Persónuverndarstefna Google
Þegar þú notar þjónustu okkar treystir þú okkur fyrir upplýsingunum þínum. Okkur er ljóst að slíku fylgir mikil ábyrgð og við leggjum mikið á okkur til að vernda upplýsingarnar þínar og setja þig við stjórnvölinn.
Markmið þessarar persónuverndarstefnu er að hjálpa þér að glöggva þig á hvaða upplýsingum við söfnum, af hverju við söfnum þeim og hvernig þú getur uppfært, stjórnað, flutt út og eytt upplýsingunum þínum.
Yfirferð persónuverndarstillinga
Viltu breyta persónuverndarstillingunum þínum?
Fara í gegnum yfirferð persónuverndarstillinga
Tekur gildi 28. ágúst 2020 | Eldri útgáfur | Sækja PDF
Við höldum úti þjónustum af ólíkum toga sem hjálpa milljónum manna á hverjum degi að kanna og eiga í samskiptum við umheiminn á nýjan hátt. Þjónustur okkar eru meðal annars:
- Google forrit, vefsvæði og tæki, eins og Google leit, YouTube og Google Home
- Verkvangar eins og Chrome vafrinn og Android stýrikerfið
- Vörur sem eru innbyggðar í forrit og vefsvæði þriðju aðila, eins og auglýsingar og innfelld Google kort
Þú getur notað þjónustur okkar á ýmsa vegu til að hafa stjórn á persónuvernd þinni. Þú getur til dæmis stofnað Google reikning ef þú vilt búa til og stjórna efni eins og tölvupósti og myndum eða til að geta fengið leitarniðurstöður sem eru meira viðeigandi. Þú getur líka notað ýmsar þjónustur Google eftir að þú hefur skráð þig út eða án þess að stofna reikning yfirhöfuð, til dæmis leitað á Google eða horft á myndskeið á YouTube. Þú getur einnig kosið að vafra nafnlaust um netið með Chrome í huliðsstillingu. Þú getur líka breytt persónuverndarstillingum þínum í öllum þjónustum okkar ef þú vilt stjórna því hvaða upplýsingum við söfnum og hvernig upplýsingarnar þínar eru notaðar.
Við höfum bætt við dæmum, myndskeiðum og skilgreiningum á lykilhugtökum til að útskýra hlutina eins skýrt og hægt er. Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi þessa persónuverndarstefnu geturðu haft samband við okkur.
Upplýsingar sem Google safnar
Við viljum að þú vitir um þær gerðir upplýsinga sem við söfnum þegar þú notar þjónustur okkar
Við söfnum upplýsingum til að veita öllum notendum okkar betri þjónustu – allt frá því að finna út grunnatriði eins og hvaða tungumál þú notar til flóknari atriða eins og hvaða auglýsingar gætu gagnast þér, hvaða fólk skiptir þig mestu máli á netinu eða hvaða myndskeið á YouTube gætu fallið þér í geð. Upplýsingarnar sem Google safnar og hvernig þær upplýsingar eru notaðar fer eftir því hvernig þú notar þjónustu okkar og hvernig þú hagar persónuverndarstillingunum þínum.
Þegar þú ert ekki skráð(ur) inn á Google reikning geymum við upplýsingarnar sem við söfnum með einkvæmum auðkennum sem eru tengd vafranum, forritinu eða tækinu sem þú notar. Þetta hjálpar okkur til dæmis við að viðhalda tungumálastillingum þínum þegar þú vafrar um netið.
Þegar þú ert skráð(ur) inn söfnum við líka upplýsingum sem við geymum á Google reikningnum þínum og meðhöndlum þær sem persónuupplýsingar.
Hlutir sem þú býrð til eða lætur okkur í té
Þegar þú stofnar Google reikning lætur þú okkur í té persónuupplýsingar sem hafa að geyma nafn þitt og aðgangsorð. Þú getur einnig kosið að bæta símanúmeri eða greiðsluupplýsingum við reikninginn þinn. Jafnvel þótt þú sért ekki skráð(ur) inn á Google reikning geturðu valið að láta okkur í té upplýsingar, til dæmis netfang til að fá fréttir af þjónustum okkar.
Við söfnum einnig efni sem þú býrð til, hleður inn eða færð sent frá öðrum þegar þú notar þjónustur okkar. Þetta nær til hluta eins og tölvupósts sem þú skrifar og móttekur, mynda og myndskeiða sem þú vistar, skráa og töflureikna sem þú býrð til og ummæla sem þú skrifar við myndskeið á YouTube.
Upplýsingar sem við söfnum þegar þú notar þjónustur okkar
Forritin, vafrarnir og tækin þín
Við söfnum upplýsingum um forrit, vafra og tæki sem þú notar til að fá aðgang að þjónustum Google, en það hjálpar okkur að bjóða þér upp á eiginleika eins og sjálfvirkar uppfærslur á vörum og minnka birtustig skjásins þegar lítið er eftir af rafhlöðunni.
Upplýsingarnar sem við söfnum eru meðal annars einkvæm auðkenni, gerð og stillingar vafra, gerð og stillingar tækis, stýrikerfi, upplýsingar um farsímakerfi, þ.m.t. heiti farsímafyrirtækisins og símanúmer, og útgáfunúmer forrits. Við söfnum einnig upplýsingum um samskipti forritanna, vafranna og tækjanna þinna við þjónustur okkar, þ.m.t. IP-tölu, hrunskýrslum, kerfisvirkni og dagsetningu, tíma og tilvísunarvefslóð beiðninnar þinnar.
Við söfnum þessum upplýsingum þegar þjónusta Google í tækinu þínu hefur samband við þjóna okkar, til dæmis þegar þú setur upp forrit úr Play Store eða þegar þjónusta leitar að sjálfvirkum uppfærslum. Þegar þú notar Android tæki með Google forritum hefur tækið þitt samband við þjóna Google öðru hverju til að veita upplýsingar um tækið þitt og tengingu við þjónustur okkar. Þessar upplýsingar innihalda hluti eins og gerð tækisins þíns, heiti farsímafyrirtækisins, hrunskýrslur og hvaða forrit þú hefur sett upp.
Aðgerðir þínar
Við söfnum upplýsingum um aðgerðir þínar í þjónustum okkar, en við nýtum þær til dæmis til að mæla með myndskeiðum á YouTube sem þér gæti líkað. Á meðal upplýsinga sem við söfnum um aðgerðir geta verið:
- Hugtök sem þú leitar að
- Myndskeið sem þú horfir á
- Skoðun og notkun efnis og auglýsinga
- Radd- og hljóðupplýsingar þegar þú notar hljóðeiginleika
- Kaupaðgerðir
- Fólk sem þú átt í samskiptum við eða deilir efni með
- Aðgerðir á vefsvæðum og í forritum þriðju aðila sem nota þjónustur okkar
- Vefskoðunarferill Chrome sem þú hefur samstillt við Google reikninginn þinn
Ef þú notar þjónustur okkar til að hringja eða taka við símtölum eða senda og taka við skilaboðum söfnum við hugsanlega upplýsingum um símanotkun, svo sem um símanúmerið þitt, símanúmer þess sem hringdi, símanúmer þess sem hringt var í, númer sem símtal var sent í, dagsetningu og tímasetningu símtala og skilaboða, lengd símtala, leiðarupplýsingar og gerð símtala.
Þú getur farið inn á Google reikninginn þinn til að finna og stjórna upplýsingum um aðgerðir þínar sem eru vistaðar á reikningnum.
Upplýsingar um staðsetningu þína
Við söfnum upplýsingum um staðsetningu þína þegar þú notar þjónustur okkar, en það hjálpar okkur að bjóða þér upp á eiginleika eins og akstursleiðarlýsingu fyrir helgarferð eða sýningartíma í kvikmyndahúsum í næsta nágrenni við þig.
Hægt er að ákvarða staðsetningu þína af mismunandi nákvæmni með eftirfarandi:
- GPS
- IP-tala
- Gögnum frá skynjara í tækinu þínu
- Upplýsingum um hluti nálægt tækinu þínu, eins og Wi-Fi aðgangsstaði, farsímasenda og tæki sem eru með kveikt á Bluetooth
Gerðir staðsetningargagna sem við söfnum fara að hluta til eftir tækinu þínu og reikningsstillingum. Þú getur til dæmis kveikt eða slökkt á staðsetningu Android tækisins þíns í stillingaforriti tækisins. Þú getur einnig kveikt á staðsetningarferli ef þú vilt búa til lokað kort af ferðum þínum með innskráð tæki.
