Þjónustuskilmálar Google
Tekur gildi 5. janúar 2022 | Eldri útgáfur | Sækja PDF
Það sem þessir skilmálar ná yfir
Við gerum okkur grein fyrir að það er freistandi að sleppa því að lesa þessa þjónustuskilmála en aftur á móti er mikilvægt að þú vitir hvers þú getur vænst af okkur þegar þú notar þjónustu Google og hvers við getum vænst af þér.
Þessir þjónustuskilmálar skýra hvernig rekstur Google gengur fyrir sig, lögin sem gilda um fyrirtækið og tiltekna hluti sem við höfum alltaf haft í heiðri. Þjónustuskilmálarnir skýra því sambandið milli Google og þín þegar þú notar þjónustu okkar. Til dæmis er eftirfarandi fyrirsagnir að finna í þessum skilmálum:
- Hvers þú mátt vænta af okkur, sem lýsir því hvernig við bjóðum upp á og þróum þjónustu okkar
- Hvers við getum vænst af þér, þar sem tilteknar reglur eru settar fram um notkun á þjónustu okkar
- Efni í Google þjónustu, sem lýsir hugverkarétti efnis sem finna má í þjónustu okkar, hvort sem það efni tilheyrir þér, Google eða öðrum
- Komi upp vandamál eða ágreiningur, sem lýsir því hvaða annan lagalegan rétt þú hefur og hvað er gert ef brotið er gegn þessum skilmálum
Það er mikilvægt að skilja þessa skilmála vegna þess að þú samþykkir þá með því að nota þjónustuna okkar.
Auk þessara skilmála birtum við einnig persónuverndarstefnu. Við hvetjum þig til að lesa hana til að skilja betur hvernig þú getur uppfært, stjórnað, flutt út og eytt upplýsingunum þínum.
Skilmálar
Þjónustuveitandi
Google þjónusta er veitt af og samkvæmt samningi þínum við:
Google LLC
stofnað samkvæmt lögum Delaware-ríkis í Bandaríkjunum, og starfrækt samkvæmt bandarískum lögum
1600 Amphitheatre Parkway
Mountain View, Kaliforníu 94043
Bandaríkin
Aldursskilyrði
Ef þú ert undir þeim aldri sem krafist er til að hafa umsjón með eigin Google reikningi þarftu að fá leyfi frá foreldri eða forráðamanni þínum til að nota Google reikning. Fáðu foreldri eða forráðamann þinn til að lesa þessa skilmála með þér.
Ef þú ert foreldri eða forráðamaður og leyfir barninu þínu að nota þjónustuna gilda þessir skilmálar um þig og þú berð ábyrgð á notkun barnsins á þjónustunni.
Í sumri Google þjónustu gilda sérstakar aldurstakmarkanir sem lýst er í þjónustutengdum viðbótarskilmálum og -reglum.
Samband þitt við Google
Þessir skilmálar skilgreina sambandið milli þín og Google. Í grófum dráttum gefum við þér heimild til að nota þjónustu okkar ef þú samþykkir að fylgja þessum skilmálum, sem skýra hvernig rekstur Google gengur fyrir sig og hvernig við öflum tekna. Þegar rætt er um „Google“, „við“, „okkur“ og „okkar“ er átt við Google LLC og hlutdeildarfélög þess.
Hvers þú mátt vænta af okkur
Bjóða upp á fjölbreytt úrval gagnlegrar þjónustu
Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval þjónustu sem fellur undir þessa skilmála, meðal annars:
- forrit og vefsvæði (eins og Leit og Kort)
- verkvanga (eins og Google Shopping)
- samþætta þjónustu (svo sem Kort, sem eru felld inn í forrit eða vefsvæði annarra fyrirtækja)
- tæki (eins og Google Nest)
Mikið af þessari þjónustu felur einnig í sér efni sem er gagnvirkt eða hægt er að streyma.
Þjónusta okkar er hönnuð með samhæfi í huga, sem auðveldar þér að fara úr einu í annað. Ef heimilisfang er t.d. skráð í dagatalsviðburði geturðu smellt á heimilisfangið og Kort geta birt þér leiðarlýsingu á staðinn.
