Persónuvernd og skilmálar
Persónuvernd og skilmálar

Persónuverndarhandbók unglinga

Persónuvernd þín á Google

Hér má finna svör við algengum spurningum sem okkur berast um persónuvernd, t.d. hvað eru gögn? Skoðaðu einnig persónuverndarstefnuna ef þú vilt fá frekari upplýsingar.

Staðsetning þín

Veit Google hvar ég er?

Í hvert sinn sem þú notar netið geta forrit og vefsvæði áætlað nokkurn veginn hvar þú ert. Þetta á einnig við um Google. Google gæti einnig vitað nákvæma staðsetningu þína en það fer eftir stillingum tækisins. (Sjá nánar í Hversu nákvæm er staðsetningin mín?)

Þegar þú leitar á Google, t.d. í Leit, Kortum eða Google-hjálparanum, er mögulegt að staðsetning þín hverju sinni sé notuð til að birta þér gagnlegri niðurstöður. Ef þú leitar t.d. að veitingastöðum eru gagnlegustu niðurstöðurnar líklega þær sem sýna veitingastaði í nágrenni við þig.

Sjá nánar í Hvernig er hægt að stjórna staðsetningunni

Hvernig get ég slökkt og kveikt á staðsetningu?

Þegar þú leitar á Google mun Google alltaf áætla svæðið sem þú ert á þegar þú leitar. Google getur áætlað staðsetningu þína út frá IP-tölu tækisins sem þú notar og öllum nettengdum forritum og vefsvæðum. Sjá nánar í Hvernig veit Google hvar ég er?

Þú getur ráðið því hvort þú sendir nákvæma staðsetningu þína þegar þú notar Google með því að kveikja eða slökkva á staðsetningarheimildum fyrir stök forrit eða vefsvæði og fyrir tækið þitt.

Ef þú skráir heimilisfangið þitt eða heimilisfang vinnu og Google áætlar að þú sért heima eða í vinnunni er nákvæmt heimilisfang notað þegar þú leitar.

Hversu nákvæm er staðsetningin mín?

Svæðið sem þú ert á

Þegar þú leitar á Google mun Google alltaf áætla svæðið sem þú ert á þegar þú leitar. Þetta gerir Google kleift að birta þér viðeigandi niðurstöður og verja reikninginn þinn með því að greina óvenjulega virkni, svo sem innskráningu í nýrri borg.

Svæðið sem Google áætlar er stærra en 3 ferkílómetrar og innan þess eru í það minnsta 1000 notendur. Þetta stuðlar að aukinni persónuvernd og ekki er hægt að persónugreina þig út frá svæðinu sem þú ert á.

Nákvæm staðsetning

Google getur notað nákvæma staðsetningu þína ef þú heimilar það. Google þarf t.d. að nota nákvæma staðsetningu til að skila áreiðanlegum niðurstöðum fyrir leitir á borð við „ís nálægt mér“ eða „nákvæm gönguleiðarlýsing í verslun“.

Nákvæm staðsetning er staðurinn sem þú ert á, s.s. tiltekið heimilisfang.

Hvernig veit Google staðsetningu mína?

Staðsetning er áætluð með því að nota upplýsingar úr ýmsum áttum.

IP-tala tækisins

IP-tölur eru gróflega byggðar á staðsetningu, svipað og símanúmer og svæðisnúmer. Þetta þýðir að öll forrit og vefsvæði sem þú notar, þ. á m. google.com, geta áætlað svæðið sem þú ert á út frá IP-tölunni þinni. Netþjónustan úthlutar tækinu þínu IP-tölu, en hún er nauðsynleg til að hægt sé að nota internetið.

Nánar

Staðsetning tækisins

Ef þú leyfir forriti eða vefsvæði frá Google að nota staðsetningu tækisins er hægt að nota þær upplýsingar til að áætla hvar þú ert. Flest tæki eru búin stýrikerfi með innbyggðum staðsetningarstillingum sem yfirleitt má finna í stillingum tækisins.

