt þér niðurstöður, ritstýrða strauma og gervigreindarsvör sem eru sniðin að þér út frá upplýsingum af Google-reikningnum þínum, þ.m.t. ferli leitarþjónusta og tengdum upplýsingum á borð við staðsetningu. Þetta þýðir að þú kannt að sjá niðurstöður sem eiga við um nándaða staðsetningu sem þú hefur áður leitað frá. Einnig er hægt að nota feril leitarþjónusta til að birta þér gagnlegri auglýsingar, en það fer eftir auglýsingastillingunum þínum. Ferill leitarþjónusta virkar í öllum tækjum sem þú ert skráð(ur) inn á reikninginn þinn í.

Þú getur slökkt á ferli leitarþjónusta eða farið yfir og eytt staðsetningu og öðrum upplýsingum sem eru vistaðar í honum í Mín virkni. Þegar slökkt er á þessari stillingu verður ný virkni í leitarþjónustum ekki vistuð í feril leitarþjónusta á Google-reikningnum þínum.

Hafðu í huga

Þegar þú slekkur á ferli leitarþjónusta

  • Þú gætir enn verið með vistaða virkni sem verður hugsanlega notuð þar til þú eyðir henni. Þú getur eytt henni hvenær sem er. Vistuðu staðsetningarupplýsingunum þínum verður enn eytt sjálfkrafa eftir 30 daga.
  • Að slökkva á ferli leitarþjónusta hefur ekki áhrif á hvernig aðrar stillingar, t.d. tímalína, vista eða nota staðsetningarupplýsingar. Þú gætir enn verið með aðrar gerðir staðsetningarupplýsinga vistaðar sem hluta af öðrum stillingum, þ.m.t. IP-tölu.

Þú getur séð hvort þú ert með kveikt á ferli leitarþjónusta í Mín virkni.

Vef- og forritavirkni

Vef- og forritavirknigögn eru notuð til að sérsníða upplifun þína í tilteknum Google-þjónustum enn frekar, s.s. Google-hjálpara, Google Store og Google TV. Einnig er hægt að nota þau til að birta þér auglýsingar sem eiga betur við þig, en það fer eftir auglýsingastillingunum þínum. Vef- og forritavirkni virkar í öllum tækjum sem þú ert skráð(ur) inn á reikninginn þinn í.

Ef kveikt er á vef- og forritavirkni vistar Google gögn um það sem þú gerir í Google-þjónustum í vef- og forritavirkni á reikningnum þínum. Það á einnig við um tengdar upplýsingar, t.d. á hvaða svæði þú notaðir Google-þjónustu.

Ef þú biður til dæmis Google-hjálpara um veðurupplýsingar og færð niðurstöður í samræmi við staðsetningu sem tækið þitt sendi er sú virkni vistuð í vef- og forritavirkni, þ.m.t. svæðið sem tækið var á þegar þú baðst um upplýsingarnar. Nákvæma staðsetningin sem tækið sendir er ekki vistuð, eingöngu svæðið í kring. Vistaða staðsetningin getur komið út frá IP-tölunni þinni eða úr tækinu þínu og verður hugsanlega notuð í framtíðinni til að hjálpa Google að ákvarða staðsetningu sem á betur við það sem þú ert að gera. Þessari vistuðu staðsetningu er eytt sjálfkrafa úr vef- og forritavirkni eftir 30 daga.

Vef- og forritavirknigögn hjálpa Google að skilja hvaða svæði eru viðeigandi fyrir þig og sýna þér niðurstöður á þeim svæðum þegar þú ert til dæmis í samskiptum við Google-hjálpara.

Þú getur slökkt á vef- og forritavirkni eða farið yfir og eytt staðsetningu og öðrum upplýsingum sem eru vistaðar í vef- og forritavirkni í Mín virkni. Þegar slökkt er á þessari stillingu verður ný virkni ekki vistuð í vef- og forritavirkni á Google-reikningnum þínum.