Þróa, bæta og uppfæra Google þjónustur
Við erum stöðugt að bæta þjónustu okkar með nýrri tækni og eiginleikum. Við notum t.d. gervigreind og vélrænt nám til að bjóða upp á þýðingar í rauntíma og til að greina betur og loka á ruslefni og spilliforrit. Þess vegna bætum við stundum við eða fjarlægjum eiginleika og virkni, aukum eða minnkum takmarkanir á þjónustu okkar og bjóðum upp á nýja þjónustu eða hættum að bjóða upp á eldri þjónustu. Þegar þjónusta krefst eða inniheldur hugbúnað sem hægt er að hlaða niður getur slíkur hugbúnaður stundum uppfærst sjálfkrafa í tækinu þegar ný útgáfa eða eiginleiki er í boði. Sumar þjónustur gera þér kleift að velja stillingar fyrir sjálfvirkar uppfærslur.
Ef við gerum efnislegar breytingar sem hafa neikvæð áhrif á notkun þína á þjónustu okkar eða ef við hættum að bjóða upp á þjónustu tilkynnum við þér það með góðum fyrirvara nema við aðstæður sem krefjast tafarlausra aðgerða, svo sem til að koma í veg fyrir misnotkun, bregðast við lagaskilyrðum eða bregðast við öryggisvandamálum eða vanda í rekstri. Við gefum þér einnig færi á að flytja út efnið þitt af Google reikningnum þínum með Google Takeout, háð gildandi lögum og reglum.
Hvers við getum vænst af þér
Fylgdu þessum skilmálum og viðbótarskilmálum fyrir tiltekna þjónustu
Heimildin sem við veitum þér til að nota þjónustur okkar er í gildi á meðan þú uppfyllir skyldur þínar samkvæmt:
- þessum skilmálum
- þjónustutengdum viðbótarskilmálum, sem gætu falið í sér atriði á borð við frekari aldurstakmarkanir
Þú samþykkir einnig að Persónuverndarstefnan okkar gildir um notkun þína á þjónustum okkar. Að auki hefurðu aðgang að upplýsingum í Hjálparmiðstöð höfundarréttar, Öryggismiðstöð og lýsingar á tækninni okkar á reglusíðunni okkar sem geymir oft svör við algengum spurningum og stillir væntingar til þjónustunnar sem við veitum.
Þrátt fyrir að við gefum þér heimild til að nota þjónustu okkar höldum við öllum hugverkarétti á þjónustu okkar.
Virtu aðra
Við viljum stuðla að umhverfi þar sem öllum er sýnd virðing, og það þýðir að þú þarft að fylgja eftirfarandi grundvallarsiðareglum:
- fara eftir gildandi lögum, þar á meðal útflutningsreglum, viðskiptabönnum og lögum um mansal
- virða réttindi annarra, þar á meðal persónuverndarlög og hugverkarétt
- misnota hvorki né skaða aðra eða sjálfa(n) þig (eða hóta eða hvetja til slíkrar misnotkunar eða skaða) — t.d. með því að villa um fyrir, svindla, villa á þér heimildir á ólöglegan hátt, ófrægja, leggja í einelti, áreita eða ofsækja aðra
- ekki misnota, skaða, trufla eða valda röskun á þjónustum — t.d. með því að opna þær eða nota á sviksamlegan eða villandi hátt, senda spilliforrit eða ruslefni, hakka eða sneiða hjá kerfunum okkar eða öryggisráðstöfunum. Þegar við leitum á vefnum til að birta þér leitarniðurstöður virðum við grunntakmarkanir á notkun sem eigendur vefsvæða tilgreina í kóða vefsvæðanna. Við gerum sömu kröfu þegar notendur nota okkar þjónustur
Þjónustutengdir viðbótarskilmálar og -reglur okkar innihalda ítarlegri upplýsingar um viðeigandi framferði sem allir notendur viðkomandi þjónustu verða að fylgja. Ef þú kemst að því að aðrir fylgja ekki þessum reglum er hægt að tilkynna misnotkun í mörgum af þjónustum okkar. Ef við bregðumst við tilkynningu um misnotkun bjóðum við einnig upp á ferlið sem lýst er í hlutanum Gripið til aðgerða ef vandamál koma upp.