Við tilteknar kringumstæður safnar Google einnig upplýsingum um þig frá opinberlega aðgengilegum heimildum. Ef nafnið þitt birtist til dæmis í dagblaði í þinni heimabyggð gæti leitarvél Google vistað greinina í atriðaskrá og birt hana öðru fólki þegar það leitar að nafninu þínu. Við kunnum einnig að safna upplýsingum um þig frá traustum samstarfsaðilum okkar, þar á meðal samstarfsaðilum á sviði markaðsmála sem veita okkur upplýsingar um hugsanlega viðskiptavini viðskiptaþjónustu okkar og samstarfsaðila á sviði öryggismála sem veita okkur upplýsingar sem geta veitt vernd gegn misnotkun. Við fáum einnig upplýsingar frá auglýsendum til að bjóða upp á auglýsinga- og rannsóknarþjónustu fyrir þeirra hönd.
Við notum ólíka tækni við söfnun og geymslu upplýsinga, þ. á m. fótspor, pixlamerki, staðbundna geymslu, eins og vefgeymslu vafra eða skyndiminni forritsgagna, gagnagrunna og netþjónaskrá.
Ástæðan fyrir því að Google safnar gögnum
Við notum gögn til að bæta þjónustu
Við notum upplýsingar sem við söfnum í öllum þjónustum okkar í eftirfarandi tilgangi:
Til að veita þjónustuna
Við notum upplýsingarnar til að veita þjónustuna, til dæmis með því að vinna úr orðum sem þú leitar að til að birta niðurstöður eða hjálpa þér að deila efni með því að stinga upp á viðtakendum á meðal tengiliða þinna.
Til að viðhalda og bæta þjónustu okkar
Við notum einnig upplýsingarnar þínar til að tryggja að þjónustur okkar starfi á tilætlaðan hátt, til dæmis með því að rekja bilanir eða leysa úr vandamálum sem þú tilkynnir um. Við notum einnig upplýsingarnar þínar til að gera úrbætur á þjónustum okkar, til dæmis getum við bætt villuleit í öllum þjónustum okkar ef við áttum okkur á því hvaða leitarorð eru oftast stafsett rangt.
Til að þróa nýjar þjónustur
Við notum upplýsingar sem við söfnum í núverandi þjónustu okkar til að þróa nýjar þjónustur. Upplýsingar um hvernig fólk skipulagði myndirnar sínar í Picasa, fyrsta myndaforritinu frá Google, hjálpuðu okkur til dæmis við að hanna Google myndir.
Til að veita sérsniðna þjónustu, þ.m.t. efni og auglýsingar
Við notum upplýsingar sem við söfnum til að sérsníða þjónustur okkar fyrir þig, til dæmis með því að bjóða þér upp á tillögur, sérsniðið efni og sérsniðnar leitarniðurstöður. Öryggisskoðun veitir til dæmis ráðleggingar um öryggi miðað við hvernig þú notar vörur frá Google. Google Play notar einnig upplýsingar eins og hvaða forrit þú hefur þegar sett upp og myndskeið sem þú hefur skoðað á YouTube til að stinga upp á nýjum forritum sem þér gæti líkað við.
Við kunnum að birta þér sérsniðnar auglýsingar sem miðast við áhugasvið þín, eftir því hvaða stillingar þú velur. Ef þú leitar til dæmis að „fjallahjól“ gætirðu séð auglýsingu fyrir íþróttavörur þegar þú ferð á vefsvæði sem birtir auglýsingar í gegnum Google. Þú getur stjórnað því hvaða upplýsingar við notum til að sýna þér auglýsingar með því að skoða auglýsingastillingarnar þínar.
- Við sýnum þér ekki sérsniðnar auglýsingar byggðar á viðkvæmum flokkum á borð við kynþátt, trúarbrögð, kynhneigð eða heilsufar.
- Við deilum ekki upplýsingum sem auðkenna þig persónulega fyrir auglýsendum, svo sem nafni eða netfangi, nema þú óskir eftir því. Ef þú sérð til dæmis auglýsingu fyrir blómabúð í næsta nágrenni við þig og velur hnappinn „ýttu til að hringja“ komum við símtalinu á og deilum hugsanlega símanúmerinu þínu með blómabúðinni.
Til að mæla árangur
Við notum gögn til greininga og mælinga til að skilja betur hvernig þjónustur okkar eru notaðar. Við greinum til dæmis gögn um heimsóknir þínar á vefsvæði okkar til að fínstilla hönnun í vörum okkar. Við notum einnig gögn um auglýsingar sem þú átt í samskiptum við til að hjálpa auglýsendum til að átta sig betur á árangri auglýsingaherferða þeirra. Við notum verkfæri af ýmsum toga til þess, þar á meðal Google Analytics. Þegar þú ferð á vefsvæði sem nota Google Analytics kunna Google og viðskiptavinur Google Analytics að tengja upplýsingar um aðgerðir þínar á vefsvæðinu við aðgerðir þínar á öðrum vefsvæðum sem nýta sér auglýsingaþjónustu okkar.
Til að eiga í samskiptum við þig
Við notum upplýsingar sem við söfnum, eins og netfangið þitt, til að hafa samband við þig. Til dæmis getum við sent þér tilkynningu ef við verðum vör við grunsamlega virkni, eins og tilraun til innskráningar á Google reikninginn þinn frá óvenjulegum stað. Við látum þig einnig vita um væntanlegar breytingar eða endurbætur á þjónustu okkar. Og ef þú hefur samband við Google höldum við til haga skrá yfir beiðnir þínar til að aðstoða þig við úrlausn hugsanlegra vandamála sem þú glímir við.
Til að vernda Google, notendur okkar og almenning
Við notum upplýsingar til að bæta öryggi og áreiðanleika í þjónustum okkar. Það gerum við til dæmis með því að greina, koma í veg fyrir og bregðast við svikum, misnotkun, öryggisáhættum og tæknilegum vandamálum sem gætu skaðað Google, notendur okkar eða almenning.
Við notum mismunandi tækni til að vinna úr upplýsingunum þínum í þessum tilgangi. Við notum sjálfvirk kerfi sem greina efni frá þér til að veita þér sérsniðnar leitarniðurstöður, sérsniðnar auglýsingar og aðra eiginleika sem eru sérsniðnir að notkun þinni á þjónustum okkar. Við greinum einnig efni frá þér til að geta greint misnotkun á borð við ruslpóst, spilliforrit og ólöglegt efni. Við notum einnig reiknirit til að greina mynstur í gögnum. Google Translate hjálpar til dæmis fólki að eiga í samskiptum á mörgum tungumálum með því að greina sameiginleg tungumálamynstur í orðasamböndum sem þú biður um þýðingu á.
Við kunnum að sameina upplýsingar sem við söfnum í öllum þjónustum okkar og tækjunum sem þú notar í ofangreindum tilgangi. Ef þú horfir til dæmis á myndskeið af gítarleikurum á YouTube sérðu hugsanlega auglýsingu fyrir gítarkennslu á vefsvæði sem notar auglýsingavörur okkar. Aðgerðir þínar á öðrum vefsvæðum og forritum kunna að verða tengdar við persónuupplýsingar þínar til að bæta þjónustur Google og auglýsingar sem Google birtir, eftir því hvaða reikningsstillingar þú velur.
Ef aðrir notendur hafa undir höndum netfangið þitt eða aðrar upplýsingar sem auðkenna þig getum við sýnt þeim Google reikningsupplýsingar þínar sem eru sýnilegar opinberlega, eins og nafnið þitt og myndina af þér. Þetta hjálpar fólki til dæmis að sjá að tölvupóstur sem þú sendir sé frá þér.
Við biðjum um samþykki þitt áður en við notum upplýsingar frá þér í tilgangi sem er ekki talinn upp í þessari persónuverndarstefnu.
Persónuverndarstillingar þínar
Þú hefur val um hvaða upplýsingar við söfnum og hvernig þær eru notaðar
Í þessum hluta er farið yfir mikilvægustu stillingarnar til að hafa umsjón með persónuvernd í þjónustum okkar. Þú getur einnig farið í Yfirferð persónuverndarstillinga, þar sem hægt er að fara yfir og breyta mikilvægum persónuverndarstillingum. Auk áðurnefndra verkfæra bjóðum við einnig upp á sérstakar persónuverndarstillingar í vörum okkar – frekari upplýsingar er að finna í persónuverndarhandbók okkar.
Fara í yfirferð persónuverndarstillinga
Stjórnun, skoðun og uppfærsla á upplýsingunum þínum
Þegar þú ert skráð(ur) inn geturðu alltaf skoðað og uppfært upplýsingarnar með því að fara í þjónusturnar sem þú notar. Myndir og Drive eru til dæmis báðar hannaðar til að hjálpa þér að stjórna tiltekinni gerð af efni sem þú hefur vistað hjá Google.
