Þetta er eldri útgáfa af þjónustuskilmálum okkar. Skoðaðu núgildandi útgáfu eða allar eldri útgáfur.

Þjónustuskilmálar Google

Tekur gildi 31. mars 2020 | Eldri útgáfur | Sækja PDF

Það sem þessir skilmálar ná yfir

Við gerum okkur grein fyrir að það er freistandi að sleppa því að lesa þessa þjónustuskilmála en aftur á móti er mikilvægt að þú vitir hvers þú getur vænst af okkur þegar þú notar þjónustu Google og hvers við getum vænst af þér.

Þessir þjónustuskilmálar skýra hvernig rekstur Google gengur fyrir sig, lögin sem gilda um fyrirtækið og tiltekna hluti sem við höfum alltaf haft í heiðri. Þjónustuskilmálarnir skýra því sambandið milli Google og þín þegar þú notar þjónustu okkar. Til dæmis er eftirfarandi fyrirsagnir að finna í þessum skilmálum:

Það er mikilvægt að skilja þessa skilmála vegna þess að þú samþykkir þá með því að nota þjónustuna okkar.

Auk þessara skilmála birtum við einnig persónuverndarstefnu. Þrátt fyrir að hún sé ekki hluti af þessum skilmálum hvetjum við þig til að lesa hana til að öðlast betri skilning á því hvernig þú getur uppfært, stjórnað, flutt út og eytt upplýsingunum þínum.

Þjónustuveitandi

Google þjónusta er veitt af og samkvæmt samningi þínum við:

Google LLC
stofnað samkvæmt lögum Delaware-ríkis í Bandaríkjunum, og starfrækt samkvæmt bandarískum lögum

1600 Amphitheatre Parkway
Mountain View, Kaliforníu 94043
Bandaríkin

Aldursskilyrði

Ef þú ert undir þeim aldri sem krafist er til að hafa umsjón með eigin Google reikningi þarftu að fá leyfi frá foreldri eða forráðamanni þínum til að nota Google reikning. Fáðu foreldri eða forráðamann þinn til að lesa þessa skilmála með þér.

Ef þú ert foreldri eða forráðamaður og leyfir barninu þínu að nota þjónustuna gilda þessir skilmálar um þig og þú berð ábyrgð á notkun barnsins á þjónustunni.

Í sumri Google þjónustu gilda sérstakar aldurstakmarkanir sem lýst er í þjónustutengdum viðbótarskilmálum og -reglum.

Samband þitt við Google

Þessir skilmálar skilgreina sambandið milli þín og Google. Í grófum dráttum gefum við þér heimild til að nota þjónustu okkar ef þú samþykkir að fylgja þessum skilmálum, sem skýra hvernig rekstur Google gengur fyrir sig og hvernig við öflum tekna. Þegar rætt er um „Google“, „við“, „okkur“ og „okkar“ er átt við Google LLC og hlutdeildarfélög þess.

Hvers þú mátt vænta af okkur

Bjóða upp á fjölbreytt úrval gagnlegrar þjónustu

Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval þjónustu sem fellur undir þessa skilmála, meðal annars:

  • forrit og vefsvæði (eins og Leit og Kort)
  • verkvanga (eins og Google Play)
  • samþætta þjónustu (svo sem Kort, sem eru felld inn í forrit eða vefsvæði annarra fyrirtækja)
  • tæki (eins og Google Home)

Þjónusta okkar er hönnuð með samhæfi í huga, sem auðveldar þér að fara úr einu í annað. Til dæmis geta Kort minnt þig á að fara af stað til að mæta á fund sem er skráður í Google dagatalið þitt.

Bæta þjónustu Google

Við erum stöðugt að bæta þjónustu okkar með nýrri tækni og eiginleikum. Sem dæmi fjárfestum við í gervigreind þar sem vélrænt nám er notað til að bera kennsl á og loka fyrir ruslpóst og spilliforrit, og til að bjóða þér upp á nýja eiginleika á borð við þýðingu í rauntíma. Þess vegna bætum við stundum við eða fjarlægjum eiginleika og virkni, aukum eða minnkum takmarkanir á þjónustu okkar og bjóðum upp á nýja þjónustu eða hættum að bjóða upp á eldri þjónustu.