Heimild til að nota efnið þitt
Sum þjónusta okkar er ætluð til þess að þú getir hlaðið upp, sent inn, geymt, sent, tekið á móti eða deilt efninu þínu. Þér ber engin skylda til að útvega þjónustu okkar neitt efni og þér er frjálst að velja hvaða efni þú vilt útvega. Ef þú velur að hlaða upp eða deila efni skaltu ganga úr skugga um að þú hafir nauðsynleg réttindi til að gera það og að efnið sé löglegt.
Leyfi
Efnið þitt verður áfram í þinni eigu, sem þýðir að þú heldur öllum hugverkarétti fyrir efnið. Til dæmis átt þú hugverkarétt á sköpunarverkum þínum, svo sem umsögnum sem þú skrifar. Þú getur einnig haft rétt til að deila sköpunarverki annarra ef viðkomandi hefur gefið þér leyfi til þess.
Við þurfum að fá heimild þína ef hugverkaréttur þinn takmarkar notkun okkar á efni þínu. Þú gefur Google þá heimild með þessu leyfi.
Gildissvið
Þetta leyfi nær til efnis þíns ef efnið er varið samkvæmt hugverkarétti.
Það sem ekki fellur undir leyfið
- Þetta leyfi hefur ekki áhrif á friðhelgi einkalífs þíns – það snýst eingöngu um hugverkarétt þinn
- Eftirfarandi gerðir efnis eru ekki innifaldar í þessu leyfi:
- opinberar upplýsingar sem þú veitir um staðreyndir, eins og leiðréttingar á heimilisfangi staðbundins fyrirtækis. Þessar upplýsingar krefjast ekki leyfis vegna þess að þær teljast vera almenn þekking sem öllum er frjálst að nota.
- ábendingar sem þú gefur, svo sem tillögur um hvernig bæta má þjónustuna. Fjallað er um ábendingar í hlutanum Þjónustutengd samskipti hér fyrir neðan.
Gildissvið
Þetta leyfi:
- gildir um allan heim
- er almennt, sem þýðir að þú getur veitt öðrum leyfi til að nota efnið þitt
- er án þóknunar, sem þýðir að ekki þarf að greiða neinar fjárhagslegar greiðslur fyrir þetta leyfi
Réttindi
Þetta leyfi gefur Google heimild til að:
- hýsa, endurmynda, dreifa, miðla og nota efnið þitt, til dæmis með því að vista það í kerfum okkar og gera það aðgengilegt hvert sem þú ferð
- gefa út, flytja opinberlega eða birta efnið þitt opinberlega, ef þú hefur gert það sýnilegt öðrum
- breyta og búa til aðlaganir byggðar á efninu þínu, til dæmis með því að breyta sniði þess eða þýða það
- veita undirleyfi fyrir þessum réttindum til:
- annarra notenda til að gera þjónustunni kleift að starfa eins og ætlast er til, til dæmis til að gera þér kleift að deila myndum með fólki sem þú velur
- verktaka okkar sem hafa skrifað undir samninga við okkur sem samræmast þessum skilmálum, aðeins í takmörkuðum tilgangi eins og lýst er í hlutanum Tilgangur hér að neðan
Tilgangur
Þetta leyfi er í eftirfarandi takmörkuðum tilgangi:
-
reka og bæta þjónustuna, sem felur í sér að gera þjónustunni kleift að starfa eins og til er ætlast og búa til nýja eiginleika og virkni. Þetta felur í sér notkun sjálfvirkra kerfa og reiknirita til að greina efnið þitt:
- fyrir ruslefni, spilliforrit og ólöglegt efni
- til þess að greina mynstur í gögnum, til að mynda til þess að ákvarða hvenær á að stinga upp á nýju albúmi í Google myndum til að geyma svipaðar myndir saman
- til að sérsníða þjónustu okkar að þér, svo sem til að bjóða upp á tillögur og sérsniðnar leitarniðurstöður, efni og auglýsingar (sem þú getur breytt eða slökkt á í auglýsingastillingum)
- nota efni sem þú hefur deilt opinberlega til að kynna þjónustuna. Til dæmis gætum við vísað í umsögn sem þú hefur skrifað til að kynna forrit frá Google. Við gætum líka sýnt skjámynd af forriti sem þú hefur á boðstólum í Play Store til að kynna Google Play.