Nánar

Aðgerðir þínar á Google

Google getur áætlað svæðið sem þú ert á út frá fyrri leitum á Google. Ef þú leitar t.d. oft að „pizza í Reykjavík“ má áætla að þú viljir fá niðurstöður í Reykjavík.

Nánar

Merktu staðirnir þínir

Ef þú skráir heimilisfangið þitt eða heimilisfang vinnu getur Google notað þær upplýsingar til að áætla staðsetningu þína. Ef þú skráir t.d. heimilisfangið þitt og IP-talan þín, fyrri aðgerðir eða aðrar staðsetningarupplýsingar benda til þess að þú sért nálægt heimili þínu munum við nota staðsetningu heimilisins til að áætla staðsetningu þína.

Nánar

Hver getur séð staðsetninguna mína?

Þú ræður. Ef þú notar staðsetningardeilingu Google geturðu deilt staðsetningu þinni í rauntíma með vinum og vandamönnum í öllum þjónustum Google.

Athuga hvort þú ert að deila staðsetningu þinni

Sjálfgefið er slökkt á staðsetningardeilingu. Ef þú vilt deila staðsetningu þinni í rauntíma þarftu að velja og staðfesta hverjum þú vilt deila henni með og hversu lengi. Þú getur hætt að deila staðsetningu þinni hvenær sem er.

Sjá nánar í Staðsetningu deilt með öðrum í rauntíma

Deiling á Google

Hvað getur annað fólk séð þegar ég deili á Google?

Upplýsingarnar sem aðrir geta séð um þig í Google-þjónustum fara eftir því hverju og hvernig þú deilir:

Deilt opinberlega

Ef þú ert þátttakandi í forritum á borð við Google kort geta aðrir séð nafnið þitt og myndina þína. Ef þú gefur t.d. uppáhaldsísbúðinni þinni einkunn geta aðrir séð einkunnina, nafnið þitt og myndina þegar þeir skoða viðkomandi ísbúð í Google kortum.

Lokuð deiling

Þegar þú deilir efni með öðrum, t.d. myndum, myndskeiðum og skjölum, geta viðkomandi séð nafnið þitt og myndina til viðbótar við efnið sem þú deilir.

Hugsaðu þig vandlega um áður en þú deilir efni með öðrum og íhugaðu hvers konar aðgang þú ert að veita. Þegar þú deilir t.d. aðgangi að möppum í Google Drive eða að albúmum í Google-myndum er mögulegt að fólk hafi áframhaldandi aðgang að nýju efni sem þú bætir við.

Hverjir geta séð það sem ég deili, t.d. myndir, myndskeið og skjöl?

Þú getur valið að deila tilteknu efni með öðru fólki í Google-þjónustum sem þú notar.

Hafðu í huga að þegar þú deilir efni getur annað fólk endurdeilt því, jafnvel í forritum og á vefsvæðum utan Google.

Þú getur eytt efninu þínu af reikningnum þínum hvenær sem er en það eyðir ekki afritum sem þú hefur þegar deilt með öðrum.

Íhugaðu vandlega hvaða efni þú deilir og deildu aðeins með fólki sem þú treystir.

Deilir Google persónuupplýsingunum mínum með öðrum?

Við deilum persónuupplýsingunum þínum ekki með fyrirtækjum, stofnunum eða einstaklingum utan Google nema í einstökum tilvikum þegar okkur ber skylda til þess samkvæmt lögum.

Ef þú ert með Google-reikning í gegnum skólann þinn (Google Workspace for Education-reikning) hefur skólastjórnandinn sem hefur umsjón með reikningnum þínum aðgang að upplýsingunum þínum.