Ef við gerum efnislegar breytingar sem hafa neikvæð áhrif á notkun þína á þjónustu okkar eða ef við hættum að bjóða upp á þjónustu tilkynnum við þér þær með góðum fyrirvara og gefum þér tækifæri til að flytja efnið þitt út af Google reikningnum þínum með Google Takeout, nema við aðstæður sem krefjast tafarlausra aðgerða, svo sem til að koma í veg fyrir misnotkun, bregðast við lagaskilyrðum eða bregðast við öryggisvandamálum eða vanda í rekstri.

Hvers við getum vænst af þér

Fylgdu þessum skilmálum og viðbótarskilmálum fyrir tiltekna þjónustu

Heimildin sem við veitum þér til að nota þjónustuna er í gildi á meðan þú uppfyllir skyldur þínar samkvæmt:

Við bjóðum þér einnig upp á ýmsar stefnur, hjálparmiðstöðvar og önnur tilföng til að svara almennum spurningum og setja fram væntingar um notkun á þjónustu okkar. Þessi tilföng eru meðal annars persónuverndarstefna okkar, hjálparmiðstöð varðandi höfundarrétt, öryggismiðstöð og aðrar síður sem aðgengilegar eru á regluvef okkar.

Þrátt fyrir að við gefum þér heimild til að nota þjónustu okkar höldum við öllum hugverkarétti á þjónustu okkar.

Virtu aðra

Í ýmissi þjónustu okkar geturðu átt samskipti við aðra. Við viljum stuðla að umhverfi þar sem öllum er sýnd virðing, og því fylgir að þú þarft að fylgja eftirfarandi grundvallarsiðareglum:

  • fara eftir viðeigandi lögum, þar á meðal útflutningsreglum, viðskiptabönnum og lögum um mansal
  • virða réttindi annarra, þar á meðal rétt á einkalífi og hugverkarétt
  • misnota hvorki né skaða aðra eða sjálfa(n) þig (eða hóta eða hvetja til slíkrar misnotkunar eða skaða) — t.d. með því að villa um fyrir, svindla á, ófrægja, leggja í einelti, áreita eða ofsækja aðra
  • ekki misnota, skaða, trufla eða valda röskun á þjónustunni

Þjónustutengdir viðbótarskilmálar og -reglur okkar innihalda ítarlegri upplýsingar um viðeigandi framferði sem allir notendur þjónustunnar verða að fylgja. Ef þú kemst að því að aðrir fylgja ekki þessum reglum býður ýmis þjónusta okkar upp á leiðir til að tilkynna misnotkun. Ef við bregðumst við tilkynningu um misnotkun bjóðum við einnig upp á sanngjarnt ferli eins og lýst er í hlutanum Gripið til aðgerða ef vandamál koma upp.

Heimild til að nota efnið þitt

Sum þjónusta okkar er ætluð til þess að þú getir hlaðið upp, sent inn, geymt, sent, tekið á móti eða deilt efninu þínu. Þér ber engin skylda til að útvega þjónustu okkar neitt efni og þér er frjálst að velja hvaða efni þú vilt útvega. Ef þú velur að hlaða upp eða deila efni skaltu ganga úr skugga um að þú hafir nauðsynleg réttindi til að gera það og að efnið sé löglegt.

Leyfi

Efnið þitt verður áfram í þinni eigu, sem þýðir að þú heldur öllum hugverkarétti fyrir efnið. Til dæmis átt þú hugverkarétt á sköpunarverkum þínum, svo sem umsögnum sem þú skrifar. Þú getur einnig haft rétt til að deila sköpunarverki annarra ef viðkomandi hefur gefið þér leyfi til þess.

Við þurfum að fá heimild þína ef hugverkaréttur þinn takmarkar notkun okkar á efni þínu. Þú gefur Google þá heimild með þessu leyfi.