- þróa nýja tækni og þjónustu fyrir Google sem uppfyllir þessa skilmála
Gildistími
Þetta leyfi gildir á meðan efni þitt er varið með hugverkarétti.
Ef þú fjarlægir efni sem þetta leyfi nær til úr þjónustu okkar munu kerfi okkar hætta að gera efnið aðgengilegt opinberlega innan sanngjarnra tímamarka. Tvær undantekningar eru á þessu:
- Ef þú hafðir þegar deilt efni þínu með öðrum áður en það var fjarlægt. Ef þú deildir til dæmis mynd með vini sem tók síðan afrit af myndinni, eða deildi henni áfram, gæti myndin áfram birst á Google reikningi vinarins, jafnvel þótt þú fjarlægir hana af Google reikningnum þínum.
- Ef þú gerir efnið aðgengilegt í gegnum þjónustu annarra fyrirtækja er mögulegt að leitarvélar, þar á meðal Google leit, finni áfram og birti efnið þitt í leitarniðurstöðum sínum.
Notkun Google þjónustu
Google reikningurinn þinn
Ef þú uppfyllir þessi aldursskilyrði getur þú stofnað Google reikning þér til hægðarauka. Til þess að nota tiltekna þjónustu þarftu að eiga Google reikning — til að nota Gmail þarf til dæmis að nota Google reikning til að eiga stað til að senda og taka við tölvupósti.
Þú berð ábyrgð á því sem þú gerir með Google reikningnum, þar á meðal á því að grípa til viðeigandi aðgerða til að halda Google reikningnum öruggum, og við hvetjum þig til að nota Öryggisskoðun reglulega.
Notkun Google þjónustu fyrir hönd stofnunar eða fyrirtækis
Margir rekstraraðilar nýta sér þjónustu okkar, svo sem fyrirtæki, stofnanir sem ekki eru reknar í hagnaðarskyni og skólar. Til að nota þjónustu okkar fyrir hönd fyrirtækis eða stofnunar:
- þarf fulltrúi fyrirtækisins/stofnunarinnar sem hefur til þess heimild að samþykkja þessa skilmála
- gæti stjórnandi fyrirtækisins/stofnunarinnar úthlutað þér Google reikningi. Sá stjórnandi gæti krafist þess að þú fylgir viðbótarreglum og getur hugsanlega fengið aðgang að Google reikningnum þínum og gert hann óvirkan.
Þjónustutengd samskipti
Til þess að veita þér þjónustuna sendum við þér stundum þjónustutilkynningar og aðrar upplýsingar. Frekari upplýsingar um samskipti okkar við þig er að finna í persónuverndarstefnu Google.
Ef þú velur að senda okkur ábendingu, til dæmis um hvernig bæta má þjónustu okkar, getum við brugðist við ábendingunni án þess að bera nokkra skyldu gagnvart þér.
Efni í Google þjónustu
Efnið þitt
Sum þjónusta okkar gefur þér tækifæri til að gera efnið þitt aðgengilegt opinberlega — til dæmis gætirðu birt umsögn um vöru eða veitingastað sem þú skrifaðir eða hlaðið inn bloggfærslu sem þú bjóst til.
- Í hlutanum Heimild til að nota efnið þitt er að finna frekari upplýsingar um réttindi þín tengd þínu efni og hvernig efnið þitt er notað í þjónustu okkar
- Í hlutanum Efni þitt fjarlægt eru upplýsingar um hvers vegna og hvernig við gætum fjarlægt efni frá notendum úr þjónustu okkar
Ef þú telur að einhver brjóti á hugverkarétti þínum geturðu sent okkur tilkynningu um brotið og við grípum til viðeigandi aðgerða. Til dæmis lokum við Google reikningum þeirra sem brjóta endurtekið á höfundarrétti, tímabundið eða varanlega, eins og lýst er í hjálparmiðstöð okkar varðandi höfundarrétt.