Við höfum einnig búið til stað þar sem þú getur skoðað og stjórnað upplýsingunum sem eru vistaðar á Google reikningnum þínum. Google reikningurinn þinn felur í sér:
Persónuverndarstillingar
Aðgerðastýringar
Veldu hvaða aðgerðir þú vilt vista á reikningnum þínum. Þú getur til dæmis kveikt á staðsetningarferlinum ef þú vilt fá upplýsingar um umferð þegar þú ferðast milli vinnustaðar og heimilis eða vistað áhorfsferilinn þinn á YouTube til að fá betri uppástungur um myndskeið.
Auglýsingastillingar
Stjórnaðu auglýsingastillingunum þínum varðandi auglýsingar sem þú sérð á Google og á vefsvæðum og forritum aðila sem birta auglýsingar í gegnum Google. Þú getur breytt áhugamálum þínum, valið hvort persónuupplýsingarnar þínar séu notaðar til að birta auglýsingar sem höfða meira til þín og kveikt eða slökkt á tilteknum auglýsingaþjónustum.
Um þig
Stjórnaðu því hvað aðrir sjá um þig í þjónustum Google
Meðmæli frá tengslanetinu
Veldu hvort að nafnið þitt og myndin af þér birtist við hlið aðgerða þinna, eins og umsögnum og tillögum, sem birtast í auglýsingum.
Fara í „Meðmæli frá tengslanetinu“
Upplýsingar sem þú deilir
Ef þú ert notandi G Suite geturðu stjórnað því með hverjum þú deilir upplýsingum í gegnum Google+ reikninginn þinn.
Skoða upplýsingar sem þú deilir
Aðferðir til að skoða og uppfæra upplýsingarnar þínar
Mínar aðgerðir
„Mínar aðgerðir“ gerir þér kleift að skoða og stjórna gögnunum sem verða til þegar þú notar þjónustur Google, eins og leitirnar þínar eða heimsóknir þínar á Google Play. Þú getur leitað eftir dagsetningu og umfjöllunarefni og eytt hluta af eða öllum aðgerðum þínum.
Google stjórnborð
Google stjórnborðið gerir þér kleift að stjórna upplýsingum sem tengjast tilteknum vörum.
Persónuupplýsingar þínar
Stjórnaðu samskiptaupplýsingum þínum, eins og nafninu, netfanginu og símanúmerinu þínu.
Þegar þú ert skráð(ur) út geturðu stjórnað upplýsingum sem tengjast vafranum eða tækinu þínu, þ. á m.:
- Sérsniðin leit eftir útskráningu: Veldu hvort nota skuli leitaraðgerðirnar þínar til að bjóða þér niðurstöður og uppástungur sem eru meira viðeigandi.
- Stillingar fyrir YouTube: Gerðu hlé á og eyddu leitarferlinum þínum á YouTube og áhorfsferlinum þínum á YouTube.
- Auglýsingastillingar: Stjórnaðu auglýsingastillingunum þínum varðandi auglýsingar sem þú sérð á Google og á vefsvæðum og forritum aðila sem birta auglýsingar í gegnum Google
Flytja út, fjarlægja og eyða upplýsingunum þínum
Þú getur flutt út afrit af efninu á Google reikningnum þínum ef þú vilt taka öryggisafrit af því eða nota það í þjónustu sem er utan Google.
Þú getur einnig beðið um að láta fjarlægja efni af tilteknum þjónustum Google í samræmi við gildandi lög.
Þú getur gert eftirfarandi til að eyða upplýsingunum þínum:
- Eytt efninu þínu af tilteknum þjónustum Google
- Leitað að og síðan eytt tilteknum atriðum af reikningnum þínum með því að nota Mínar aðgerðir
- Eytt tilteknum Google vörum, þ. á m. upplýsingum þínum sem tengjast slíkum vörum
- Eyða öllum Google reikningnum þínum
Loks getur þú notað Stjórnun óvirks reiknings til að veita öðrum aðgang að hluta Google reikningsins þíns, ef upp koma óvæntar aðstæður og þú getur ekki notað reikninginn þinn.
Einnig eru til aðrar leiðir til að stjórna því hvaða upplýsingum Google safnar, hvort sem þú ert skráð(ur) inn á Google reikning eða ekki, þ. á m.:
- Vafrastillingar: Þú getur til dæmis stillt vafrann þannig að hann láti vita þegar Google kemur fyrir fótspori í vafranum. Þú getur stillt vafrann þannig að hann útiloki öll fótspor frá tilteknu léni eða öllum lénum. Hafðu samt í huga að þjónustur reiða sig á fótspor til að starfa á réttan hátt, til dæmis til að muna tungumálastillingarnar þínar.
- Tækisbundnar stillingar: Tækið þitt er hugsanlega búið stýringum sem stjórna því hvaða upplýsingum við söfnum. Þú getur til dæmis breytt staðsetningarstillingunum í Android tækinu þínu.
Upplýsingum þínum deilt
Þegar þú deilir upplýsingunum þínum
Margar af þjónustum okkar gera þér kleift að deila upplýsingum með öðru fólki og þú stjórnar því hvernig þú deilir slíkum upplýsingum. Þú getur til dæmis ákveðið að deila myndskeiðum á YouTube opinberlega eða haft myndskeiðin þín lokuð. Hafðu í huga að þegar þú deilir upplýsingum opinberlega kunna þær að verða aðgengilegar í leitarvélum, þar á meðal Google leit.
Þegar þú ert skráð(ur) inn og átt samskipti í gegnum tilteknar þjónustur Google, til dæmis þegar þú skrifar ummæli við myndskeið á YouTube eða gefur forriti umsögn á Play, birtist nafnið þitt og myndin af þér við hliðina á aðgerðinni þinni. Við getum einnig birt slíkar upplýsingar í auglýsingum háð stillingu þinni fyrir meðmæli frá tengslanetinu.
Þegar Google deilir upplýsingunum þínum
Við deilum ekki persónuupplýsingum með fyrirtækjum, stofnunum eða einstaklingum utan Google nema í eftirfarandi tilvikum:
Leyfi frá þér liggi fyrir
Við deilum persónuupplýsingum út fyrir Google þegar þú hefur gefið heimild til þess. Ef þú til dæmis notar Google Home til að panta borð í gegnum bókunarþjónustu fáum við leyfi frá þér áður en við gefum veitingastaðnum upp nafn þitt eða símanúmer. Við biðjum þig um afdráttarlaust samþykki áður en við deilum viðkvæmum persónuupplýsingum.
Með lénsstjórum
Ef þú ert námsmaður eða vinnur fyrir fyrirtæki eða stofnun sem notar þjónustur Google (eins og G Suite) hafa lénsstjórinn og endurseljendur sem stjórna reikningnum þínum aðgang að Google reikningnum þínum. Þeir geta hugsanlega gert eftirfarandi:
- Fengið aðgang að og haldið eftir upplýsingum sem geymdar eru á reikningnum þínum, eins og tölvupósti
- Skoðað tölfræði varðandi reikninginn þinn, eins og hversu mörg forrit þú setur upp
- Breytt aðgangsorði reikningsins
- Lokað fyrir aðgang þinn að reikningnum, tímabundið eða varanlega
- Sótt reikningsupplýsingar þínar í því skyni að fullnægja viðeigandi lagaskilyrðum, reglugerðum og málsmeðferðum eða til að framfylgja beiðnum yfirvalda.
- Takmarkað getu þína til að eyða eða breyta upplýsingunum eða persónuverndarstillingum þínum
Til ytri greiningar gagna
Við afhendum samstarfsaðilum okkar eða öðrum traustum fyrirtækjum og einstaklingum persónuupplýsingar til úrvinnslu fyrir okkar hönd, samkvæmt leiðbeiningum okkar, í samræmi við persónuverndarstefnu okkar og aðrar þær trúnaðar- og öryggisreglur sem við eiga. Við notum til dæmis þjónustuaðila til að aðstoða okkur í þjónustudeildum okkar.
Af lagalegum ástæðum
Við deilum persónuupplýsingum utan Google ef við teljum, í góðri trú, að aðgangur að þeim, notkun á þeim eða birting á þeim teljist nauðsynleg til að:
- Fylgja öllum viðeigandi lögum, reglugerðum, málsmeðferðum eða framfylgja beiðnum yfirvalda. Við deilum upplýsingum um fjölda og gerðir beiðna sem við fáum frá stjórnvöldum í gagnsæisskýrslunni okkar.
- Framfylgja viðeigandi þjónustuskilmálum, þar á meðal til að rannsaka hugsanleg tilvik um misnotkun.
- Greina, koma í veg fyrir eða bregðast á annan hátt við svikum, öryggisbrotum eða tæknivandamálum.
- Verja réttindi, eignir og öryggi Google, notenda okkar eða almennings fyrir skemmdarverkum, eins og lög mæla fyrir um og leyfa.