Gildissvið

Þetta leyfi nær til efnis þíns ef efnið er varið samkvæmt hugverkarétti.

Það sem ekki fellur undir leyfið

  • Þetta leyfi hefur ekki áhrif á friðhelgi einkalífs þíns – það snýst eingöngu um hugverkarétt þinn
  • Eftirfarandi gerðir efnis eru ekki innifaldar í þessu leyfi:
    • opinberar upplýsingar sem þú veitir um staðreyndir, eins og leiðréttingar á heimilisfangi staðbundins fyrirtækis. Þessar upplýsingar krefjast ekki leyfis vegna þess að þær teljast vera almenn þekking sem öllum er frjálst að nota.
    • ábendingar sem þú gefur, svo sem tillögur um hvernig bæta má þjónustuna. Fjallað er um ábendingar í hlutanum Þjónustutengd samskipti hér fyrir neðan.

Gildissvið

Þetta leyfi:

  • gildir um allan heim
  • er almennt, sem þýðir að þú getur veitt öðrum leyfi til að nota efnið þitt
  • er án rétthafagreiðslna, sem þýðir að ekki þarf að greiða nein gjöld fyrir þetta leyfi

Réttindi

Þetta leyfi gefur Google heimild til að:

  • hýsa, endurmynda, dreifa, miðla og nota efnið þitt, til dæmis með því að vista það í kerfum okkar og gera það aðgengilegt hvert sem þú ferð
  • gefa út, flytja opinberlega eða birta efnið þitt opinberlega, ef þú hefur gert það sýnilegt öðrum
  • breyta og búa til aðlaganir byggðar á efninu þínu, til dæmis með því að breyta sniði þess eða þýða það
  • veita undirleyfi fyrir þessum réttindum til:
    • annarra notenda til að gera þjónustunni kleift að starfa eins og ætlast er til, til dæmis til að gera þér kleift að deila myndum með fólki sem þú velur
    • verktaka okkar sem hafa skrifað undir samninga við okkur sem samræmast þessum skilmálum, aðeins í takmörkuðum tilgangi eins og lýst er í hlutanum Tilgangur hér að neðan

Tilgangur

Þetta leyfi er í eftirfarandi takmörkuðum tilgangi:

  • reka og bæta þjónustuna, sem felur í sér að gera þjónustunni kleift að starfa eins og til er ætlast og búa til nýja eiginleika og virkni. Þetta felur í sér notkun sjálfvirkra kerfa og reiknirita til að greina efnið þitt:
    • fyrir ruslefni, spilliforrit og ólöglegt efni
    • til þess að greina mynstur í gögnum, til að mynda til þess að ákvarða hvenær á að stinga upp á nýju albúmi í Google myndum til að geyma svipaðar myndir saman
    • til að sérsníða þjónustu okkar að þér, svo sem til að bjóða upp á tillögur og sérsniðnar leitarniðurstöður, efni og auglýsingar (sem þú getur breytt eða slökkt á í auglýsingastillingum)
    Þessi greining á sér stað þegar efni er sent eða móttekið og þegar það er vistað.
  • nota efni sem þú hefur deilt opinberlega til að kynna þjónustuna. Til dæmis gætum við vísað í umsögn sem þú hefur skrifað til að kynna forrit frá Google. Við gætum líka sýnt skjámynd af forriti sem þú hefur á boðstólum í Play Store til að kynna Google Play.
  • þróa nýja tækni og þjónustu fyrir Google sem uppfyllir þessa skilmála

Gildistími

Þetta leyfi gildir á meðan efni þitt er varið með hugverkarétti.