Google efni
Tiltekin þjónusta okkar inniheldur efni sem tilheyrir Google — til dæmis mikið af myndefni sem sést í Google kortum. Þú getur notað efni Google eins og þessir skilmálar og aðrir þjónustutengdir viðbótarskilmálar leyfa, en við höldum öllum hugverkarétti á efni okkar. Ekki fjarlægja, fela eða breyta á nokkurn hátt auðkennum, vörumerkjum, eða lagalegum skilmálum okkar. Ef þú vilt nota auðkenni eða vörumerki okkar skaltu skoða síðu með upplýsingum um leyfi fyrir auðkennum Google.
Annað efni
Loks veitir sum þjónusta okkar þér aðgang að efni sem tilheyrir öðru fólki eða fyrirtækjum/stofnunum — til að mynda lýsingu fyrirtækiseiganda á fyrirtæki sínu eða fréttagrein sem birtist í Google fréttum. Þú mátt ekki nota slíkt efni nema að fenginni heimild viðkomandi aðila eða með annarri aðferð sem lög leyfa. Skoðanir sem koma fram í efni fólks, fyrirtækja eða stofnana eru þeirra eigin skoðanir og endurspegla ekki endilega skoðanir Google.
Hugbúnaður í Google þjónustu
Sum þjónusta okkar felur í sér hugbúnað sem er hlaðið niður. Við gefum þér leyfi til að nota þann hugbúnað sem hluta af þjónustunni.
Þetta leyfi:
- gildir um allan heim,
- er almennt, sem þýðir að við getum leyft öðrum að nota hugbúnaðinn
- án rétthafagreiðslna, sem þýðir að ekki þarf að greiða fjárhagslegar greiðslur fyrir þetta leyfi
- er persónulegt, sem þýðir að það gildir ekki um aðra
- er óframseljanlegt, sem þýðir að þú mátt ekki framselja leyfið
Sum þjónusta okkar felur í sér hugbúnað sem boðið er upp á samkvæmt leyfisskilmálum fyrir opinn hugbúnað sem við veitum þér aðgang að. Stundum eru ákvæði í leyfi fyrir opinn hugbúnað sem hnekkja hlutum þessara skilmála með beinum hætti, svo þú skalt gæta þess að lesa þessi leyfi.
Þú mátt ekki afrita, breyta, dreifa, selja eða leigja nokkurn hluta þjónustu okkar né hugbúnaðar.
Komi upp vandamál eða ágreiningur
Takmörkun ábyrgðar
Orðspor okkar byggist á því að veita gagnlegar og áreiðanlegar þjónustur á borð við Google leit og Kort og við vinnum stöðugt að því að bæta þjónusturnar okkar til að uppfylla þarfir þínar. Af lagalegum ástæðum veitum við þó þjónustur okkar án ábyrgðar nema annað komi skýrt fram í þjónustutengdum viðbótarskilmálum. Lög kveða á um að við útskýrum þetta á lagamáli og að við notum hástafi til að þú takir frekar eftir ákvæðinu sem er svohljóðandi:
AÐ ÞVÍ MARKI SEM GILDANDI LÖG LEYFA VEITUM VIÐ ÞJÓNUSTUR OKKAR „EINS OG ÞÆR KOMA FYRIR“ ÁN BEINNAR EÐA ÓBEINNAR ÁBYRGÐAR, Þ.M.T. ÓBEINNAR ÁBYRGÐAR HVAÐ VARÐAR SÖLUHÆFI, NOTAGILDI Í ÁKVEÐNUM TILGANGI OG AÐ ÞÆR BRJÓTI EKKI GEGN EINHVERJUM RÉTTINDUM. TIL DÆMIS TÖKUM VIÐ EKKI Á OKKUR NEINA ÁBYRGÐ VARÐANDI EFNI EÐA EIGINLEIKA ÞJÓNUSTU, Þ.M.T. HVAÐ VARÐAR ÁREIÐANLEIKA, FRAMBOÐ EÐA GETU TIL AÐ UPPFYLLA ÞARFIR ÞÍNAR.