Aðgangur skólastjórnenda

Mögulegt er að skólastjórnandinn hafi aðgang að upplýsingum og geti gert eftirfarandi á Google Workspace for Education-reikningnum þínum:

  • Fengið aðgang að og haldið eftir upplýsingum sem geymdar eru á reikningnum þínum, eins og tölvupósti
  • Skoðað tölfræði varðandi reikninginn þinn, eins og hversu mörg forrit þú setur upp
  • Breytt aðgangsorði reikningsins
  • Lokað fyrir aðgang þinn að reikningnum, tímabundið eða varanlega
  • Sótt reikningsupplýsingar þínar í því skyni að fullnægja viðeigandi lagaskilyrðum, reglugerðum og málsmeðferðum eða til að framfylgja beiðnum yfirvalda.
  • Takmarkað getu þína til að eyða eða breyta upplýsingunum eða persónuverndarstillingum þínum

Ástæður þess að Google gæti deilt upplýsingum frá þér

Þegar þú gefur okkur leyfi

Ef þú notar til dæmis Google-hjálparann til að panta pizzu biðjum við um leyfi frá þér áður en við deilum nafninu þínu eða símanúmerinu með veitingastaðnum. Kynntu þér hvernig Google hjálpar þér að deila gögnum með forritum og þjónustum þriðju aðila á öruggan hátt

Með lénsstjórum, eins og lýst er hér að ofan

Til ytri úrvinnslu: Við afhendum fyrirtækjum sem við eigum í samstarfi við persónuupplýsingar til úrvinnslu samkvæmt fyrirmælum frá okkur. Við fáum t.d. önnur fyrirtæki til að aðstoða okkur við notendaþjónustu og verðum að deila persónuupplýsingum með þeim svo að hægt sé að svara spurningum notenda.

Af lagalegum ástæðum

Við deilum persónuupplýsingum utan Google ef við teljum að það sé nauðsynlegt til að:

  • Að fylgja öllum viðeigandi lögum, reglugerðum, málsmeðferðum eða framfylgjanlegum beiðnum yfirvalda.
  • Framfylgja viðeigandi þjónustuskilmálum, þar á meðal til að rannsaka hugsanleg tilvik um misnotkun.
  • Greina, koma í veg fyrir eða bregðast á annan hátt við svikum, öryggisbrotum eða tæknivandamálum.
  • Verja réttindi, eignir og öryggi Google, notenda okkar eða almennings fyrir skemmdarverkum, eins og lög mæla fyrir um og leyfa.

Gögn og sérstillingar

Hvaða gögnum safnar Google um mig?

Þegar þú notar Google-þjónustur söfnum við upplýsingum sem eru nauðsynlegar til að veita þjónusturnar, sjá til þess að þær gagnist þér betur og af öðrum ástæðum sem lesa má um í Hvers vegna safnar Google gögnum?.

Þú getur breytt stillingunum þínum til að takmarka gögnin sem við söfnum og hvernig gögnin eru notuð. Þú getur t.d. slökkt á YouTube-ferlinum ef þú vilt ekki að við vistum hann á Google-reikningnum þínum. Sjá nánar í Hvernig get ég ákveðið hvað Google vistar?

Hvað eru gögn?

Persónuupplýsingar eru t.d. persónugreinanlegar upplýsingar sem þú gefur upp á borð við nafn eða netfang. Til þeirra teljast einnig önnur gögn sem Google getur með einhverju móti tengt við þig, svo sem upplýsingar sem tengjast þér á Google-reikningnum þínum.

Persónuupplýsingar eru tvenns konar:

Það sem þú býrð til eða lætur í té

Þegar þú stofnar Google-reikning læturðu okkur í té persónuupplýsingar á borð við nafnið þitt og aðgangsorð.

Þú getur einnig vistað efni sem þú býrð til, hleður upp eða færð frá öðrum, svo sem tölvupóst og myndir.

Það sem þú gerir á Google

Við söfnum upplýsingum um notkun þína á þjónustum okkar til að bæta upplifunina við notkun þeirra. Þetta kann að fela í sér leitarfyrirspurnir, myndskeið sem þú horfir á, fólkið sem þú átt í samskiptum við eða deilir efni með og Chrome vafraferilinn þinn.