Við munum hugsanlega deila ópersónugreinanlegum upplýsingum opinberlega og með samstarfsaðilum okkar, eins og útgefendum, auglýsendum, þróunaraðilum eða rétthöfum. Við deilum til dæmis upplýsingum opinberlega í því skyni að sýna þróun í almennri notkun á þjónustu okkar. Við leyfum einnig tilteknum samstarfsaðilum okkar að safna upplýsingum úr vafranum þínum eða tækinu þínu í auglýsinga- og mælingarskyni, þar sem þeir nota eigin fótspor eða svipaða tækni.
Ef Google tekur þátt í samruna, yfirtöku eða sölu eigna munum við eftir sem áður tryggja trúnað um allar persónuupplýsingar og senda þeim notendum sem hlut eiga að máli tilkynningu áður en persónuupplýsingar eru fluttar eða þær falla undir nýja persónuverndarstefnu.
Öryggi upplýsinganna þinna
Öryggi er innbyggt í þjónustur okkar til að vernda upplýsingarnar þínar
Allar vörur frá Google eru með innbyggða, öfluga öryggiseiginleika sem vernda stöðugt upplýsingarnar þínar. Við höldum þjónustum okkar stöðugt við til að fá betri innsýn við að greina og loka sjálfkrafa á öryggisógnir áður en þær ná til þín. Við sendum þér tilkynningar ef við greinum hættu sem við teljum að þú ættir að vita um og veitum þér leiðbeiningar um hvernig þú getur aukið öryggi.
Við leggjum okkur fram við að vernda þig og Google fyrir óheimilum aðgangi, breytingum, birtingu eða skemmdarverkum á upplýsingum í okkar vörslu, sem felur í sér eftirfarandi:
- Við notum dulritun til að tryggja öryggi gagnanna þinna á meðan þau eru flutt
- Við bjóðum upp á fjölda öryggiseiginleika eins og örugga vefnotkun, öryggisskoðun og tvíþætta staðfestingu í því skyni að vernda reikninginn þinn
- Við endurskoðum verkferli okkar við söfnun, geymslu og úrvinnslu upplýsinga, þar með taldar tæknilegar öryggisráðstafanir, til að verja okkur fyrir aðgangi að kerfum okkar án heimilda
- Við takmörkum aðgang að persónuupplýsingum við starfsfólk Google, verktaka og umboðsmenn sem þurfa að fá slíkar upplýsingar til þess að geta unnið úr þeim. Allir sem fá slíkan aðgang lúta ströngum samningsbundnum skilyrðum varðandi trúnað og kunna að sæta refsiaðgerðum eða brottrekstri ef þau skilyrði eru ekki uppfyllt.
Útflutningur og eyðing upplýsinga þinna
Þú getur flutt út afrit af upplýsingunum þínum eða eytt þeim af Google reikningnum þínum hvenær sem er.
Þú getur flutt út afrit af efninu á Google reikningnum þínum ef þú vilt taka öryggisafrit af því eða nota það í þjónustu sem er utan Google.
Þú getur gert eftirfarandi til að eyða upplýsingunum þínum:
- Eytt efninu þínu af tilteknum þjónustum Google
- Leitað að og síðan eytt tilteknum atriðum af reikningnum þínum með því að nota Mínar aðgerðir
- Eytt tilteknum Google vörum, þ. á m. upplýsingum þínum sem tengjast slíkum vörum
- Eyða öllum Google reikningnum þínum
Varðveisla upplýsinga þinna
Gögnum sem við söfnum er haldið eftir í mislangan tíma, allt eftir því um hvaða gögn er að ræða, hvernig þau eru notuð og hvaða stillingar þú velur:
- Sumum gögnum getur þú eytt hvenær sem er, til dæmis efni sem þú býrð til eða hleður inn. Þú getur einnig eytt upplýsingum um aðgerðir sem eru vistaðar á reikningnum þínum eða valið að láta eyða þeim sjálfkrafa eftir tiltekinn tíma.
- Öðrum gögnum, svo sem auglýsingagögnum í netþjónaskrám, er eytt eða þau gerð sjálfkrafa nafnlaus eftir tiltekinn tíma.
- Sumum gögnum, svo sem upplýsingum um hve oft þú notar þjónustur okkar, er haldið eftir þar til þú eyðir Google reikningnum þínum.
- Og sumum gögnum er haldið eftir lengur þegar slíkt er nauðsynlegt af góðum og gildum lagalegum eða viðskiptalegum ástæðum, svo sem vegna öryggis, til að sporna gegn svikum og misnotkun eða vegna bókhaldsskráningar.
Þegar þú eyðir gögnum fylgjum við verkferli fyrir eyðingu efnis til að tryggja að gögnin þín séu fjarlægð algerlega og örugglega af þjónum okkar eða einungis haldið eftir á nafnlausu formi. Við gerum okkar ítrasta til að koma í veg fyrir að upplýsingum verði eytt fyrir mistök eða af slæmum ásetningi. Þess vegna getur orðið bið á milli þess sem þú eyðir einhverju og þegar afritum er eytt af virkum kerfum og varakerfum okkar.
Þú getur kynnt þér nánar hversu lengi Google heldur eftir gögnum, þ.m.t. hversu langan tíma það tekur okkur að eyða upplýsingunum þínum.
Fylgni við reglur og samvinna við eftirlitsaðila
Við endurskoðum reglulega þessa persónuverndarstefnu og gætum þess að við vinnum úr upplýsingum þínum samkvæmt henni.
Gagnaflutningar
Við höldum úti þjónum víðsvegar um heiminn og úrvinnsla á upplýsingunum þínum getur farið fram á þjónum sem eru staðsettir utan heimalands þíns. Lög um persónuvernd eru mismunandi á milli landa, þar sem sum lönd veita meiri vernd en önnur. Óháð því hvar unnið er úr upplýsingunum þínum bjóðum við upp á sömu vernd og lýst er í þessari stefnu. Við vinnum eftir tilteknum lagarömmum varðandi gagnaflutninga, eins og EU-U.S. og Swiss-U.S. Privacy Shield lagarömmunum (samkomulagi Evrópusambandsins og samkomulagi Sviss og Bandaríkjanna til varnar friðhelgi einkalífsins).
Þegar okkur berast formlegar, skriflegar kvartanir höfum við samband við aðilann sem lagði kvörtunina fram. Við vinnum með viðeigandi eftirlitsaðilum, meðal annars persónuverndar stofnunum í hverju landi fyrir sig, til að leysa úr umkvörtunum varðandi gagnaflutning sem við getum ekki leyst úr í samvinnu við þig.
Kröfur í Kaliforníu
Samkvæmt CCPA-löggjöfinni er tiltekin upplýsingagjöf nauðsynleg fyrir íbúa í Kaliforníu.
Þessari persónuverndarstefnu er ætlað að aðstoða þig við að skilja hvernig Google meðhöndlar upplýsingarnar þínar:
- Við útskýrum hvaða flokkum upplýsinga Google safnar og uppruna þeirra upplýsinga í Upplýsingar sem Google safnar.
- Við útskýrum hvernig Google notar upplýsingar í Ástæðan fyrir því að Google safnar gögnum.
- Við útskýrum hvenær Google kann að deila upplýsingum í Upplýsingum þínum deilt. Google selur ekki persónuupplýsingarnar þínar.
Samkvæmt CCPA-löggjöfinni hafa notendur einnig rétt til að biðja um upplýsingar um það hvernig Google safnar, notar og birtir persónuupplýsingarnar þínar. Hún veitir þér rétt til að fá aðgang að upplýsingunum þínum og fara fram á að Google eyði þeim. Samkvæmt CCPA-löggjöfinni er einnig óheimilt að mismuna þér fyrir að nýta þér persónuverndarréttindi þín.
Við lýsum þeim valkostum sem þú hefur við stjórnun persónuupplýsinga og gagna í þjónustu Google í Persónuverndarstillingar þínar. Þú getur nýtt þér réttindi þín með því að nota þessar stýringar sem gera þér kleift að fá aðgang að, fara yfir, uppfæra og deila upplýsingunum þínum, sem og að flytja út og hlaða niður afriti af þeim. Þegar þú notar þær sannreynum við beiðnina með því að staðfesta að þú hafir skráð þig inn á Google reikninginn þinn. Ef þú hefur spurningar eða beiðnir sem tengjast réttindum þínum samkvæmt CCPA-löggjöfinni getur þú (eða viðurkenndur fulltrúi þinn) einnig haft samband við Google.
CCPA-löggjöfin krefst lýsingar á meðhöndlun gagna eftir tilteknum flokkum. Þessi tafla notar þessa flokka til að skipuleggja upplýsingarnar í þessari persónuverndarstefnu.
Flokkar persónuupplýsinga sem við söfnum
Auðkenni á borð við nafn, símanúmer og heimilisfang þitt, sem og einkvæm auðkenni sem tengjast vafranum, forritinu eða tækinu sem þú notar.
Lýðfræðilegar upplýsingar á borð við aldur, kyn og tungumál.