Hafðu í huga

Þegar þú slekkur á vef- og forritavirkni

  • Þú gætir enn verið með vistaða virkni sem verður hugsanlega notuð þar til þú eyðir henni. Þú getur eytt henni hvenær sem er. Vistuðu staðsetningarupplýsingunum þínum verður enn eytt sjálfkrafa eftir 30 daga.
  • Þótt þú slökkvir á vef- og forritavirkni hefur það ekki áhrif á hvernig aðrar stillingar, t.d. tímalína, vista eða nota staðsetningarupplýsingar. Þú gætir enn verið með aðrar gerðir staðsetningarupplýsinga vistaðar sem hluta af öðrum stillingum, þ.m.t. IP-tölu.

Þú getur séð hvort þú ert með kveikt á vef- og forritavirkni í Mín virkni.

Hvernig notar Google staðsetningarupplýsingar sem eru með gerviauðkenni eða nafnlaus?

Google notar staðsetningargögn sem eru nafnlaus eða með gerviauðkenni til að efla persónuvernd fólks. Almennt er ekki hægt að tengja nafnlausar upplýsingar við einstaklinga. Upplýsingar með gerviauðkenni tengjast oft einkvæmu auðkenni, t.d. talnaröð, frekar en persónugreinanlegum upplýsingum, t.d. reikningi einstaklings, nafni eða netfangi. Google getur notað staðsetningarupplýsingar sem eru nafnlausar eða með gerviauðkenni í vörum og þjónustum sínum fyrir auglýsingar eða þróun.

Notendur geta hugsanlega endurstillt tiltekin gerviauðkenni sem tengjast staðsetningarupplýsingum. Fólk getur til dæmis endurstillt tiltekin gerviauðkenni með því að endurstilla auglýsingakenni í Android-tækjunum sínum. Þar að auki endurstillir Google tiltekin gerviauðkenni sjálfkrafa til að bæta persónuvernd notenda, þ.m.t. fyrir GLA, tækjastillinguna sem notendur geta stjórnað til að bæta staðsetningarbundna þjónustu og nákvæmni í tækjum sínum.

Google getur notað nafnlausar staðsetningarupplýsingar sérstaklega. Fólk getur til dæmis ýtt á staði í Google-kortum, t.d. veitingastað eða almenningsgarð, og séð þróun tengda viðkomandi stöðum innan svæðis. Staðsetningarupplýsingar sem eru notaðar til að sýna þróun, t.d. vinsælar tímasetningar, er ekki hægt að nota til að auðkenna einstakling. Ef Google er ekki með nægar upplýsingar til að birta áreiðanlegar og nafnlausar upplýsingar um annríki birtast þær ekki á Google.

Google býður einnig fólki sem er ekki innskráð upp á aðrar leiðir til að stjórna upplýsingum sem tengjast vafranum eða tækinu, þ.m.t. sérstillingu Leitar, YouTube-stillingar og auglýsingastillingar. Nánar

Kynntu þér hvernig Google notar staðsetningarupplýsingar í persónuverndarstefnu Google. Kynntu þér hvernig Google varðveitir gögn sem var safnað og hvernig Google gerir gögn nafnlaus.

Hversu lengi varðveitir Google staðsetningarupplýsingar?

Persónuverndarstefna Google lýsir því hvernig við varðveitum notandagögn, þ.m.t. staðsetningarupplýsingar sem Google safnar. Staðsetningarupplýsingum er safnað í mislangan tíma byggt á gögnunum sem um ræðir, hvernig þau eru notuð og stillingum fólks.

Tilteknar staðsetningarupplýsingar eru vistaðar á Google-reikningnum þínum þar til þú eyðir þeim

  • Að stjórna varðveislu og eyðingu: Virknistýringar Google — þar á meðal ferill leitarþjónusta, tímalína og vef- og forritavirkni — eru með valkosti fyrir sjálfvirka eyðingu sem gera þér kleift að eyða gögnum sjálfkrafa eftir tiltekið tímabil, eins og þrjá, 18 eða 36 mánuði. Þú getur einnig séð gögnin í Mín virkni og eytt ákveðinni virkni eða miklu magni gagna eftir því sem hentar þér. Þú getur breytt þessum stillingum hvenær sem er eða breytt valkosti sjálfvirkrar eyðingar.
  • Vistun staðsetningarupplýsinga: Staðsetningarupplýsingar kunna að vera vistaðar á Google-reikningnum þínum, en það er mismunandi eftir Google-vörum og -þjónustum. Þú getur til dæmis merkt staðsetningar í Myndum eða bætt við heimilisfangi heimilis eða vinnu í Kortum. Þú getur eytt þessum staðsetningarupplýsingum.