Ef þú fjarlægir efni sem þetta leyfi nær til úr þjónustu okkar munu kerfi okkar hætta að gera efnið aðgengilegt opinberlega innan sanngjarnra tímamarka. Tvær undantekningar eru á þessu:

  • Ef þú hafðir þegar deilt efni þínu með öðrum áður en það var fjarlægt. Ef þú deildir til dæmis mynd með vini sem tók síðan afrit af myndinni, eða deildi henni áfram, gæti myndin áfram birst á Google reikningi vinarins, jafnvel þótt þú fjarlægir hana af Google reikningnum þínum.
  • Ef þú gerir efnið aðgengilegt í gegnum þjónustu annarra fyrirtækja er mögulegt að leitarvélar, þar á meðal Google leit, finni áfram og birti efnið þitt í leitarniðurstöðum sínum.

Notkun Google þjónustu

Google reikningurinn þinn

Ef þú uppfyllir þessi aldursskilyrði getur þú stofnað Google reikning þér til hægðarauka. Til þess að nota tiltekna þjónustu þarftu að eiga Google reikning — til að nota Gmail þarf til dæmis að nota Google reikning til að eiga stað til að senda og taka við tölvupósti.

Þú berð ábyrgð á því sem þú gerir með Google reikningnum, þar á meðal á því að grípa til viðeigandi aðgerða til að halda Google reikningnum öruggum, og við hvetjum þig til að nota Öryggisskoðun reglulega.

Notkun þjónustu Google fyrir hönd stofnunar/fyrirtækis

Margir rekstraraðilar nýta sér þjónustu okkar, svo sem fyrirtæki, stofnanir sem ekki eru reknar í hagnaðarskyni og skólar. Til að nota þjónustu okkar fyrir hönd fyrirtækis eða stofnunar:

  • þarf fulltrúi fyrirtækisins/stofnunarinnar sem hefur til þess heimild að samþykkja þessa skilmála
  • gæti stjórnandi fyrirtækisins/stofnunarinnar úthlutað þér Google reikningi. Sá stjórnandi gæti krafist þess að þú fylgir viðbótarreglum og getur hugsanlega fengið aðgang að Google reikningnum þínum og gert hann óvirkan.

Til þess að veita þér þjónustuna sendum við þér stundum þjónustutilkynningar og aðrar upplýsingar. Frekari upplýsingar um samskipti okkar við þig er að finna í persónuverndarstefnu Google.

Ef þú velur að senda okkur ábendingu, til dæmis um hvernig bæta má þjónustu okkar, getum við brugðist við ábendingunni án þess að bera nokkra skyldu gagnvart þér.

Efni í Google þjónustu

Efnið þitt

Sum þjónusta okkar gefur þér tækifæri til að gera efnið þitt aðgengilegt opinberlega — til dæmis gætirðu birt umsögn um vöru eða veitingastað sem þú skrifaðir eða hlaðið inn bloggfærslu sem þú bjóst til.

Ef þú telur að einhver brjóti á hugverkarétti þínum geturðu sent okkur tilkynningu um brotið og við grípum til viðeigandi aðgerða. Til dæmis lokum við Google reikningum þeirra sem brjóta endurtekið á höfundarrétti, tímabundið eða varanlega, eins og lýst er í hjálparmiðstöð okkar varðandi höfundarrétt.

Google efni

Tiltekin þjónusta okkar inniheldur efni sem tilheyrir Google — til dæmis mikið af myndefni sem sést í Google kortum. Þú getur notað efni Google eins og þessir skilmálar og aðrir þjónustutengdir viðbótarskilmálar leyfa, en við höldum öllum hugverkarétti á efni okkar. Ekki fjarlægja, fela eða breyta á nokkurn hátt auðkennum, vörumerkjum, eða lagalegum skilmálum okkar. Ef þú vilt nota auðkenni eða vörumerki okkar skaltu skoða síðu með upplýsingum um leyfi fyrir auðkennum Google.

Annað efni

Loks veitir sum þjónusta okkar þér aðgang að efni sem tilheyrir öðru fólki eða fyrirtækjum/stofnunum — til að mynda lýsingu fyrirtækiseiganda á fyrirtæki sínu eða fréttagrein sem birtist í Google fréttum. Þú mátt ekki nota slíkt efni nema að fenginni heimild viðkomandi aðila eða með annarri aðferð sem lög leyfa. Skoðanir sem koma fram í efni fólks, fyrirtækja eða stofnana eru þeirra eigin skoðanir og endurspegla ekki endilega skoðanir Google.