Viðskiptaupplýsingar á borð við greiðsluupplýsingar og feril innkaupa í þjónustu Google.
Lífkennisupplýsingar ef þú kýst að veita þær, á borð við fingraför í vöruþróunarrannsóknum Google.
Internet, netkerfi og aðrar aðgerðarupplýsingar á borð við leitarfyrirspurnir þínar, hvað þú skoðar og hvernig þú meðhöndlar efni og auglýsingar; vafraferill Chrome sem þú hefur samstillt við Google reikninginn þinn; upplýsingar um samskipti forritanna, vafranna og tækjanna þinna við þjónustu okkar (á borð við IP-tölur, hrunskýrslur og kerfisvirkni) og aðgerðir á vefsvæðum og í forritum þriðju aðila sem nota þjónustu okkar. Þú getur farið yfir og stjórnað aðgerðargögnum sem eru vistuð á Google reikningnum þínum í Mínar aðgerðir.
Gögn staðsetningarmerkingar sem kunna að vera ákvörðuð með GPS, IP-tölu og öðrum gögnum frá skynjurum á eða í kringum tækið þitt, sem að hluta til fer eftir tækinu þínu og stillingum reikningsins. Frekari upplýsingar um notkun Google á staðsetningarupplýsingum.
Hljóðupplýsingar, rafrænar upplýsingar, sjónrænar upplýsingar og aðrar svipaðar upplýsingar á borð við radd- og hljóðupplýsingar þegar þú notar hljóðeiginleika.
Einkaupplýsingar, starfsupplýsingar og námsupplýsingar, á borð við upplýsingar sem þú veitir eða sem er haldið utan um á G Suite reikningi af fyrirtækinu sem þú vinnur hjá eða menntastofnun sem þú stundar nám hjá.
Aðrar upplýsingar sem þú býrð til eða veitir, á borð við efnið sem þú býrð til, hleður upp eða tekur við (t.d. myndir og myndskeið eða tölvupóstur, skjöl og töflureiknar). Google stjórnborðið gerir þér kleift að stjórna upplýsingum sem tengjast tilteknum vörum.
Ályktanir sem dregnar eru af ofangreindum upplýsingum, á borð við áhugaflokka auglýsinga.
Viðskiptatilgangur þar sem upplýsingar kunna að vera notaðar eða gefnar upp
Vörn gegn öryggisógnum, misnotkun og ólöglegum aðgerðum: Google notar og kann að veita upplýsingar til að bera kennsl á öryggistilvik, hindra þau og bregðast við þeim og til að veita vernd gegn öðrum skaðlegum, villandi, sviksamlegum eða ólöglegum aðgerðum. Til að vernda þjónustu okkar kann Google t.d. að fá eða birta upplýsingar um IP-tölur sem svikahrappar hafa komist yfir eða haft áhrif á.
Greining og mæling: Google notar upplýsingar fyrir greiningu og mælingu til að skilja hvernig þjónustan okkar er notuð, ásamt því að uppfylla skuldbindingar okkar gagnvart samstarfsaðilum okkar á borð við útgefendur, auglýsendur eða rétthafa. Við kunnum að birta ópersónugreinanlegar upplýsingar opinberlega og til þessara samstarfsaðila, þ.m.t. vegna endurskoðunar.
Viðhald þjónustu: Google notar upplýsingar til að tryggja að þjónustan virki sem skyldi, til dæmis með því að rekja bilanir eða leysa úr vandamálum sem þú tilkynnir.
Rannsóknir og þróun: Google notar upplýsingar til að bæta þjónustu sína og þróa nýjar vörur, eiginleika og tækni sem gagnast notendum þess og almenningi. Til dæmis notum við upplýsingar sem eru aðgengilegar öllum til að þjálfa tungumálalíkön Google og byggja upp eiginleika eins og Google Translate.
Notkun þjónustuaðila: Google deilir upplýsingum með þjónustuaðilum sem veita þjónustu fyrir okkar hönd í samræmi við persónuverndarstefnu okkar og aðrar trúnaðar- og öryggisreglur sem við eiga. Til dæmis gætum við reitt okkur á þjónustuaðila til að veita notendaaðstoð.
Auglýsingar: Google meðhöndlar upplýsingar, þ.m.t. netauðkenni og upplýsingar um samskipti þín við auglýsendur, til að birta auglýsingar. Þetta tryggir að þjónusta Google og mörg vefsvæði og þjónusta sem þú notar séu ókeypis. Þú getur stjórnað því hvaða upplýsingar við notum til að sýna þér auglýsingar með því að skoða auglýsingastillingarnar þínar.
Lagalegar ástæður: Google notar einnig upplýsingar í samræmi við gildandi lög og reglugerðir, og veitir upplýsingar sé þess krafist samkvæmt lögum eða beiðnum yfirvalda, þ.m.t. lögregluyfirvalda. Við veitum upplýsingar um fjölda og gerðir beiðna sem við fáum frá stjórnvöldum í gagnsæisskýrslunni okkar.
Aðilar sem upplýsingum kann að vera deilt með
Aðrir aðilar sem þú kýst að deila upplýsingum þínum með, t.d. skjölum eða myndum og myndskeiðum eða athugasemdum á YouTube.
Þriðju aðilar sem þú samþykkir að deila upplýsingum þínum með, t.d. þjónusta sem er samþætt þjónustu Google. Þú getur farið yfir og stjórnað forritum og vefsvæðum þriðja aðila með aðgangi að gögnum á Google reikningnum þínum.
Þjónustuaðilar, traust fyrirtæki og einstaklingar sem vinna úr upplýsingum fyrir hönd Google, samkvæmt leiðbeiningum okkar, í samræmi við persónuverndarstefnu og aðrar trúnaðar- og öryggisreglur sem við eiga.
Lénsstjórar, ef þú vinnur hjá eða nemur hjá fyrirtæki eða stofnun sem notar þjónustu Google á borð við G Suite.
Löggæsluaðilar eða aðrir þriðju aðilar, af þeim lagaástæðum sem lýst er í Upplýsingum þínum deilt.
Nánar um þessa stefnu
Þegar þessi stefna á við
Þessi persónuverndarstefna gildir um alla þjónustu veitta af Google LLC og hlutdeildarfélögum þess, þar með talið YouTube, Android og þjónustu sem er í boði á vefsvæðum þriðju aðila, svo sem auglýsingaþjónustu. Þessi persónuverndarstefna gildir ekki um þjónustu með eigin persónuverndarstefnu sem felur ekki í sér þessa persónuverndarstefnu.
Þessi persónuverndarstefna gildir ekki um eftirfarandi:
- Upplýsingaaðferðir annarra fyrirtækja og stofnana sem auglýsa þjónustur okkar
- Þjónustur sem veittar eru af öðrum fyrirtækjum eða einstaklingum, þar með taldar vörur eða vefsvæði sem kunna að fela í sér Google þjónustur, birtast þér í leitarniðurstöðum eða sem tengt er á úr þjónustum okkar.
Breytingar á þessari stefnu
Þessi persónuverndarstefna kann að taka breytingum af og til. Við munum ekki takmarka réttindi þín samkvæmt þessari persónuverndarstefnu án yfirlýsts samþykkis frá þér. Við tilgreinum ávallt dagsetninguna þegar breytingar voru síðast birtar og við veitum aðgang að eldri útgáfum sem þú getur skoðað. Þegar verulegar breytingar eru gerðar munu við kynna slíkt á ítarlegan hátt (þ.m.t. tilkynningu í tölvupósti um veigamiklar breytingar á persónuverndarstefnu tiltekinna þjónusta).
Tengdar vinnureglur um persónuvernd
Tilteknar þjónustur Google
Eftirfarandi tilkynningar um persónuvernd veita ítarlegri upplýsingar um tilteknar þjónustur Google:
- Chrome og stýrikerfi Chrome
- Payments
- Fiber
- Google Fi
- G Suite fyrir skóla
- Read Along
- YouTube fyrir krakka
- Google reikningar fyrir börn undir 13 ára aldri (eða þeim aldri sem við á í þínu landi) sem er stjórnað með Family Link.
- Söfnun radd- og hljóðgagna úr eiginleikum fyrir börn í Google hjálparanum
Aðrir gagnlegir tenglar
Eftirfarandi tenglar vísa á aðra staði þar sem finna má nánari upplýsingar um vinnureglur okkar og persónuverndarstillingar.
- Google reikningurinn þinn er miðstöð margvíslegra stillinga sem þú getur notað til að stjórna reikningnum þínum
- Yfirferð persónuverndarstillinga veitir þér leiðsögn um mikilvægustu persónuverndarstillingarnar á Google reikningnum þínum
- Í öryggismiðstöð Google má finna nánari upplýsingar um innbyggðar öryggisvarnir okkar, persónuverndarstillingar og verkfæri sem hjálpa þér að setja stafrænar grundvallarreglur fyrir fjölskylduna á netinu.
