Hvernig Google notar upplýsingar frá vefsvæðum eða forritum sem nota þjónustu okkar
Mörg vefsvæði nýta sér þjónustu Google til að bæta efni sitt og halda því ókeypis. Þegar þau nota þjónustu okkar deila þessi vefsvæði og forrit upplýsingum með Google.
For example, when you visit a website that uses advertising services like AdSense or Google Ads, including analytics tools like Google Analytics, or embeds video content from YouTube, your web browser automatically sends certain information to Google. This includes the URL of the page you’re visiting and your IP address. We may use the IP address, for example, to identify your general location, to measure the effectiveness of ads, and, depending on your settings, to improve the relevance of the ads you see. We may also set cookies on your browser or read cookies that are already there. Apps that use Google advertising services also share information with Google, such as the name of the app and a unique identifier for advertising.
Google notar upplýsingar sem vefsvæði og forrit deila með því til þess að veita þjónustu sína, viðhalda henni og bæta hana, þróa nýja þjónustu, mæla árangur auglýsinga, veita vernd gegn svikum og misnotkun og sérsníða efni og auglýsingar sem þú sérð á Google og á vefsvæðum og forritum samstarfsaðila þess. Nánari upplýsingar um meðhöndlun okkar á gögnum í ofangreindum tilgangi eru í persónuverndarstefnu okkar. Á síðunni Auglýsingar eru nánari upplýsingar um hvernig upplýsingarnar eru notaðar í tengslum við auglýsingar og hversu lengi Google geymir slíkar upplýsingar.
Í persónuverndarstefnunni okkar eru útskýrðar þær lagaheimildir sem Google reiðir sig á til að vinna úr upplýsingunum þínum. Við gætum unnið með upplýsingarnar þínar með þínu samþykki eða vegna lögmætra hagsmuna, svo sem veitt, viðhaldið og bætt þjónustu okkar til að uppfylla þarfir notenda.
Stundum þegar unnið er úr upplýsingum sem vefsvæði og forrit deila með okkur, óska þessi vefsvæði og forrit eftir samþykki þínu áður en Google er leyft að vinna úr upplýsingunum þínum. Til dæmis gæti birst borði á vefsvæði þar sem óskað er eftir samþykki fyrir því að Google vinni úr upplýsingunum sem vefsvæðið safnar. Þegar það gerist virðum við tilganginn sem lýst er í samþykkinu sem þú veitir vefsvæðinu eða forritinu umfram lagaheimildirnar sem lýst er í persónuverndarstefnu Google. Þú getur breytt eða afturkallað samþykki þitt á umræddu vefsvæði eða í umræddu forriti.
Sérsniðnar auglýsingar
Ef kveikt er á sérsniðnum auglýsingum notar Google upplýsingarnar þínar til að gera auglýsingar gagnlegri fyrir þig. Til dæmis getur vefsvæði sem selur fjallahjól notað auglýsingaþjónustu Google. Eftir að þú ferð á vefsvæðið gætirðu séð auglýsingu um fjallahjól á öðru vefsvæði sem birtir auglýsingar í gegnum Google.
Ef slökkt er á sérsniðnum auglýsingum mun Google hvorki safna upplýsingunum þínum né nota þær til að búa til auglýsingaprófíl eða sérsníða auglýsingar sem Google sýnir þér. Þú sérð áfram auglýsingar en þær verða ef til vill ekki jafn gagnlegar. Auglýsingar geta áfram byggst á efnisatriðum vefsvæðis eða forrits sem þú skoðar, núverandi leitarorðum eða almennri staðsetningu þinni en ekki áhugasviðum þínum, leitarferli eða vefferli. Áfram verður hægt að nota upplýsingarnar þínar í öðrum ofangreindum tilgangi, til dæmis til að mæla árangur auglýsinga og til að veita vernd gegn svikum og misnotkun.
Þegar þú notar vefsvæði eða forrit sem notar þjónustu Google gætirðu fengið val um að sjá sérsniðnar auglýsingar frá auglýsingaveitum, þar á meðal Google. Óháð því hvað þú velur mun Google ekki sérsníða auglýsingar sem þú sérð ef slökkt er á stillingu fyrir sérsniðnar auglýsingar eða ef reikningurinn þinn er ekki gjaldgengur fyrir sérsniðnar auglýsingar.
Þú getur séð og stjórnað því hvaða upplýsingar við notum til að birta þér auglýsingar í auglýsingastillingunum.
Hvernig þú getur stjórnað því hvaða upplýsingum Google safnar á þessum vefsvæðum og í þessum forritum
Hér eru nokkrar leiðir til að stjórna upplýsingunum sem tækið þitt deilir þegar þú heimsækir eða átt í samskiptum við vefsvæði og forrit sem nota þjónustu Google:
- Auglýsingastillingar hjálpa þér að stjórna auglýsingum sem þú sérð í Google þjónustu (til .dæmis Google leit eða YouTube) eða á öðrum vefsvæðum og forritum sem nýta sér auglýsingaþjónustu Google. Þú getur einnig kynnt þér hvernig auglýsingar eru sérsniðnar, afþakkað sérsniðar auglýsingar og lokað á einstaka auglýsendur.
- If you are signed in to your Google Account, and depending on your Account settings, My Activity allows you to review and control data that is saved by your activity controls when you use Google services, which may include information we collect from the sites and apps you have visited. You can browse by date and by topic, and delete part or all of your saved activity.
- Fjöldi vefsvæða og forrita notast við Google Analytics til að átta sig á hvernig gestir nota vefsvæðin eða forritin. Ef þú vilt ekki að Analytics sé notað í vafranum þínum geturðu sett upp Google Analytics vafraviðbótina. Hér eru frekari upplýsingar um Google Analytics og persónuvernd.
- Huliðsstilling Chrome gerir þér kleift að takmarka upplýsingar sem Chrome vistar í tækinu þínu þegar þú vafrar á vefnum. Nánar um huliðsstillingu Fótsporum er eytt þegar þú hefur lokað öllum huliðsgluggum og -flipum og bókamerki og stillingar eru vistuð þar til þú eyðir þeim. Hér eru frekari upplýsingar um fótspor. Using Incognito mode in Chrome or other private browsing modes does not prevent the collection of data when you visit websites that use Google services, and Google still collects data when you visit websites using Google services in private browsing modes.
- Margir vafrar, þar á meðal Chrome, gera þér kleift að loka fyrir fótspor frá þriðja aðila. Þú getur einnig hreinsað öll fótspor úr vafranum. Hér eru frekari upplýsingar um umsjón með fótsporum í Chrome.