Hugbúnaður í Google þjónustu

Sum þjónusta okkar felur í sér hugbúnað sem er hlaðið niður. Við gefum þér leyfi til að nota þann hugbúnað sem hluta af þjónustunni.

Þetta leyfi:

  • gildir um allan heim,
  • er almennt, sem þýðir að þú við getum leyft öðrum að nota hugbúnaðinn
  • án rétthafagreiðslna, sem þýðir að ekki þarf að greiða nein gjöld fyrir þetta leyfi
  • er persónulegt, sem þýðir að það gildir ekki um aðra
  • er óframseljanlegt, sem þýðir að þú mátt ekki framselja leyfið

Sum þjónusta okkar felur í sér hugbúnað sem boðið er upp á samkvæmt leyfisskilmálum fyrir opinn hugbúnað sem við veitum þér aðgang að. Stundum eru ákvæði í leyfi fyrir opinn hugbúnað sem hnekkja hlutum þessara skilmála með beinum hætti, svo þú skalt gæta þess að lesa þessi leyfi.

Þú mátt ekki afrita, breyta, dreifa, selja eða leigja nokkurn hluta þjónustu okkar eða hugbúnaðar. Auk þess máttu ekki heldur vendismíða eða reyna að einangra upprunakóða frá okkur nema með skriflegri heimild frá okkur eða þegar lög heimila slíkt.

Þegar þjónusta krefst eða inniheldur hugbúnað sem hægt er að hlaða niður getur slíkur hugbúnaður stundum uppfærst sjálfkrafa í tækinu þegar ný útgáfa eða eiginleiki er í boði. Tiltekin þjónusta gerir þér kleift að velja stillingar fyrir sjálfvirkar uppfærslur.

Komi upp vandamál eða ágreiningur

Lögum samkvæmt hefur þú rétt á (1) tilteknum þjónustugæðum og (2) leiðum til að leysa vandamál ef eitthvað fer úrskeiðis. Þessir skilmálar hvorki takmarka né fjarlægja nokkur þessara réttinda. Ef þú ert til dæmis neytandi nýtur þú áfram allra þeirra lagalegu réttinda sem neytendur hafa miðað við gildandi lög.

Ábyrgð

Við veitum þjónustu okkar með viðunandi færni og vandvirkni. Ef við uppfyllum ekki gæðastigið sem lýst er í þessari ábyrgð samþykkir þú að segja okkur frá því og þá vinnum við að því að leysa úr vandanum með þér.

Fyrirvarar

Einu skuldbindingar okkar varðandi þjónustuna (þar á meðal um efnið í þjónustunni, tiltekna eiginleika þjónustunnar eða áreiðanleika, framboð eða getu til að uppfylla þarfir þínar) (1) eru samkvæmt lýsingu í hlutanum Ábyrgð, (2) koma fram í þjónustutengdum viðbótarskilmálum eða (3) eru samkvæmt gildandi lögum. Við skuldbindum okkur ekki á neinn annan hátt varðandi þjónustu okkar.

Og sé þess ekki krafist með lögum veitum við ekki óbeina ábyrgð, svo sem óbeina ábyrgð á söluhæfi, notagildi í ákveðnum tilgangi og helgi eignarréttar.

Skaðabótaábyrgð

Fyrir alla notendur

Þessir skilmálar takmarka aðeins ábyrgð okkar að því marki sem gildandi lög leyfa. Nánar tiltekið takmarka skilmálarnir ekki skaðabótaábyrgð Google vegna dauða eða líkamstjóns, svika, sviksamlegra staðhæfinga, vítaverðs gáleysis eða misferlis af ásettu ráði.

Google mun ekki bera ábyrgð á tapi sem ekki fellur undir þau réttindi og skyldur sem lýst er í þessum hluta (komi upp vandamál eða ágreiningur), nema það sé til komið vegna brota okkar á þessum skilmálum eða viðbótarskilmálum fyrir einstaka þjónustu.