- Persónuvernd og skilmálar veita ítarlegri upplýsingar um persónuverndarstefnuna og þjónustuskilmálana
- Í Tækni má finna nánari upplýsingar um:
- Notkun Google á fótsporum
- Tækni sem er notuð fyrir auglýsingar
- Hvernig Google notar mynstursgreiningu til að bera til dæmis kennsl á andlit á myndum
- Hvernig Google notar upplýsingar frá vefsvæðum eða forritum sem nota þjónustu okkar
Lykilhugtök
Einkvæm auðkenni
Einkvæmt auðkenni er stafastrengur sem má nota til að auðkenna vafra, forrit eða tæki á einkvæman hátt. Auðkenni eru mismunandi eftir því hversu varanleg þau eru, hvort notendur geta endurstillt þau og hvernig fá má aðgang að þeim.
Einkvæm auðkenni eru notuð í ýmsum tilgangi, þ. á m. til öryggisgreiningar og til að koma upp um svindl, fyrir samstillingarþjónustu á borð við tölvupósthólfið þitt, til að muna kjörstillingarnar þínar og til að bjóða upp á sérsniðnar auglýsingar. Einkvæm auðkenni sem eru geymd í fótsporum hjálpa til dæmis vefsvæðum að birta efni í vafranum þínum á völdu tungumáli. Þú getur stillt vafrann þannig að hann útiloki öll fótspor eða hann láti vita þegar fótspor er sent. Kynntu þér nánari upplýsingar um hvernig Google notar fótspor.
Fyrir aðra vettvanga en vafra eru einkvæm auðkenni notuð til að bera kennsl á tiltekið tæki, eða forrit í tækinu sem um ræðir. Einkvæmt auðkenni eins og til dæmi auglýsingakennið er notað til að veita viðeigandi auglýsingar á Android tækjum og því má stjórna í stillingum tækisins. Framleiðandi tækisins getur einnig komið fyrir einkvæmu auðkenni (stundum kallað universally unique ID eða UUID), eins og til dæmis IMEI-númeri fyrir farsíma. Einkvæmt auðkenni tækis má til dæmis nota til að sérsníða þjónustu okkar að tækinu þínu, eða greina vandamál sem koma upp í tækinu varðandi þjónustu okkar.
Fótspor
Fótspor er lítil skrá sem inniheldur stafarunu og er send í tölvuna þína þegar þú opnar vefsvæði. Fótsporið leyfir viðkomandi vefsvæði að þekkja vafrann á ný þegar þú heimsækir vefsvæðið aftur. Fótspor geta geymt upplýsingar um kjörstillingar notandans og aðrar upplýsingar. Þú getur stillt vafrann þannig að hann útiloki öll fótspor eða hann láti vita þegar fótspor er sent. Hins vegar er möguleiki á að einhverjir eiginleikar eða þjónusta vefsvæða virki ekki eðlilega nema fótspor séu notuð. Kynntu þér nánari upplýsingar um hvernig Google notar fótspor og hvernig Google notar gögn, þar á meðal fótspor, þegar þú notar vefsvæði eða forrit frá samstarfsaðilum okkar.
Google reikningur
Þú getur fengið aðgang að tiltekinni þjónustu okkar með því að stofna Google reikning og veita okkur tilteknar persónuupplýsingar (yfirleitt nafn, netfang og aðgangsorð). Þessar reikningsupplýsingar eru notaðar til að sannvotta þig þegar þú opnar Google þjónustu og til að verja reikninginn þinn gegn óviðeigandi aðgangi annarra. Þú getur breytt eða eytt reikningnum þínum hvenær sem er í stillingum Google reikningsins.
Hlutdeildarfélög
Hlutdeildarfélag er eining sem tilheyrir fyrirtækjahópi Google, þar á meðal eftirfarandi fyrirtæki sem veita neytendaþjónustu innan ESB: Google Ireland Limited, Google Commerce Ltd, Google Payment Corp og Google Dialer Inc. Kynntu þér nánari upplýsingar um fyrirtæki sem veita viðskiptaþjónustu innan ESB.
IP-tala
Öll tæki sem tengjast internetinu fá úthlutað tölu sem kölluð er IP-tala. Þessum tölum er yfirleitt úthlutað í klösum á tiltekin landfræðileg svæði. Oft er hægt að nota IP-tölu til að greina staðsetningu tækis sem tengist internetinu.
Notkunarskrár netþjóna
Netþjónar okkar skrá sjálfkrafa beiðnir um síður þegar notendur kíkja á vefsvæðin okkar, eins og gert er á flestum vefsvæðum. Þessar „notkunarskrár netþjóna“ innihalda yfirleitt upplýsingar um vefbeiðni þína, IP-tölu, gerð vafra, tungumál vafra, dagsetningu og tíma beiðninnar og eitt eða fleiri fótspor sem kunna að auðkenna vafrann þinn.
Hefðbundin skráning í annál fyrir leit að „bílum“ lítur svona út:
123.45.67.89 - 25/Mar/2003 10:15:32 -
http://www.google.com/search?q=cars -
Firefox 1.0.7; Windows NT 5.1 -
740674ce2123e969
123.45.67.89
er IP-talan sem netþjónusta notandans hefur úthlutað honum. Hugsanlega úthlutar netþjónustan ólíkri tölu í hvert skipti sem notandinn tengist internetinu, en slíkt fer eftir þjónustu notandans.25/Mar/2003 10:15:32
er dagsetning og tími beiðninnar.http://www.google.com/search?q=cars
er umbeðna vefslóðin ásamt leitarfyrirspurninni.Firefox 1.0.7; Windows NT 5.1
er vafrinn og stýrikerfið sem er notað.740674ce2123a969
er einkvæma auðkenni fótsporsins sem var úthlutað þessari tölvu í fyrsta sinn sem hún heimsótti Google. (Notendur geta eytt fótsporum. Ef notandi hefur eytt fótspori úr tölvunni eftir síðustu heimsókn á Google, verður nýtt einkvæmt auðkenni notað fyrir næstu heimsókn notandans á Google úr þessu tiltekna tæki).
Ópersónugreinanlegar upplýsingar
Þetta eru upplýsingar um notendur sem eru skráðar á þann hátt, að þær tengjast ekki lengur né vísa í auðkennanlegan notanda.
Persónuupplýsingar
Þetta eru upplýsingar sem þú veitir okkur og auðkenna þig persónulega, til dæmis nafn, netfang, greiðsluupplýsingar eða önnur gögn sem Google getur með góðu móti tengt við slíkar upplýsingar, til að mynda þær upplýsingar sem við tengjum við Google reikninginn þinn.
Pixlamerki
Pixlamerki er tiltekin gerð af tækni sem komið er fyrir á vefsvæðum eða í tölvupósti til að rekja tilteknar aðgerðir, eins og skoðanir á vefsvæðum eða opnun á tölvupósti. Pixlamerki eru oft notuð ásamt fótsporum.
Reiknirit
Ferli eða reglur sem tölva fylgir við aðgerðir til að leysa vandamál.
Skyndiminni forritsgagna
Skyndiminni forritsgagna er gagnageymsla í tæki. Það getur til að mynda gert vefforriti kleift að vinna án nettengingar og bætt afköst forrits með því að gera hleðslu efnis hraðari.
Tilvísunarvefslóð
Tilvísunarvefslóð (vefslóð) eru upplýsingar sem vafri sendir til áfangasíðu, venjulega þegar þú smellir á tengil á þá síðu. Tilvísunarvefslóðin inniheldur vefslóð fyrir vefsíðuna sem vafrinn heimsótti síðast.
Tæki
Tæki er tölva sem nota má til að fá aðgang að þjónustu Google. Til dæmis teljast borðtölvur, spjaldtölvur, snjallhátalarar og snjallsímar öll vera tæki.
Vefgeymsla vafra
Vefgeymsla vafra gerir vefsvæðum kleift að geyma gögn í vafra á tæki. Þegar hún er notuð sem „staðbundin geymsla“ er hægt að vista gögn milli lota. Þannig er hægt að sækja gögnin jafnvel þótt vafranum hafi verið lokað og hann hafi verið opnaður aftur. Eitt dæmi um tækni sem býður upp á vefgeymslu er HTML5.
Viðkvæmar persónuupplýsingar
Hér er um að ræða tiltekinn flokk persónuupplýsinga sem tengjast atriðum á borð við trúnaðarupplýsingar um heilsufar, kynþátt eða þjóðerni, pólitískar skoðanir, trúarskoðanir eða kynhneigð.