Skaðabótaábyrgð
Fyrir alla notendur
Bæði lögum og þessum skilmálum er ætlað að koma jafnvægi á það hvers þú eða Google getið krafist hvort af öðru ef vandamál koma upp. Þess vegna gera lögin okkur kleift að takmarka tiltekna skaðabótaábyrgð — en ekki aðra — samkvæmt þessum skilmálum.
Þessir skilmálar takmarka aðeins ábyrgð okkar að því marki sem gildandi lög leyfa. Þessir skilmálar takmarka ekki skaðabótaábyrgð vegna vítaverðs gáleysis eða misferlis af ásettu ráði.
Að því marki sem gildandi lög leyfa:
- ber Google aðeins skaðabótaábyrgð vegna brota þess á þessum skilmálum eða gildandi þjónustutengdum viðbótarskilmálum
- Skaðabótaábyrgð Google gildir ekki um:
- tap á hagnaði, tekjum, viðskiptatækifærum, viðskiptavild eða áætluðum sparnaði
- óbeint eða afleitt tap
- refsibætur
- Heildarskaðabótaábyrgð Google vegna krafna sem verða til út frá eða í tengslum við þessa skilmála takmarkast við (1) $200 eða (2) gjaldið sem var greitt fyrir viðkomandi þjónustu síðustu 12 mánuðina áður en krafan var lögð fram og gildir sú upphæð sem hærri er
Aðeins fyrir notendur hjá fyrirtækjum og stofnunum
Ef þú ert viðskiptanotandi eða fyrirtæki:
- Að því marki sem gildandi lög leyfa bætir þú tjón Google og stjórnenda, fulltrúa, starfsmanna og verktaka Google vegna málaferla þriðju aðila (þar á meðal aðgerða stjórnvalda) sem koma til vegna eða tengjast ólöglegri notkun þinni á þjónustunum eða broti þínu gegn þessum skilmálum eða þjónustutengdum viðbótarskilmálum. Þessar bætur ná yfir allar skaðabætur eða kostnað sem fellur til vegna krafna, taps, tjóns, dóma, sekta, málskostnaðar og lögfræðikostnaðar.
- Ef þú ert undanþegin(n) tiltekinni ábyrgð samkvæmt lögum, þar á meðal skaðabótaábyrgð, á slík ábyrgð ekki við um þig í þessum skilmálum. Til dæmis njóta Sameinuðu þjóðirnar tiltekinna undanþága frá lagalegum skyldum og þessir skilmálar hnekkja ekki slíkum undanþágum.
Gripið til aðgerða ef vandamál koma upp
Áður en gripið er til einhverra þeirra aðgerða sem lýst er hér fyrir neðan látum við þig vita með fyrirvara, þegar það er hægt, lýsum fyrir þér ástæðu aðgerðanna og gefum þér færi á að leysa vandann, nema við höfum rökstuddan grun um að slíkt myndi:
- valda notanda, þriðja aðila eða Google skaða eða skaðabótaábyrgð
- brjóta gegn lögum eða skipun löggæsluyfirvalda
- skemma fyrir rannsókn
- stefna rekstri, heilleika eða öryggi þjónustu okkar í hættu
Efni þitt fjarlægt
Ef eitthvert efni frá þér (1) brýtur gegn þessum skilmálum, þjónustutengdum viðbótarskilmálum eða reglum, (2) brýtur gegn gildandi lögum, eða (3) gæti skaðað notendur okkar, þriðju aðila eða Google, áskiljum við okkur rétt til að fjarlægja sumt eða allt það efni í samræmi við gildandi lög. Dæmi um þetta er barnaklám, efni sem auðveldar mansal eða áreitni, efni tengt hryðjuverkamönnum og efni sem brýtur á hugverkarétti annarra.