Þegar þú eyðir gögnum fylgir Google reglum til að fjarlægja þau varanlega af reikningnum þínum á öruggan hátt svo ekki sé hægt að endurheimta gögnin. Til að byrja með verður virknin sem þú eyðir falin og ekki lengur notuð til að sérsníða upplifun þína á Google. Eftir það hefur Google ferli sem er sérstaklega hannað til þess að eyða gögnunum varanlega úr Google-geymslurýmum á öruggan hátt. Kynntu þér hvernig Google varðveitir gögn sem er safnað.

Upplýsingar sem renna út eftir ákveðinn tíma

Hvað varðar aðrar staðsetningarupplýsingar vistar Google stundum gögn í ákveðinn tíma áður en þeim er eytt í stað þess að það þurfi að eyða þeim handvirkt. Um þetta er fjallað í Svona geymir Google gögn. Tíminn sem líður áður en gögnum er eytt örugglega og alfarið fer eftir gagnagerðum, til dæmis:

  • Google nafnleysir auglýsingagögn í annálum þjóna með því að fjarlægja hluta IP-tölunnar eftir 9 mánuði og fótsporaupplýsingar eftir 18 mánuði.
  • Google deletes IP-based location and device location from your Search Services History and Web & App Activity after 30 days.

Upplýsingar sem eru geymdar í lengri tíma í afmörkuðum tilgangi

Eins og lýst er í persónuverndarstefnu Google gildir eftirfarandi: „Sumum gögnum er haldið eftir lengur þegar slíkt er nauðsynlegt af góðum og gildum lagalegum eða viðskiptalegum ástæðum, svo sem vegna öryggis, til að sporna gegn svikum og misnotkun eða vegna bókhaldsskráningar“. Nánar um vinnulag okkar varðandi varðveislu

Hvernig eru staðsetningarupplýsingar notaðar fyrir auglýsingar?

Til að hjálpa til við að birta þér gagnlegri auglýsingar

Auglýsingarnar sem þú sérð kunna að vera byggðar á staðsetningarupplýsingum frá þér. Almennt nota auglýsingar á Google sömu gerðir staðsetningarupplýsinga og vörurnar þar sem þær birtast. Til dæmis kunna auglýsingar í Leit og á öðrum Google-vettvöngum að byggjast á staðsetningu úr tækinu þínu, IP-tölum, fyrri virkni eða heimilisfangi heimilis eða vinnu sem skráð eru á Google-reikningnum þínum. Þetta fer eftir stillingunum þínum. Þar að auki gætu lýsigögn (t.d. tímabelti vafra, lén, innihald síðu, tegund vafra, tungumál síðu) verið notuð til að áætla landið þitt eða almennt svæði sem þú hefur áhuga á. Við gætum treyst á þessi lýsigögn til viðbótar við staðsetningarmerki sem við fáum frá IP-tölunni þinni, VPN-neti, þjónustu staðgengilsþjóns eða öðrum netkefisupplýsingum.

Notkun staðsetningarupplýsinga hjálpar til við að sýna þér auglýsingar sem eiga betur við svæðið sem þú ert á eða svæði sem eru viðeigandi fyrir þig. Ef til dæmis er kveikt á staðsetningarstillingu tækisins og þú leitar að veitingastöðum í grenndinni á Google, er núverandi staðsetning tækisins hugsanlega notuð til að birta þér auglýsingar fyrir veitingastaði nálægt þér. Staðsetningin þín er hugsanlega einnig notuð til að sýna þér vegalengdir að nálægum fyrirtækjum í tengslum við auglýsingar á Google.