Aðeins fyrir notendur hjá fyrirtækjum og stofnunum

Ef þú ert viðskiptanotandi eða fyrirtæki gildir eftirfarandi að því marki sem gildandi lög leyfa:

  • Þú bætir tjón Google og stjórnenda, fulltrúa, starfsmanna og verktaka Google vegna málaferla þriðju aðila (þar á meðal aðgerða stjórnvalda) sem verða til vegna eða tengjast ólöglegri notkun þinni á þjónustunni eða brotum á þessum skilmálum eða þjónustutengdum viðbótarskilmálum. Þessar bætur ná yfir allar skaðabætur eða kostnað sem falla til vegna krafna, taps, tjóns, dóma, sekta, málskostnaðar og lögfræðikostnaðar.
  • Google ber ekki eftirfarandi skaðabótaábyrgð:
    • hagnaðarmissi, tekjumissi, glötuðum viðskiptatækifærum, tapi á viðskiptavild eða missi á áætluðum sparnaði
    • óbeinu eða afleiddu tjóni
    • refsibótum
  • Heildarskaðabótaábyrgð Google sem verður til vegna þessara skilmála eða í tengslum við þá takmarkast við þá upphæð sem hærri er, annaðhvort (1) 500 USD eða (2) 125% af gjaldinu sem þú greiddir fyrir notkun á viðkomandi þjónustu síðustu 12 mánuði fyrir brotið

Ef þú ert undanþegin(n) tiltekinni ábyrgð samkvæmt lögum, þar á meðal skaðabótaábyrgð, á slík ábyrgð ekki við um þig í þessum skilmálum. Til dæmis njóta Sameinuðu þjóðirnar tiltekinna undanþága frá lagalegum skyldum og þessir skilmálar hnekkja ekki slíkum undanþágum.

Gripið til aðgerða ef vandamál koma upp

Áður en gripið er til einhverra þeirra aðgerða sem lýst er hér að neðan látum við þig vita með fyrirvara, þegar það er hægt, lýsum fyrir þér ástæðunni fyrir aðgerðinni og gefum þér færi á að leysa vandann, nema við höfum rökstuddan grun um að slíkt myndi:

  • valda notanda, þriðja aðila eða Google skaða eða skaðabótaábyrgð
  • brjóta gegn lögum eða skipun löggæsluyfirvalda
  • skemma fyrir rannsókn
  • stefna rekstri, heilleika eða öryggi þjónustu okkar í hættu

Efni þitt fjarlægt

Ef við höfum rökstuddan grun um að efni frá þér (1) brjóti gegn þessum skilmálum, viðbótarskilmálum eða stefnum fyrir tiltekna þjónustu, (2) brjóti gegn viðeigandi lögum, eða (3) geti skaðað notendur okkar, þriðju aðila eða Google, áskiljum við okkur rétt til að fjarlægja sumt eða allt það efni í samræmi við viðeigandi lög. Dæmi um þetta er barnaklám, efni sem auðveldar mansal eða áreitni og efni sem brýtur á hugverkarétti annarra.

Aðgangi þínum að Google þjónustu lokað eða rift

Google áskilur sér rétt til að loka eða segja upp aðgangi þínum að þjónustunni eða eyða Google reikningnum þínum ef eitthvað af eftirfarandi gerist:

  • þú brýtur efnislega eða endurtekið gegn þessum skilmálum, þjónustutengdum viðbótarskilmálum eða reglum
  • okkur ber skylda til að gera það til þess að fara að lögum eða dómsúrskurði
  • við trúum því staðfastlega að hegðun þín valdi notanda, þriðja aðila eða Google skaða eða beri skaðabótaábyrgð — til dæmis með því að hakka, vefveiða, áreita, senda ruslefni, villa um fyrir öðrum eða birta efni sem þú átt ekki

Ef þú telur að Google reikningnum þínum hafi verið lokað, tímabundið eða varanlega, fyrir mistök, getur þú áfrýjað þeirri ákvörðun.

