Persónuvernd og skilmálar
Persónuvernd og skilmálar

Samantekt á breytingum á þjónustuskilmálum Google

fyrir notendur á Evrópska efnahagssvæðinu

Hinn 30. júlí 2026 gerum við breytingar á þjónustuskilmálum okkar til að skýra betur fyrir þér hvers þú getur vænst af okkur og hvers við getum vænst af þér þegar þú notar þjónustu Google.

Þessi síða hjálpar þér að skilja helstu uppfærslur á skilmálum okkar fyrir notendur á Evrópska efnahagssvæðinu. Við vonum að samantektin reynist þér gagnleg en hvetjum þig einnig til að lesa nýju skilmálana í heild sinni.

Skilmálar

Þróa, bæta og uppfæra Google þjónustur

Þessi hluti veitir almennt yfirlit yfir hvernig og hvers vegna Google uppfærir, bætir við, eyðir eða breytir á annan hátt stafrænu efni sínu, þjónustum og vörum.

  • Við gerðum tiltekna setningu skýrari til að hjálpa notendum að skilja betur skyldu Google til að gera lagalega áskildar uppfærslur á stafrænu efni sínu, þjónustum og vörum, eins og krafist er í tilskipun Evrópusambandsins um að efla neytendur í grænum umskiptum, lögum sem miða að því að efla neytendavernd gegn grænþvotti og ótímabærri úreldingu vara.

Kostnaður við farsímagögn, Wi-Fi og aðrar nettengingar

Þessi nýi hluti lýsir því hvers vegna Google-þjónustur nota oft netið þegar þú ert ekki að nota þjónusturnar eða tækið þitt og útskýrir ábyrgð þína á kostnaði við þá netnotkun.

Við bættum þessum nýja hluta við til að hjálpa þér að skilja betur hvernig þjónustur okkar virka, koma í veg fyrir misskilning varðandi kostnað og hvetja þig til að fara yfir netþjónustuáskriftina þína og stillingar tækisins þíns og netsins, þar sem þessi atriði geta haft áhrif á kostnaðinn þinn.

Aðeins fyrir notendur hjá fyrirtækjum og stofnunum

Þessi hluti gildir aðeins um eða og takmarkar skaðabótaábyrgð Google gagnvart þessum notendum.

  • Við gerðum ljósara að takmarkanir á skaðabótaábyrgð Google í þessum hluta um fyrirtækjanotendur hafa ekki áhrif á þá vernd sem allir notendur njóta og lýst er í hlutanum Fyrir alla notendur.
  • Þessi skýring á við um allar útgáfur af þjónustuskilmálum Google á Evrópska efnahagssvæðinu, nema þýsku útgáfuna, sem er orðuð á annan hátt og þarfnast því ekki skýringar.

Meðhöndlun beiðna um gögnin þín

Þessi hluti lýsir því hvernig Google Ireland Limited meðhöndlar beiðnir um birtingu notendagagna.

  • Við erum að fjarlægja þennan hluta vegna þess að við erum að færa upplýsingar okkar um birtingu gagna á aðalsíðu okkar um gagnabirtingu til að veita notendum einn skýran stað til að nálgast upplýsingar um reglur okkar um gagnabirtingu.

Meðhöndlun ágreiningsmála, gildandi lög og dómstólar

Þessi hluti lýsir ferlum og lögum sem gilda ef upp kemur ágreiningur.

  • Við erum að fjarlægja tengil á rafrænan vettvang ESB til lausnar deilumála vegna þess að hann er ekki lengur til.
  • Við erum einnig að bæta upplýsingagjöf við fyrir þýska notendur okkar – samkvæmt lögum – til að gera það ljósara að við notum ekki gerðardómstóla neytenda.

Um þessa skilmála

Þessi hluti lýsir því hvernig við látum þig vita ef við uppfærum skilmála okkar.

  • Í þeirri útgáfu af skilmálum okkar sem gildir aðeins fyrir franska notendur uppfærðum við orðalagið til að samræmast nýjustu frönsku lögum og dómsúrskurðum.