Viðbótarsamhengi
aðgerðir þínar á öðrum vefsvæðum og forritum
Þessar aðgerðir geta verið notkun þín á Google þjónustu, eins og að samstilla reikninginn þinn við Chrome, eða heimsóknir þínar á vefsvæði og forrit samstarfsaðila Google. Mörg vefsvæði og forrit eru í samstarfi við Google til að bæta efni sitt og þjónustu. Til dæmis kann vefsvæði að nota auglýsingaþjónustu okkar (eins og AdSense) eða greiningartól (eins og Google Analytics) eða fela í sér annað efni (s.s. myndskeið frá YouTube). Þessar þjónustur gætu deilt upplýsingum um aðgerðir þínar á Google og, allt eftir reikningsstillingunum þínum og vörunum sem verið er að nota (til dæmis þegar samstarfsaðili notar Google Analytics með auglýsingaþjónustu okkar), gætu þessi gögn verið tengd persónuupplýsingunum þínum.
Frekari upplýsingar um hvernig Google notar upplýsingar þegar þú notar vefsvæði eða forrit samstarfsaðila okkar.
Android tæki með Google forritum
Android tæki með Google forritum eru meðal annars tæki sem Google eða einn af samstarfsaðilum þess selur, til dæmis símar, myndavélar, farartæki, tæki til að bera á sér og sjónvörp. Slík tæki nota þjónustu Google Play og önnur forrit sem sett eru upp fyrir fram, meðal annars Gmail, Kort, myndavélina og hringiforritið í símanum, talgervil, lyklaborðsinnslátt og öryggiseiginleika.
auglýsingar og rannsóknarþjónustur á þeirra vegum
Auglýsendur geta til dæmis hlaðið upp gögnum frá vildarkortsáætlunum sínum til að komast að því hvaða árangri auglýsingaherferðir þeirra skila. Við útvegum auglýsendum einungis uppsafnaðar skýrslur sem innihalda engar upplýsingar um einstaklinga.
auglýsingar sem gagnast þér
Til dæmis gætirðu séð fleiri auglýsingar um bakstur þegar þú vafrar um vefinn eftir að hafa horft á myndskeið um bakstur á YouTube. Við getum einnig notað IP-töluna þína til að áætla staðsetningu þína gróflega til að geta sýnt þér auglýsingar fyrir nálægan pítsustað þegar þú leitar að „pítsa“. Kynntu þér Google auglýsingar betur og hvers vegna þú getur séð tilteknar auglýsingar.
fólk sem skiptir þig mestu máli á netinu
Þegar þú slærð til dæmis netfang inn í reitinn fyrir viðtakanda, afrit eða falið afrit í skeyti sem þú ert að skrifa mun Gmail stinga upp á netföngum þeirra sem þú hefur oftast samband við.
gera úrbætur
Við notum til dæmis fótspor til að greina hvernig fólk hefur samskipti við þjónustu okkar. Slík greining getur hjálpað okkur að búa til betri vörur. Hún getur til dæmis sýnt okkur að fólk er of lengi að ljúka tilteknum verkum eða að það geti yfirhöfuð ekki lokið tilteknum ferlum. Þá getum við hannað slíka eiginleika upp á nýtt og bætt vöruna fyrir alla.
greiðsluupplýsingar
Ef þú skráir til dæmis kreditkort eða annan greiðslumáta á Google reikningnum þínum geturðu notað kortið til að kaupa hluti í öllum þjónustum okkar, til dæmis forrit í Play Store. Við getum einnig beðið um aðrar upplýsingar eins og skattnúmer til að auðvelda að geta unnið betur úr greiðslunni frá þér. Í sérstökum tilvikum þurfum við að staðfesta auðkenni þitt og þá getum við beðið þig um upplýsingar í þeim tilgangi.
Við getum einnig notað greiðsluupplýsingarnar til að staðfesta að þú hafir náð tilskildum aldri, til dæmis ef þú færir inn fæðingardag sem gefur til kynna að þú hafir ekki náð tilskildum aldri til að vera með Google reikning. Frekari upplýsingar
greining á misnotkun
Þegar við finnum ruslpóst, spilliforrit, ólöglegt efni og aðrar gerðir misnotkunar á kerfum okkar sem brjóta í bága við reglur okkar lokum við hugsanlega reikningnum þínum eða grípum til viðeigandi ráðstafana. Við tilteknar aðstæður tilkynnum við viðeigandi yfirvöldum um slík brot.
Gögnum frá skynjara í tækinu þínu
Tækið þitt er hugsanlega búið skynjurum sem nota má til að átta sig betur á staðsetningu þinni og hreyfingum. Til dæmis er hægt að nota hraðamæli til að ákvarða hraðann sem þú ferðast á eða snúðvísi til að greina í hvaða átt þú ferðast.
lagaleg ferli eða beiðnir yfirvalda
Eins og gildir um önnur tækni- og fjarskiptafyrirtæki fær Google oft og tíðum beiðnir frá yfirvöldum og dómstólum víða um heim um að upplýsa um gögn notenda. Virðing fyrir friðhelgi og öryggi gagnanna sem þú geymir hjá Google er það sem við höfum að leiðarljósi þegar við bregðumst við þessum lagalegu beiðnum. Lögfræðingar okkar fara yfir hverja einustu beiðni, burtséð frá eðli hennar, og við streitumst iðulega á móti þegar beiðnirnar virðast óeðlilega víðtækar eða samræmast ekki viðurkenndum ferlum. Gagnsæisskýrslan okkar veitir þér frekari upplýsingar.
opinberlega aðgengilegar heimildir
Við getum til dæmis safnað saman upplýsingum sem eru tiltækar aðgengilegar öllum á netinu eða á öðrum opinberum stöðum til að þjálfa tungumálalíkön Google og byggja upp eiginleika eins og Google Translate.
reiða sig á fótspor til að starfa á réttan hátt
Við notum til dæmis fótspor sem kallast „lbcs“ til að gera þér kleift að opna mörg Google skjöl í einum og sama vafranum. Útilokun á áðurnefndu fótspori getur valdið því að Google skjöl starfi ekki rétt. Frekari upplýsingar
sameining upplýsinga sem við söfnum
Nokkur dæmi um hvernig við sameinum upplýsingarnar sem við söfnum eru m.a.:
- Þegar þú ert skráð(ur) inn á Google reikninginn þinn og leitar á Google sérðu leitarniðurstöður af opna vefnum auk viðeigandi upplýsinga úr efninu sem þú geymir í öðrum vörum frá Google, eins og Gmail eða Google dagatalinu. Þetta geta verið hlutir eins og staða á væntalegum flugferðum, bókanir á veitingarstöðum og hótelum, eða myndirnar þínar. Frekari upplýsingar
- Ef þú hefur átt í samskiptum við einhvern í Gmail og vilt bæta viðkomandi við sem þátttakanda í Google skjali eða viðburði í Google dagatali auðveldar Google þér slíkt með því að fylla netfangið út sjálfkrafa þegar þú byrjar að skrifa nafn viðkomandi. Þessi eiginleiki auðveldar þér að deila hlutum með fólkinu sem þú þekkir. Frekari upplýsingar
- Google app getur notað gögn sem þú hefur geymt í öðrum vörum frá Google til að sýna þér sérsniðnar auglýsingar, háð stillingunum þínum. Ef þú hefur til dæmis vistað leit í vef- og forritavirkninni getur Google app sýnt þér fréttagreinar og aðrar upplýsingar af áhugasviðum þínum, til dæmis íþróttaúrslit, miðað við aðgerðir þínar. Frekari upplýsingar
- Ef þú tengir Google reikninginn þinn við Google Home geturðu stjórnað upplýsingunum þínum og komið hlutum í verk með Google hjálparanum. Þú getur til dæmis bætt viðburðum við Google dagatalið þitt eða fengið dagskrána þína fyrir daginn, beðið um uppfærslur um væntanlega flugferð eða sent upplýsingar eins og akstursleiðsögn í símann þinn. Frekari upplýsingar
samstarf við Google
Í dag eru yfir tvær milljónir vefsvæða og forrita utan Google sem eru í samstarfi við Google um að birta auglýsingar. Frekari upplýsingar
samstilling við Google reikninginn þinn
Vafraferillinn þinn í Chrome er einungis vistaður á reikningnum þínum ef þú hefur virkjað Chrome samstillingu við Google reikninginn þinn. Frekari upplýsingar
sérsniðnar auglýsingar
Þú gætir einnig séð sérsniðnar auglýsingar byggðar á upplýsingum frá auglýsandanum. Ef þú verslaðir til dæmis á vefsvæði auglýsanda getur hann notað upplýsingar um heimsókn þína til að sýna þér auglýsingar. Frekari upplýsingar
sérsniðnar leitarniðurstöður
Þegar þú ert til dæmis skráð(ur) inn á Google reikninginn þinn og hefur gert stýringu á vef- og forritavirkni virka geturðu fengið gagnlegri leitarniðurstöður sem byggja á fyrri leit og aðgerðum þínum í öðrum þjónustum Google. Hér má nálgast frekari upplýsingar. Þú getur einnig fengið sérsniðnar leitarniðurstöður þegar þú ert skráð(ur) út. Ef þú vilt ekki fá sérsniðna leit geturðu leitað og vafrað á lokaðan hátt eða slökkt á sérsniðinni leit þegar þú ert skráð(ur) út.