Þér er að sjálfsögðu alltaf frjálst að hætta að nota þjónustu okkar. Ef þú hættir að nota þjónustu myndum við gjarnan vilja vita hvers vegna til að við getum haldið áfram að bæta þjónustu okkar í framtíðinni.

Meðhöndlun ágreiningsmála, gildandi lög og dómstólar

Upplýsingar um hvernig hægt er að hafa samband við Google eru á samskiptasíðunni okkar.

Lög Kaliforníuríkis gilda um allan ágreining sem kemur upp vegna eða í tengslum við þessa skilmála, þjónustutengda viðbótarskilmála eða tengda þjónustu, óháð reglum um lagaskil. Eingöngu verður leyst úr slíkum ágreiningi fyrir alríkisdómstólum í Santa Clara-sýslu í Kaliforníu í Bandaríkjunum eða ríkisdómstólum í sömu sýslu, og þú og Google samþykkið lögsögu þessara dómstóla.

Að því marki sem gildandi staðbundin lög koma í veg fyrir að ágreiningsmál verði leyst fyrir dómi í Kaliforníu geturðu lagt þau fyrir dómstóla á þínu svæði. Að sama skapi falla þessi ágreiningsmál undir gildandi lög lands, ríkis eða annars búsetustaðar þíns ef gildandi staðbundin lög koma í veg fyrir að dómstólar á staðnum geti notað lög Kaliforníu til að leysa ágreiningsmálin.

Um þessa skilmála

Lögum samkvæmt hefur þú tiltekinn rétt sem ekki er hægt að takmarka með samningi á borð við þessa þjónustuskilmála. Þessum skilmálum er á engan hátt ætlað að takmarka slík réttindi.

Þessir skilmálar lýsa sambandinu milli þín og Google. Þeir veita engum öðrum einstaklingum, fyrirtækjum eða stofnunum lagalegan rétt, jafnvel þótt aðrir njóti góðs af þeim tengslum samkvæmt þessum skilmálum.

Við viljum að þessir skilmálar séu auðskildir og höfum því notað dæmi úr þjónustu okkar. Aftur á móti er ekki víst að öll þjónustan sem minnst er á sé í boði í þínu landi.

Ef ósamræmi er á milli þessara skilmála og þjónustutengdra viðbótarskilmála gilda viðbótarskilmálarnir um þá þjónustu.

Ef í ljós kemur að eitthvert ákvæði skilmála er ekki gilt eða að ekki er unnt að framfylgja því hefur það ekki áhrif á aðra hluta skilmálanna.

Ef þú ferð ekki eftir þessum skilmálum eða viðbótarskilmálum fyrir tiltekna þjónustu, og við bregðumst ekki tafarlaust við, erum við ekki að afsala okkur réttindum sem við kunnum að hafa, svo sem að grípa til aðgerða seinna meir.

Við kunnum að uppfæra þessa skilmála og viðbótarskilmála fyrir tiltekna þjónustu (1) til að endurspegla breytingar á þjónustu okkar eða viðskiptaháttum okkar — til dæmis þegar nýrri þjónustu, eiginleikum, tækni, verði eða fríðindum er bætt við (eða eldri eru fjarlægð), (2) af lagalegum ástæðum, vegna reglna eða af öryggisástæðum, eða (3) til að koma í veg fyrir misnotkun eða skaða.

Ef við gerum efnislegar breytingar á þessum skilmálum eða þjónustutengdum viðbótarskilmálum tilkynnum við þér þær með góðum fyrirvara og gefum þér tækifæri til að kynna þér breytingarnar, nema (1) þegar við gefum út nýja þjónustu eða eiginleika, eða (2) við aðstæður sem krefjast áríðandi viðbragða, svo sem til að koma í veg fyrir yfirstandandi misnotkun eða bregðast við lagaskilyrðum. Ef þú samþykkir ekki nýju skilmálana okkar ættirðu að fjarlægja efnið þitt og hætta að nota þjónustuna. Þú getur einnig bundið enda á samband þitt við okkur hvenær sem er með því að loka Google reikningnum þínum.