EES – leiðbeiningar um rétt til að falla frá samningi

Þessi hluti lýsir því hvernig þú getur afturkallað aðild þína að þessum samningi eins og fram kemur í stöðluðum leiðbeiningum Evrópusambandsins um afturköllun.

  • Við uppfærðum þennan hluta og bættum við leiðbeiningum um hvernig hægt er að afturkalla aðild að samningnum með nýjum „afturköllunarhnappi“ á netinu, eins og tilskipun Evrópusambandsins um fjármálaþjónustu krefst.

Skilgreiningar

ábyrgð

Trygging fyrir því að vara eða þjónusta uppfylli tiltekin viðmið.

bæta tjón eða trygging

Samningsbundin skylda einstaklings eða stofnunar/fyrirtækis til að bæta tap annars einstaklings eða stofnunar/fyrirtækis vegna málaferla, svo sem málsókna.

efnið þitt

Það sem þú býrð til, hleður inn, sendir inn, geymir, sendir, tekur við eða deilir með Google gegnum þjónustu okkar, svo sem:

  • skjöl, töflureiknar og skyggnur sem þú býrð til
  • bloggfærslur sem þú hleður inn með Blogger
  • umsagnir sem þú sendir inn í Kortum
  • myndskeið sem þú geymir á Drive
  • tölvupóstur sem þú sendir og móttekur í Gmail
  • myndir sem þú deilir með vinum með Google myndum
  • ferðaáætlanir sem þú deilir með Google

fyrirvari

Yfirlýsing sem takmarkar lagalega ábyrgð einhvers.

hlutdeildarfélag

Aðili sem tilheyrir fyrirtækjahópi Google, sem eru Google LLC og dótturfélög þess, þar á meðal eftirfarandi fyrirtæki sem veita neytendaþjónustu innan ESB: Google Ireland Limited, Google Commerce Limited og Google Dialer Inc.

hugverkaréttur

Réttindi yfir hugverkum einstaklings, svo sem uppfinningum (einkaleyfi); ritverkum eða listaverkum (höfundarréttur); hönnun (hönnunarréttindi); og táknum, heitum og myndum sem notuð eru í viðskiptum (vörumerki). Hugverkaréttindi kunna að tilheyra þér, öðrum einstaklingi eða fyrirtæki.

Lagalegur réttur sem gerir höfundi hugverks (svo sem bloggfærslu, myndar eða myndskeiðs) kleift að ákveða hvort og hvernig aðrir mega nota hugverkið, háð ýmsum takmörkunum og undantekningum.

Lagaleg ábyrgð er lagaleg krafa um að seljandi beri skaðabótaábyrgð ef stafrænt efni, þjónustur eða vörur sem hann býður upp á eru gallaðar (þ.e.a.s. að þær uppfylli ekki gildandi kröfur).

landsútgáfa

Ef þú ert með Google reikning tengjum við hann við land (eða svæði) til að geta ákvarðað:

  • hlutdeildarfélag Google sem veitir þér þjónustuna og vinnur úr upplýsingunum þínum þegar þú notar þjónustuna
  • útgáfu skilmálanna sem stjórna sambandi okkar

Þegar þú ert skráð(ur) út er landsútgáfan ákvörðuð af þeim stað þar sem þú notar Google þjónustu. Ef þú ert með reikning getur þú skráð þig inn og skoðað þessa skilmála til að sjá hvaða land er tengt við þá.

misræmi

Lagahugtak sem skilgreinir muninn á því hvernig eitthvað ætti að virka og hvernig það raunverulega virkar. Samkvæmt lögunum byggist skilgreiningin á því hvernig eitthvað ætti að virka á lýsingu seljanda, því hvort gæði og virkni séu fullnægjandi og hvort tiltekin vara uppfylli notkunarkröfur í samræmi við svipaðar vörur.