Við söfnum upplýsingum um forrit, vafra og tæki sem þú notar til að fá aðgang að Google þjónustum. Þetta hjálpar okkur að bjóða upp á eiginleika, t.d. að minnka birtustig skjásins þegar lítil hleðsla er á rafhlöðunni.

Við vinnum úr staðsetningu þinni, m.a. þegar þú notar eiginleika á borð við nákvæma leiðarlýsingu. Frekari upplýsingar eru í hlutanum Staðsetning.

Hvers vegna safnar Google gögnum?

Við söfnum upplýsingum sem eru nauðsynlegar til að veita þjónustur okkar, sjá til þess að þær gagnist þér betur og af öðrum ástæðum sem lesa má um í „Við notum gögn í eftirfarandi tilgangi“.

Google-kort geta t.a.m. hjálpað þér að rata á milli staða og komast um leið hjá umferðarteppum vegna þess að forritið notar bæði upplýsingar um staðsetningu þína (gögnin þín) og opinber gögn (kort og upplýsingar um opinbera staði).

Við notum gögn í eftirfarandi tilgangi

Til að veita þjónustuna

Við notum gögn til að veita þjónustur okkar, svo sem til að vinna úr leitarfyrirspurnum til að geta birt niðurstöður.

Til að viðhalda og bæta þjónustu okkar

Gögn hjálpa okkur að viðhalda og bæta þjónustur okkar. Við getum til dæmis fylgst með þjónustutruflunum. Einnig getum við bætt villuleit í þjónustum okkar ef við getum áttað okkur á því hvaða leitarfyrirspurnir eru oftast stafsettar rangt.

Til að þróa nýjar þjónustur

Gögn auðvelda okkur að þróa nýjar þjónustur. Við gátum til dæmis séð hvernig fólk flokkaði myndirnar sínar í Picasa, fyrsta myndaforritinu okkar, og notuðum þær upplýsingar til að hanna og gefa út Google-myndir. Við kunnum einnig að nota samskipti þín við þjónustur okkar, þar á meðal skapandi gervigreindarvörur okkar, til að þróa og bæta þessar þjónustur.

Til að veita sérsniðna þjónustu, þ.m.t. efni og auglýsingar

Við notum gögn til að sérsníða efni, t.d. tillögur að myndskeiðum sem gætu höfðað til þín. Við kunnum að birta þér auglýsingar sem eru sérsniðnar að áhugasviði þínu en það fer eftir stillingunum þínum og aldri.

Til að mæla árangur

Við notum gögn einnig til að mæla afköst og fá upplýsingar um það hvernig þjónustur okkar eru notaðar

Til að eiga í samskiptum við þig

Við kunnum að nota netfangið þitt til að senda þér tilkynningu ef við greinum grunsamlega virkni

Til að vernda Google, notendur okkar og almenning

Við notum gögn til að gæta að öryggi fólks á netinu, t.d. með því að greina og koma í veg fyrir svik

Hvernig notar Google gögn til að sérsníða efni?

Við notum upplýsingarnar sem við söfnum til að sníða forrit okkar og vefsvæði að þínum þörfum, til dæmis:

  • Til að birta tillögur að myndskeiðum sem gætu höfðað til þín
  • Öryggisábendingar í samræmi við notkun þína á Google-þjónustum (sjá Öryggisskoðun)

Við notum gögn einnig til að sérsníða auglýsingar nema slökkt sé á stillingunni eða notandinn sé í aldurshópi sem ekki má sérsníða auglýsingar fyrir.

Sérsníður Google auglýsingarnar sem ég sé?

Við reynum að birta eins gagnlegar auglýsingar og mögulegt er. Við sérsníðum hins vegar ekki auglýsingar fyrir ákveðna aldurshópa eða fyrir fólk sem hefur slökkt á sérsniðnum auglýsingum.