Skilgreiningar

ábyrgð

Trygging fyrir því að vara eða þjónusta uppfylli tiltekin viðmið.

bæta tjón eða trygging

Samningsbundin skylda einstaklings eða stofnunar/fyrirtækis til að bæta tap annars einstaklings eða stofnunar/fyrirtækis vegna málaferla, svo sem málsókna.

efnið þitt

Það sem þú skrifar, hleður inn, sendir inn, geymir, sendir, tekur við eða deilir með Google gegnum þjónustu okkar, svo sem:

  • skjöl, töflureiknar og skyggnur sem þú býrð til
  • bloggfærslur sem þú hleður inn með Blogger
  • umsagnir sem þú sendir inn í Kortum
  • myndskeið sem þú geymir á Drive
  • tölvupóstur sem þú sendir og móttekur í Gmail
  • myndir sem þú deilir með vinum með Google myndum
  • ferðaáætlanir sem þú deilir með Google

fyrirvari

Yfirlýsing sem takmarkar lagalega ábyrgð einhvers.

hlutdeildarfélag

Aðili sem tilheyrir fyrirtækjahópi Google, sem eru Google LLC og dótturfélög þess, þar á meðal eftirfarandi fyrirtæki sem veita neytendaþjónustu innan ESB: Google Ireland Limited, Google Commerce Ltd og Google Dialer Inc.

hugverkaréttur

Réttindi yfir hugverkum einstaklings, svo sem uppfinningum (einkaleyfi); ritverkum eða listaverkum (höfundarréttur); hönnun (hönnunarréttindi); og táknum, heitum og myndum sem notuð eru í viðskiptum (vörumerki). Hugverkaréttindi kunna að tilheyra þér, öðrum einstaklingi eða fyrirtæki.

Lagalegur réttur sem gerir höfundi sköpunarverks (svo sem bloggfærslu, myndar eða myndskeiðs) kleift að ákveða hvort og hvernig aðrir mega nota sköpunarverkið.

neytandi

Einstaklingur sem notar þjónustu Google í persónulegum tilgangi til einkanota utan starfsemi sinnar, fyrirtækis, starfs eða iðnar. (Sjá „viðskiptanotandi“)

Reglugerð ESB um viðskipti verkvanga og fyrirtækja

Reglugerð (ESB) 2019/1150 um sanngirni og gagnsæi fyrir fyrirtækjanotendur miðlunarþjónustu á internetinu.

skaðabótaábyrgð

Tap vegna hvers konar lagalegrar kröfu, hvort sem krafan er byggð á samningi, skaðabótarétti (þar á meðal vegna vanrækslu) eða einhverri annarri ástæðu, og jafnvel þótt tapið hafi verið fyrirsjáanlegt eða ef gera hefði mátt ráð fyrir því.

stofnun/fyrirtæki

Lögaðili (til dæmis fyrirtæki, stofnun sem ekki er rekin í hagnaðarskyni eða skóli) sem ekki er einstaklingur.

viðskiptanotandi

Einstaklingur eða aðili sem er ekki neytandi (sjá „neytandi“).

vörumerki

Tákn, heiti og myndir sem notuð eru í viðskiptum og geta aðgreint vöru eða þjónustu einstaklings eða fyrirtækis frá vörum og þjónustu annarra.

þjónusta

Google þjónusta sem fellur undir þessa skilmála eru vörurnar og þjónustan sem taldar eru upp á https://policies.google.com/terms/service-specific, þar á meðal:

  • Forrit og vefsvæði Google (til dæmis Leit og Kort)
  • verkvangar (eins og Google Play)
  • samþætt þjónusta (svo sem Kort, sem eru felld inn í forrit eða vefsvæði annarra fyrirtækja)
  • tæki (eins og Google Home)
Google forrit
Aðalvalmynd