neytandi

Einstaklingur sem notar þjónustu Google í persónulegum tilgangi til einkanota utan starfsemi sinnar, fyrirtækis, starfs eða iðnar. Þetta nær yfir „neytendur“, eins og þeir eru skilgreindir í 1. mgr. 2. gr. í tilskipun ESB um réttindi neytenda. (Sjá „viðskiptanotandi“)

Reglugerð ESB um viðskipti verkvanga og fyrirtækja

Reglugerð (ESB) 2019/1150 um sanngirni og gagnsæi fyrir fyrirtækjanotendur miðlunarþjónustu á internetinu.

skaðabótaábyrgð

Tap vegna hvers konar lagalegrar kröfu, hvort sem krafan er byggð á samningi, skaðabótarétti (þar á meðal vegna vanrækslu) eða einhverri annarri ástæðu, og jafnvel þótt tapið hafi verið fyrirsjáanlegt eða ef gera hefði mátt ráð fyrir því.

stofnun/fyrirtæki

Lögaðili (til dæmis fyrirtæki, stofnun sem ekki er rekin í hagnaðarskyni eða skóli) sem ekki er einstaklingur.

viðskiptaábyrgð

Viðskiptaábyrgð er frjáls skuldbinding um að uppfylla tiltekna gæðastaðla og ef viðkomandi staðlar eru ekki uppfylltir ber fyrirtækið sem býður ábyrgðina ábyrgð á því að gera við, skipta út eða endurgreiða neytandanum gallaðar vörur.

viðskiptanotandi

Einstaklingur eða aðili sem er ekki neytandi (sjá „neytandi“).

vörumerki

Tákn, heiti og myndir sem notuð eru í viðskiptum og geta aðgreint vöru eða þjónustu einstaklings eða fyrirtækis frá vörum og þjónustu annarra.

þjónusta

Þær Google þjónustur sem falla undir þessa skilmála eru vörurnar og þjónusturnar sem taldar eru upp á https://policies.google.com/terms/service-specific, þar á meðal:

  • forrit og vefsvæði (til dæmis Leit og Kort)
  • verkvangar (e. platform) (eins og Google Shopping)
  • samþætt þjónusta (svo sem Kort, sem eru felld inn í forrit eða vefsvæði annarra fyrirtækja)
  • tæki og aðrar vörur (eins og Google Nest)

Mikið af þessari þjónustu felur einnig í sér efni sem er gagnvirkt eða hægt er að streyma.

Opnast í nýjum flipa(opnar neðanmálsgrein)
  • Afrikaans
  • Bahasa Indonesia
  • Bahasa Melayu
  • Català
  • Čeština
  • Dansk
  • Deutsch
  • Eesti
  • English
  • English (India)
  • English (United Kingdom)
  • Español
  • Español (Latinoamérica)
  • Euskara
  • Filipino
  • Français
  • Français (Canada)
  • Gaeilge
  • Galego
  • Hrvatski
  • Isizulu
  • Íslenska
  • Italiano
  • Kiswahili
  • Latviešu
  • Lietuvių
  • Magyar
  • Malti
  • Nederlands
  • Norsk
  • Polski
  • Português (Brasil)
  • Português (Portugal)
  • Română
  • Slovenčina
  • Slovenščina
  • Srpski
  • Suomi
  • Svenska
  • Tiếng Việt
  • Türkçe
  • অসমীয়া
  • Ελληνικά
  • Български
  • ଓଡିଆ
  • Русский
  • Српски
  • Українська
  • ‫עברית‬
  • ‫اردو‬
  • ‫العربية‬
  • ‫فارسی‬
  • አማርኛ
  • मराठी
  • हिन्दी
  • বাংলা
  • ગુજરાતી
  • தமிழ்
  • తెలుగు
  • ಕನ್ನಡ
  • മലയാളം
  • ไทย
  • 한국어
  • 中文 (香港)
  • 中文(简体中文)
  • 中文(繁體中文)
  • 日本語
Google forrit
Aðalvalmynd