Við getum þó birt gagnlegar auglýsingar án þess að sérsníða þær. Sem dæmi um það gætirðu séð auglýsingu frá fyrirtæki sem selur strigaskó ef þú skoðar síðu með niðurstöðum fyrir leitarfyrirspurnina „nýir skór“. Auglýsingin kann að byggjast á almennum þáttum á borð við tíma dags, almenna staðsetningu og efni síðunnar sem þú ert að skoða.

Þú ert við stjórnvölinn

Hvernig stjórna ég því hvað Google vistar á reikningnum mínum?

Þegar þú notar Google-þjónustu á borð við Myndir geturðu valið að stilla hvort þú vilt taka afrit af eða samstilla myndirnar þínar.

Það eru líka stillingar sem gera þér kleift að ákveða hvort upplýsingar um virkni þína í Google-þjónustum séu vistaðar sem ferill á Google-reikningnum þínum og hvort Google-þjónustur geti notað upplýsingar á Google-reikningnum þínum til að sérsníða upplifun þína.

Sérsniðnar tillögur í leitarþjónustum

Gerir þér kleift að velja hvort leitarþjónustur, eins og Leit, Kort, Shopping, Hótel, Flug, Translate og Fréttir, geti veitt þér sérsniðnar tillögur sem byggjast á upplýsingum á Google-reikningnum þínum, s.s. notandaupplýsingum og vistuðum ferli. Leitarþjónustur geta til dæmis notað þessar upplýsingar til að veita gervigreindarsvör sem eru sérsniðin að áhugasviðum þínum.

Search Services History

Vistar virknina þína í leitarþjónustum, s.s. leitarfyrirspurnir og tengdar upplýsingar á borð við almenna staðsetningu. Virknin þín er notuð til að sérsníða upplifun þína af leitarþjónustum. Þegar þú byrjar að slá inn geturðu til dæmis séð fyrri leitarfyrirspurnir sem tillögur. Google notar einnig gögn úr ferli leitarþjónusta til að hjálpa til við að bæta þjónustur og tækni Google, þ.m.t. gervigreindarlíkön, og til að vernda Google, notendur þess og almenning.

Sérsnið Google Play

Gerir þér kleift að velja hvort Google Play geti notað upplýsingar á Google-reikningnum þínum, svo sem vörur sem þú kaupir og sækir í Play Store, til að sérsníða upplifun þína. Til dæmis getur Google Play komið með betri tillögur að forritum fyrir þig út frá því hvaða forrit þú notar.

Google Play-ferill

Vistar virkni þína á Play, s.s. forritin sem þú opnar í tækinu þínu, á Google-reikningnum þínum. Þessa virkni er hægt að nota til að sérsníða upplifun þína í Google-þjónustum, t.d. til að hjálpa þér að finna forritin sem þú leitar að hraðar.

Vef- og forritavirkni

Vistar virkni þína á sumum vefsvæðum og í sumum forritum Google, s.s. í Google TV, og inniheldur tengdar upplýsingar á borð við staðsetningu. Hún vistar einnig samstilltan Chrome-feril og aðgerðir á vefsvæðum, í forritum og tækjum sem nota Google-þjónustur. Virkni þín er notuð til að veita þér betri tillögur og sérsniðnari upplifun í Google-þjónustum.

YouTube-ferill

Vistar vídeóin sem þú horfir á og það sem þú leitar að þegar þú notar YouTube. YouTube-ferillinn þinn er notaður til að gera hluti á borð við að veita þér betri tillögur og hjálpa þér að halda áfram þar sem frá var horfið.

Gemini-forritavirkni

Gerir þér kleift að velja hvort Google megi nota Gemini-virknina þína, s.s. spjall og það sem þú deilir með Gemini (t.d. skrár og myndir), til að hjálpa til við að bæta Google-þjónustur, þar á meðal gervigreindarlíkön. Gemini-forritavirknin þín er einnig notuð til að gera hluti eins og að leyfa þér að halda áfram með spjall þar sem frá var horfið hvenær sem er.