Aðgangi þínum að Google þjónustu lokað eða rift
Google áskilur sér rétt til að loka eða segja upp aðgangi þínum að þjónustunni eða eyða Google reikningnum þínum ef eitthvað af eftirfarandi gerist:
- þú brýtur efnislega eða endurtekið gegn þessum skilmálum, þjónustutengdum viðbótarskilmálum eða reglum
- okkur ber skylda til að gera það til þess að fara að lögum eða dómsúrskurði
- hegðun þín valdi notanda, þriðja aðila eða Google skaða eða valdi skaðabótaskyldu — til dæmis með því að hakka, vefveiða, áreita, senda ruslefni, villa um fyrir öðrum eða safna efni sem þú átt ekki
Nánari upplýsingar um það hvers vegna við lokum reikningum og hvað gerist í kjölfarið má finna á þessari síðu í hjálparmiðstöðinni. Ef þú telur að Google reikningnum þínum hafi verið lokað, tímabundið eða varanlega, fyrir mistök geturðu áfrýjað þeirri ákvörðun.
Þér er að sjálfsögðu alltaf frjálst að hætta að nota þjónustu okkar. Ef þú hættir að nota þjónustu myndum við gjarnan vilja vita hvers vegna til að við getum haldið áfram að bæta þjónustu okkar í framtíðinni.
Meðhöndlun ágreiningsmála, gildandi lög og dómstólar
Upplýsingar um hvernig hægt er að hafa samband við Google eru á samskiptasíðunni okkar.
Lög Kaliforníuríkis gilda um allan ágreining sem kemur upp vegna eða í tengslum við þessa skilmála, þjónustutengda viðbótarskilmála eða tengda þjónustu, óháð reglum um lagaskil. Eingöngu verður leyst úr slíkum ágreiningi fyrir alríkisdómstólum í Santa Clara-sýslu í Kaliforníu í Bandaríkjunum eða ríkisdómstólum í sömu sýslu, og þú og Google samþykkið lögsögu þessara dómstóla.
Um þessa skilmála
Lögum samkvæmt hefur þú tiltekinn rétt sem ekki er hægt að takmarka með samningi á borð við þessa þjónustuskilmála. Þessum skilmálum er á engan hátt ætlað að takmarka slík réttindi.
Þessir skilmálar lýsa sambandinu milli þín og Google. Þeir veita engum öðrum einstaklingum, fyrirtækjum eða stofnunum lagalegan rétt, jafnvel þótt aðrir njóti góðs af þeim tengslum samkvæmt þessum skilmálum.
Við viljum að þessir skilmálar séu auðskildir og höfum því notað dæmi úr þjónustu okkar. Aftur á móti er ekki víst að öll þjónustan sem minnst er á sé í boði í þínu landi.
Ef ósamræmi er á milli þessara skilmála og þjónustutengdra viðbótarskilmála gilda viðbótarskilmálarnir um þá þjónustu.
Ef í ljós kemur að eitthvert ákvæði skilmála er ekki gilt eða að ekki er unnt að framfylgja því hefur það ekki áhrif á aðra hluta skilmálanna.
Ef þú ferð ekki eftir þessum skilmálum eða viðbótarskilmálum fyrir tiltekna þjónustu, og við bregðumst ekki tafarlaust við, erum við ekki að afsala okkur réttindum sem við kunnum að hafa, svo sem að grípa til aðgerða seinna meir.
Við kunnum að uppfæra þessa skilmála og viðbótarskilmála fyrir tiltekna þjónustu (1) til að endurspegla breytingar á þjónustu okkar eða viðskiptaháttum okkar — til dæmis þegar nýrri þjónustu, eiginleikum, tækni, verði eða fríðindum er bætt við (eða eldri eru fjarlægð), (2) af lagalegum ástæðum, vegna reglna eða af öryggisástæðum, eða (3) til að koma í veg fyrir misnotkun eða skaða.
Ef við gerum efnislegar breytingar á þessum skilmálum eða þjónustutengdum viðbótarskilmálum tilkynnum við þér þær með góðum fyrirvara og gefum þér tækifæri til að kynna þér breytingarnar, nema (1) þegar við gefum út nýja þjónustu eða eiginleika, eða (2) við aðstæður sem krefjast áríðandi viðbragða, svo sem til að koma í veg fyrir yfirstandandi misnotkun eða bregðast við lagaskilyrðum. Ef þú samþykkir ekki nýju skilmálana okkar ættirðu að fjarlægja efnið þitt og hætta að nota þjónustuna. Þú getur einnig bundið enda á samband þitt við okkur hvenær sem er með því að loka Google reikningnum þínum.