Google kann einnig að nota fyrri vef- eða forritavirkni þína (t.d. það sem þú leitar að, vefsvæði sem þú heimsækir eða vídeó sem þú horfir á á YouTube) og svæði sem eru vistuð í ferlinum þínum þegar kveikt er á vissum virknistillingum, eins og ferli leitarþjónusta og vef- og forritavirkni, til að birta þér gagnlegri auglýsingar. Ef þú leitar til dæmis að stað til að kaupa mjólk í nágrenninu á Google kanntu að sjá auglýsingar frá matvöruverslunum á svæðinu þar sem þú notar Google-leit oft á meðan þú bíður eftir strætó eða lest.

Auglýsendur geta aðeins miðað auglýsingum á svæði, svo sem lönd, borgir eða svæði umhverfis fyrirtækið þeirra.

Skoðaðu hjálparmiðstöðina til að fá frekari upplýsingar um birtingarkerfið okkar.

Til að hjálpa auglýsendum að mæla árangur

Google gæti einnig notað staðsetningarupplýsingar til greininga og mælinga til að skilja hvernig Google-þjónustur eru notaðar. ​Til dæmis: Google gæti notað staðsetningargögn af tímalínunni þinni til að hjálpa auglýsendum að áætla hversu oft auglýsingar þeirra leiða til heimsókna í verslanir þeirra, en það fer eftir tímalínustillingunum þínum. Til að gera þetta tengir Google virknina sem þú vistar í ferli á reikningnum þínum, t.d. virkni tengda auglýsingum, við tímalínugögn sem tengjast verslunum auglýsenda. Engum persónuupplýsingum er deilt með auglýsendum.

Til að bæta vörur og þjónustur Google

Google notar einnig staðsetningarupplýsingar til að bæta auglýsingavörur sínar. Til dæmis er hugsanlegt að vistuð reikningsgögn um auglýsingarnar sem þú bregst við, þ.m.t. svæði viðkomandi virkni, sé safnað saman og þau notuð í vélnámslíkönum sem bæta verkfæri snjallboða. Reikningsgögnum er ekki deilt með auglýsendum.

Hvernig stjórna ég því hvernig staðsetningarupplýsingarnar mínar eru notaðar til að birta auglýsingar?

Þú getur stjórnað því hvernig hægt er að nota svæði þar sem þú hefur notað Google-vefsvæði og -forrit áður til að hafa áhrif á auglýsingarnar sem birtast þér með því að nota stýringuna „Svæði þar sem þú hefur notað Google“ í „Auglýsingastillingarnar mínar“.

Þegar kveikt er á svæðum þar sem þú hefur notað Google

Þegar kveikt er á sérsniðnum auglýsingum og svæðum sem þú hefur notað Google á mun Google sérsníða auglýsingarnar þínar út frá gögnum sem tengjast svæðunum sem þú hefur notað vefsvæði og forrit Google á og eru vistuð í ferlinum þínum með virknistillingum á borð við feril leitarþjónusta og vef- og forritavirkni.

Þegar slökkt er á svæðum þar sem þú hefur notað Google

Þegar slökkt er á sérsniðnum auglýsingum og svæðum sem þú hefur notað Google á mun Google ekki sérsníða auglýsingarnar þínar út frá gögnum sem tengjast svæðunum sem þú hefur notað vefsvæði og forrit Google á og eru vistuð í ferlinum þínum með virknistillingum á borð við feril leitarþjónusta og vef- og forritavirkni. Jafnvel þótt slökkt sé á svæðum sem þú hefur notað Google á kanntu áfram að sjá auglýsingar sem byggjast á núverandi staðsetningu þinni og stöðum sem þú hefur skráð sem heimili og vinnu á Google-reikningnum þínum.

Ef þú skráir þig út kann Google auk þess að nota núverandi staðsetningu þína út frá IP-tölunni þinni eða úr tækinu til að birta þér auglýsingar, í samræmi við tækið þitt og forritsstillingar.

Hér má nálgast frekari upplýsingar um að kveikja og slökkva á sérsniðnum auglýsingum þegar þú ert útskráð(ur).

Opnast í nýjum flipa(opnar neðanmálsgrein)