Hvernig eyði ég gögnunum mínum?

Þú getur eytt gögnum sem eru vistuð á Google-reikningnum þínum. Gögn sem þú velur að eyða varanlega eru fjarlægð úr kerfum okkar. Ítarleg ferli okkar sjá til þess að þessi gögn séu fjarlægð að öllu leyti af þjónum okkar eða aðeins geymd þannig að ekki sé hægt að tengja þau við þig.

Farðu í Mín virkni til að skoða virknina sem er vistuð á Google-reikningnum þínum, t.d. skipanir sem þú hefur slegið inn og það sem þú hefur leitað að, lesið og horft á. Þú getur eytt tilteknum aðgerðum eða öllum aðgerðum innan ákveðins tímabils.

Þú getur einnig valið að láta eyða aðgerðunum þínum sjálfkrafa.

Hvernig sæki ég efnið mitt?

Efnið þitt er t.d. tölvupóstur, myndir, myndskeið, skjöl, töflureiknar, ummæli, tengiliðir og dagatalsviðburðir.

Farðu á Sækja gögn til að geyma efnið þitt — annað hvort til að taka öryggisafrit af því eða flytja það til annars fyrirtækis ef þú vilt prófa að nota aðra þjónustu.

Hvaða stýringar get ég notað þegar ég er útskráð(ur)?

Þú hefur aðgang að stýringum sem gera þér kleift að stjórna notkun þinni á Google, jafnvel þótt þú sért útskráð(ur). Þegar þú ert útskráð(ur) skaltu fara á g.co/privacytools til að breyta þessum stillingum: .

Sérsniðin leit

Notar það sem þú hefur leitað að á Google í þessum vafra til að birta gagnlegri niðurstöður og tillögur.

Leitar- og áhorfsferillinn þinn á YouTube

Notar virkni þína á YouTube, til dæmis vídeó sem þú horfir á og það sem þú leitar að, til að sérsníða YouTube að þér.

Þú getur einnig lokað á sum eða öll fótspor í vafranum þínum en það gæti orðið til þess að tilteknir eiginleikar á netinu hætti að virka. Sem dæmi fara mörg vefsvæði fram á að notendur leyfi fótspor þegar þeir skrá sig inn.

Útskráðir notendur hafa einnig val um það hvort þeir vilji sjá sérsniðnar auglýsingar. Við sérsníðum þó aldrei auglýsingar fyrir tiltekna aldurshópa.

Opnast í nýjum flipa(opnar neðanmálsgrein)
  • Afrikaans
  • Bahasa Indonesia
  • Bahasa Melayu
  • Català
  • Čeština
  • Dansk
  • Deutsch
  • Eesti
  • English
  • English (India)
  • English (United Kingdom)
  • Español
  • Español (Latinoamérica)
  • Euskara
  • Filipino
  • Français
  • Français (Canada)
  • Gaeilge
  • Galego
  • Hrvatski
  • Isizulu
  • Íslenska
  • Italiano
  • Kiswahili
  • Latviešu
  • Lietuvių
  • Magyar
  • Malti
  • Nederlands
  • Norsk
  • Polski
  • Português (Brasil)
  • Português (Portugal)
  • Română
  • Slovenčina
  • Slovenščina
  • Srpski
  • Suomi
  • Svenska
  • Tiếng Việt
  • Türkçe
  • অসমীয়া
  • Ελληνικά
  • Български
  • ଓଡିଆ
  • Русский
  • Српски
  • Українська
  • ‫עברית‬
  • ‫اردو‬
  • ‫العربية‬
  • ‫فارسی‬
  • አማርኛ
  • मराठी
  • हिन्दी
  • বাংলা
  • ગુજરાતી
  • தமிழ்
  • తెలుగు
  • ಕನ್ನಡ
  • മലയാളം
  • ไทย
  • 한국어
  • 中文 (香港)
  • 中文(简体中文)
  • 中文(繁體中文)
  • 日本語
Google forrit
Aðalvalmynd