sérstakir samstarfsaðilar
Við leyfum til dæmis höfundum efnis og auglýsendum á YouTube að vinna með matsfyrirtækjum til að fá frekari upplýsingar um áhorfendur myndskeiða eða auglýsinga þeirra á YouTube, með því að nota fótspor eða svipaða tækni. Söluaðilar á verslunarsíðum okkar eru annað dæmi, en þeir nota fótspor til að komast að því hversu margir notendur sjá vöruauglýsingar þeirra. Frekari upplýsingar um þessa samstarfsaðila og hvernig þeir nota upplýsingar frá þér.
símanúmer
Ef þú skráir símanúmerið þitt á reikningnum þínum er hægt að nota það í mismunandi tilgangi í öllum þjónustum Google, allt eftir stillingunum þínum. Til dæmis er hægt að nota símanúmerið þitt til að hjálpa þér að komast inn á reikninginn þinn ef þú gleymir aðgangsorðinu, hjálpa fólki við að finna þig og hafa samband við þig og til að gera auglýsingarnar sem þú sérð meira viðeigandi. Frekari upplýsingar
Skoðun og notkun efnis og auglýsinga
Við söfnum til dæmis saman upplýsingum um skoðun og notkun auglýsinga til að við getum útvegað auglýsendum uppsafnaðar skýrslur, til dæmis um hvort við höfum birt auglýsingu á síðu og hvort líklegt sé að notandi hafi séð auglýsinguna. Við kunnum einnig að mæla önnur samskipti, eins og hvernig þú hreyfir músina yfir auglýsingu eða hvort þú hafðir samskipti við síðuna þar sem auglýsingin birtist.
sýna þróun
Þegar aragrúi fólks byrjar að leita að einhverju tilteknu getur það veitt mjög gagnlegar upplýsingar um hvað er efst á baugi hverju sinni. Google Trends tekur úrtök úr leit á Google til að meta vinsældir leitarfyrirspurna á tilteknu tímabili og deilir slíkum niðurstöðum opinberlega í formi heildarsafns. Frekari upplýsingar
tengja upplýsingar
Google Analytics notast við eigin fótspor, en það þýðir að fótsporin eru stillt af viðskiptavini Google Analytics. Viðskiptavinur Google Analytics og Google geta notað kerfin okkar til að tengja gögn sem eru fengin í gegnum Google Analytics við fótspor frá þriðja aðila, sem tengjast heimsóknum á önnur vefsvæði. Auglýsandi gæti til dæmis viljað nota gögn sín af Google Analytics til að gera auglýsingar sínar markvissari eða framkvæma frekari greiningar á vefumferð sinni. Frekari upplýsingar
tilteknar þjónustur Google
Þú getur til dæmis eytt blogginu þínu af Blogger eða Google vefsvæði sem þú átt af Google Sites. Þú getur einnig eytt umsögnum sem þú hefur gefið forritum, leikjum og öðru efni í Play Store.
tryggja að þjónustur okkar starfi á tilætlaðan hátt
Við höfum stöðugt eftirlit með kerfum okkar til að leita að hugsanlegum vandamálum. Ef vandamál kemur upp varðandi tiltekinn eiginleika getum við lagfært það mun hraðar ef við getum skoðað aðgerðarupplýsingarnar sem hefur verið safnað saman.
tryggja og bæta
Við greinum til dæmis hvernig fólk notar auglýsingar til að bæta árangur auglýsinga okkar.
tæki
Við getum til dæmis notað upplýsingar frá tækjunum þínum til að gefa þér ráð um hvaða tæki hentar best til að setja upp forrit eða skoða bíómynd sem þú kaupir á Google Play. Við notum einnig þessar upplýsingar til að gera reikninginn öruggari.
upplýsingar um hluti sem eru nálægt tækinu þínu
Ef þú notar staðsetningarþjónustur Google í Android getum við bætt frammistöðu forrita eins og Google korta sem reiða sig á staðsetningu þína. Ef þú notar staðsetningarþjónustur Google sendir tækið þitt upplýsingar til Google um staðsetningu þess, skynjara (eins og hraðamæli) og um nálæga farsímasenda og Wi-Fi aðgangsstaði (eins og MAC-vistfang og sendistyrk). Öll þessi atriði hjálpa til við að áætla staðsetningu þína. Þú getur kveikt á staðsetningarþjónustum Google í stillingum tækisins. Frekari upplýsingar
veita þjónustu okkar
Dæmi um hvernig við notum upplýsingarnar frá þér til að bjóða upp á þjónustu okkar eru m.a.:
- Við notum IP-töluna sem er úthlutuð tækinu þínu til að senda þér gögnin sem þú baðst um, eins og að hlaða inn myndskeiði á YouTube
- Við notum einkvæm auðkenni sem eru geymd í fótsporum í tækinu þínu til að staðfesta að þú sért aðilinn sem sannarlega á að fá aðgang að Google reikningnum þínum
- Myndir og myndskeið sem þú hleður inn í Google myndum eru notuð til að hjálpa þér að búa til albúm, hreyfimyndir og önnur verk sem þú getur deilt með öðrum. Frekari upplýsingar
- Tölvupóstur sem þú færð til staðfestingar á flugi kann að vera notaður til að útbúa „innritunarhnapp“ sem birtist í Gmail
- Þegar þú kaupir þjónustu eða efnislega vöru af okkur getur verið að þú veitir okkur upplýsingar eins og sendingarheimilisfang eða leiðbeiningar vegna afhendingar. Við notum slíkar upplýsingar til þess að vinna úr, uppfylla og afhenda pöntunina og veita aðstoð í tengslum við vöruna eða þjónustuna sem þú kaupir.
vernd gegn misnotkun
Við notum til dæmis upplýsingar um öryggisógnir til að láta þig vita ef reikningurinn þinn er í hættu (ef slíkt gerist hjálpum við þér að grípa til aðgerða til að vernda reikninginn þinn).
viðkvæmir flokkar
Þegar við sýnum þér sérsniðnar auglýsingar veljum við umfjöllunarefni sem við teljum að þú hafir áhuga á miðað við aðgerðir þínar. Þú gætir til dæmis séð auglýsingar um hluti eins og „matargerð og uppskriftir“ eða „loftsamgöngur“. Við notum hvorki efnisatriði né sýnum sérsniðnar auglýsingar sem byggjast á viðkvæmum flokkum á borð við kynþátt, trúarbrögð, kynhneigð eða heilsufar. Og við krefjumst þess sama frá auglýsendum sem nota þjónustur okkar.
þjónar víðsvegar um heiminn
Við rekum gagnaver um allan heim til að tryggja að vörur okkar séu ávallt aðgengilegar notendum.
þjónustur til að hringja og taka á móti símtölum eða senda og taka við skilaboðum
Dæmi um slíkar þjónustur eru:
- Google Hangouts, til að hringja símtöl innan- og utanlands
- Google Voice, til að hringja símtöl, senda textaskilaboð og stjórna talhólfi
- Google Fi, fyrir símaáskrift
þriðju aðilar
Við vinnum til dæmis úr upplýsingunum frá þér til að senda rétthöfum tölfræði um hvernig efnið frá þeim var notað á þjónustum okkar. Við vinnum hugsanlega einnig úr upplýsingunum frá þér ef fólk leitar að nafninu þínu og við birtum leitarniðustöður vefsíðna sem innihalda opinberar upplýsingar um þig.
öryggi og áreiðanleiki
Dæmi um hvernig við notum upplýsingar frá þér til að halda þjónustum okkar öruggum og áreiðanlegum eru m.a.:
- Söfnun og greining á IP-tölum og gögnum fótspora til að veita vernd gegn misnotkun sem gerð er með sjálfvirkum hætti. Slík misnotkun tekur á sig ýmsar myndir, þar á meðal eru ruslpóstsendingar til notenda Gmail, þjófnaður á peningum frá auglýsendum með því að smella með sviksamlegum hætti á auglýsingar eða ritskoðun á efni með svokallaðri DDoS-árás.
- Eiginleikinn sem kallast „síðasta aðgerð“ getur hjálpað þér að finna út hvort og þá hvenær einhver opnaði tölvupóstinn þinn án þinnar vitneskju. Þessi eiginleiki sýnir þér upplýsingar um síðustu aðgerðir í Gmail, eins og IP-tölur þeirra sem opnuðu tölvupóstinn, staðsetningu þeirra og dagsetninguna og tímann sem aðgangurinn átti sér stað. Frekari upplýsingar