Skilgreiningar
ábyrgð
Trygging fyrir því að vara eða þjónusta uppfylli tiltekin viðmið.
bæta tjón eða trygging
Samningsbundin skylda einstaklings eða stofnunar/fyrirtækis til að bæta tap annars einstaklings eða stofnunar/fyrirtækis vegna málaferla, svo sem málsókna.
efnið þitt
Það sem þú býrð til, hleður inn, sendir inn, geymir, sendir, tekur við eða deilir með Google gegnum þjónustu okkar, svo sem:
- skjöl, töflureiknar og skyggnur sem þú býrð til
- bloggfærslur sem þú hleður inn með Blogger
- umsagnir sem þú sendir inn í Kortum
- myndskeið sem þú geymir á Drive
- tölvupóstur sem þú sendir og móttekur í Gmail
- myndir sem þú deilir með vinum með Google myndum
- ferðaáætlanir sem þú deilir með Google
fyrirvari
Yfirlýsing sem takmarkar lagalega ábyrgð einhvers.
hlutdeildarfélag
Aðili sem tilheyrir fyrirtækjahópi Google, sem eru Google LLC og dótturfélög þess, þar á meðal eftirfarandi fyrirtæki sem veita neytendaþjónustu innan ESB: Google Ireland Limited, Google Commerce Limited og Google Dialer Inc.
hugverkaréttur
Réttindi yfir hugverkum einstaklings, svo sem uppfinningum (einkaleyfi); ritverkum eða listaverkum (höfundarréttur); hönnun (hönnunarréttindi); og táknum, heitum og myndum sem notuð eru í viðskiptum (vörumerki). Hugverkaréttindi kunna að tilheyra þér, öðrum einstaklingi eða fyrirtæki.
höfundarréttur
Lagalegur réttur sem gerir höfundi hugverks (svo sem bloggfærslu, myndar eða myndskeiðs) kleift að ákveða hvort og hvernig aðrir mega nota hugverkið, háð ýmsum takmörkunum og undantekningum (t.d. um „sanngjarna notkun“ og „sanngjarna meðferð“).
neytandi
Einstaklingur sem notar þjónustu Google í persónulegum tilgangi til einkanota utan starfsemi sinnar, fyrirtækis, starfs eða iðnar. (Sjá „viðskiptanotandi“)
skaðabótaábyrgð
Tap vegna hvers konar lagalegrar kröfu, hvort sem krafan er byggð á samningi, skaðabótarétti (þar á meðal vegna vanrækslu) eða einhverri annarri ástæðu, og jafnvel þótt tapið hafi verið fyrirsjáanlegt eða ef gera hefði mátt ráð fyrir því.
stofnun/fyrirtæki
Lögaðili (til dæmis fyrirtæki, stofnun sem ekki er rekin í hagnaðarskyni eða skóli) sem ekki er einstaklingur.
viðskiptanotandi
Einstaklingur eða aðili sem er ekki neytandi (sjá „neytandi“).
vörumerki
Tákn, heiti og myndir sem notuð eru í viðskiptum og geta aðgreint vöru eða þjónustu einstaklings eða fyrirtækis frá vörum og þjónustu annarra.
þjónusta
Þær Google þjónustur sem falla undir þessa skilmála eru vörurnar og þjónusturnar sem taldar eru upp á https://policies.google.com/terms/service-specific, þar á meðal:
- forrit og vefsvæði (til dæmis Leit og Kort)
- verkvangar (e. platform) (eins og Google Shopping)
- samþætt þjónusta (svo sem Kort, sem eru felld inn í forrit eða vefsvæði annarra fyrirtækja)
- tæki og aðrar vörur (eins og Google Nest)
Mikið af þessari þjónustu felur einnig í sér efni sem er gagnvirkt eða hægt er að streyma.